Skessuhorn - 20.01.2021, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 20. jANúAR 202110
Sveitarstjórn Dalabyggðar sam-
þykkti á fundi sínum 10. desemb-
er á liðnu ári að auglýsa tillögu að
deiliskipulagi í Búðardal. Um er
að ræða deiliskipulag fyrir Auðar-
skóla og íþróttamiðstöð, þ.e. nýtt
íþróttahús og sundlaug. Skipu-
lagssvæðið er tæpir 18 þúsund fer-
metrar að stærð og er við Mið-
braut 6B, 8 og 10 í Búðardal. Þar
eru fyrir grunn- og leikskóli sveit-
arféalgsins og félagsheimilið Dala-
búð. Tillaga að deiliskipulaginu er
til sýnis á skristofu Dalabyggðar og
á vef sveitarfélagsins. Frestur til að
senda inn umsagnir, ábendingar og
athugasemdir rennur út 18. febrú-
ar næstkomandi og teljast þeir sem
ekki gera athugasemdir innan til-
skilins frests samþykkir skipulag-
stillögunni.
Að sögn Kristjáns Sturlusonar,
sveitarstjóra Dalabyggðar er deili-
skipulagið aðeins eitt skref í því að
hægt verði að ráðast í byggingu
íþróttahúss. Deiliskipulag fyrir téð
svæði hefur vantað og þetta var
rétti tímapunkturinn til þess að
koma því í samþykktarferli. Það
séu hins vegar mörg skref eftir og
að endanleg ákvörðun um bygg-
ingu íþróttahússins hafi ekki ver-
ið tekin af sveitarstjórn. Þó er gert
ráð fyrir byggingu íþróttahússins í
þriggja ára fjárhagsáætlun sveitar-
félagsins til 2024.
Vinnuhópur á vegum sveitar-
stjórnar Dalabyggðar hefur verið
í samtali við þrjár arkitektastofur
og er verið að skoða hugmynd-
ir sem hafa komið út úr því sam-
tali. Minnisblað um þessa vinnu
var lagt fyrir sveitarstjórnarfund
14. janúar en að sögn Kristjáns er
of snemmt að segja til um tíma-
setningar eða hvernig framhaldinu
verði háttað.
Sveitarstjórn Dalabyggðar setti
sér fyrir nokkrum árum þá stefnu
að byggja þyrfti upp íþróttamann-
virki við grunnskólann í Búðardal.
Til þess þurfti að selja eignir. Und-
anfarin ár hafa Laugar í Sælings-
dal; hótel, íþróttahús, sundlaug og
fyrrum grunnskóli með heimavist,
verið til sölumeðferðar. Í samtali
við Skessuhorn vorið 2018 sagði
Sveinn Pálsson, þáverandi sveit-
arstjóri, aðspurður um áform um
byggingu íþróttamannnvirkja
í Búðardal: „Sveitarfélaginu er
ókleift að fara í þá framkvæmd án
þess að afla þess fjár. Eðlilega fara
þau áform því á ís í bili.“
Í áliti sem Ólafur Sveins-
son, hagverkfræðingur, vann fyr-
ir Dalabyggð í nóvember á síð-
asta ári kemur hins vegar fram að
ekki verði „séð að áform um fjár-
festingu í íþróttamannvirkjum hafi
verulega íþyngjandi langtímaáhrif
á rekstur og fjárhag sveitarfélags-
ins, gangi áætlanir eftir að öðru
leyti.“ Kristján Sturluson tekur
undir álit Ólafs, en segir jafnframt
að gert sé ráð fyrir að Laugar í Sæ-
lingsdal seljist á einhverjum tíma-
punkti. Það sé þó ekki grunnfor-
senda fyrir að hefjast handa við
byggingu hins nýja íþróttahúss en
það yrði sveitarfélaginu ókleyft að
reka tvö íþróttahús og sundlaugar.
frg
Á fundi bæjarstjórnar Akranes-
kaupstaðar 12. janúar síðastlið-
inn var samþykkt samhljóða álykt-
un vegna umhverfisóhapps þegar
mikið magn sements fauk yfir hluta
bæjarins aðfararnótt 5. janúar síð-
astliðinn.
„Bæjarstjórn Akraness lítur óhapp-
ið alvarlegum augum en telur við-
brögð forsvarsmanna Sementsverk-
smiðjunnar til marks um að fyrir-
tækið líti málið sömu augum,“ seg-
ir í ályktun bæjarstjórnar. „Bæjar-
stjórn Akraness leggur áherslu á að
þeir aðilar, íbúar og forsvarsmenn
fyrirtækja, sem telja sig hafa orð-
ið fyrir tjóni vegna óhappsins, fái
viðunandi úrlausn sinna mála sem
og að fyrirtækið upplýsi sem best
og sem víðast þær ráðstafanir sem
gripið hefur verið til í framhaldinu
til að lágmarka sem mest áhættuna
af því að svona nokkuð geti endur-
tekið sig.“ mm
Ríkiskaup óska á vef sínum eftir til-
boði í alla verkfræðiráðgjöf vegna
verkefnisins „jaðarsbakkar, upp-
bygging íþróttamannvirkja á Akra-
nesi.“ Í auglýsingunni segir m.a að
um sé að ræða steinsteypt íþrótta-
hús með fría lofthæð yfir 7 metra.
Kjallari er undir húsinu og þar eru
búningsherbergi, aðstaða kennara,
þjálfara, dómara o.fl. ásamt stoð-
rýmum og geymslum. Samtals er
mannvirkið ríflega 5,300 fermetrar
og leggst annarsvegar að norður-
gafli Akraneshallarinnar og teng-
ist sundlaugarbyggingu til vesturs
hinsvegar. Húsið á að geta þjónu-
stað alla almenna íþróttaiðkun svo
sem handbolta, körfubolta, blak
o.fl. með uppsettum áhorfenda-
bekkjum ásamt því að vera leik-
fimihús fyrir Grundaskóla. Salur-
inn þarf að geta skipts í fjóra hluta
í kennslu og einnig að geta tekið
við uppsetningu fyrir veisluhöld,
uppröðun borða í öllum salnum.
Hljóðvist og loftgæði skulu taka
mið af því besta sem gert er í dag.
Bruna- og öryggismál skulu einnig
taka mið af því.
Þegar er kominn ráðgjafarsamn-
ingur við ASK arkitekta en hönn-
unarstjórn verkefnisins er á hendi
þeirra. frg
Frumhönnun húss. Teikning/ ASK arkitektar.
Verkfræðiráðgjöf vegna uppbygg-
ingar á Jaðarsbökkum í útboð
Unnið við hreinsun húss í kjölfar óhappsins. Ljósm. hs.
Bæjarstjórn lítur sements-
óhappið alvarlegum augum
Afmörkun deiliskipulags fyrir Auðarskóla og íþróttamiðstöð í Búðardal. Ljósm. úr tillögu að deiliskipulagi.
Auglýsa deiliskipulag fyrir Auðarskóla
og íþróttamiðstöð
Börn að leik í Búðardal. Ljósm. úr safni/ sm.