Skessuhorn - 20.01.2021, Blaðsíða 1
Ert Þú í áskrift?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 3. tbl. 24. árg. 20. janúar 2021 - kr. 950 í lausasölu
Tilboð gildir út
* 330 ml. af Coca Cola
eða Coca Cola
án sykurs fylgir með
Hot dog & Coca cola
5 9 kr.
& coke
Í dós
Arion appið
Fyrir hverju langar þig
að spara í ár?
Reglulegur sparnaður í Arion appinu
er alltaf góð hugmynd
Safahreinsun
Kaju Organic
Árangursrík safahreinsun
með girnilegum söfum frá
Kaja Organic
Sími 840-1665
Opnunartímar:
Virka daga 10:00-16:30
Laugardaga 12:00-16:00
Síðastliðið miðvikudagskvöld raungerðist viðburður sem upphaflega var blásið til á Facebook. Þar hafði Alexander Aron Guðjónsson frumkvæði að því að endurvekja
hinn þjóðþekkta rúnt Skagamanna um Skólabraut og nágrenni. Viðtökur voru ævintýralega miklar og hundruðir bæjarbúa á öllum aldri settist upp í bíla og ók hring
eftir hring um fyrrum rúntleið. Jafnvel komið við Skaganesti eins og forðum. Er mál manna að viðburðurinn hafi vakið upp mikla fortíðarþrá en einnig ánægju meðal
þeirra Skagamanna sem tóku þátt. Sjá nánar bls. 21. Ljósm. Guðmundur Bjarki Halldórsson.
Alls fæddust 315 börn á fæðinga-
deild Heilbrigðisstofnunar Vest-
urlands á Akranesi á árinu 2020.
Fækkaði fæðingum um 34 eða 10%
samanborið við árið 2019. Mæð-
ur koma víða að til þess að fæða á
HVE. Flestar eru eðli málsins sam-
kvæmt af upptökusvæði Heilbrigð-
isstofnunar Vesturlands, eða 51%,
en 36% mæðranna koma af höfuð-
borgarsvæðinu. Aðrar mæður koma
víða að, m.a. frá Akureyri, Vest-
mannaeyjum, Höfn í Hornafirði
og Reykjanesbæ. Keisarafæðingar
voru 50 á síðasta ári eða 15,9% og í
95 tilfella, eða 30% þeirra, þurfti að
framkalla fæðingu.
Að sögn Hrafnhildar Ólafsdóttur,
ljósmóður og deildarstjóra kvenna-
deildar HVE á Akranesi er skýring-
in á fækkuninni sennilega sú að það
komu mjög fáar konur til fæðinga
á Akranesi í fyrstu bylgju COVID.
„Þá voru miklar takmarkanir á við-
veru feðra og því fóru þær frekar
fram á LSH. Það gat verið snúið
fyrir feður þegar takmarkanirnar
voru sem mestar að vera viðstaddir.
Ef fæðingin tók langan tíma þurftu
þeir mögulega að hírast úti í bílum
sínum þar til móðirin var komin
ákveðið langt í útvíkkun fyrir fæð-
ingu. Einnig var léleg mönnun
ljósmæðra síðastliðið sumar og því
þurftum við að vísa nokkrum kon-
um frá okkur til LSH. Í dag erum
við með mun betri mönnun, höfum
fengið nokkrar ungar og ferskar
ljósmæður til að vinna hjá okkur.“
Nokkuð hefur borið á þeim mis-
skilningi að væntanlegir foreldrar
utan Akraness standi í þeirri trú að
eingöngu þeir sem búsettir eru á
Akranesi geti fætt á fæðingadeild-
inni. Að sögn Hafdísar Rúnars-
dóttur ljósmóður getur hver sem er
fætt á Akranesi. Þá segir Hafdís að
fólk átti sig ekki á allri þjónustunni
og baklandinu sem kvennadeildin á
HVE býður upp á. Þar er veitt öll
almenn þjónusta og bráðaþjónusta
tengd kvensjúkdómum, meðgöngu,
fæðingu og sængurlegu. Ljósmæð-
ur á HVE taki fagnandi á móti öll-
um heilbrigðum konum í venju-
legri meðgöngu.
Að lokum vildu ljósmæðurnar
koma á framfæri Instagram reikn-
ingi fæðingadeildarinnar sem er
akranesfaedingardeild. frg
Fæðingum á Akranesi fækkaði um 10%
Nýburi á fæðingadeild HVE á Akranesi. Ljósm. úr safni Skessuhorns.