Skessuhorn - 20.01.2021, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 20. jANúAR 20212
Bóndadagurinn er á föstudaginn
og markar hann upphaf þorra.
Samkvæmt gamalli sögu eiga
karlar að fagna þorra með því að
fara fyrstir á fætur þann daginn
og skella sér í aðra buxnaskálm-
ina og hoppa svoleiðis, með
hina skálmina hangandi, kring-
um húsið sitt. Á þessum skrýtnu
tímum væri kannski ráð að taka
upp þennan gamla sið? Það væri
allavega dáldið fyndið.
Á morgun, fimmtudag, er spáð
norðanátt og víða 10-15 m/s
en á sumum stöðum hvassara
í vindstrengjum við fjöll. Bjart
veður sunnantil á landinu en él
í öðrum landshlutum. Frost 0-7
stig. Á föstudag og laugardag
er spáð allhvassri norðanátt og
snjókomu eða éljum, en skýjuðu
með köflum og þurru að kalla
sunnan heiða. Frost 0-5 stig. Á
sunnudag og mánudag er útlit
fyrir norðaustanátt og dálítil él
norðan- og austanlands, en bart-
viðri sunnan- og vestanlands.
Áfram frost um allt land.
Í síðustu viku voru lesendur á vef
Skessuhorns spurðir hver væri
þeirra uppáhalds mánuður. Júlí
bar sigur úr býtum með 26% at-
kvæða. 20% sögðu það vera maí,
17% júní og 11% ágúst. Septem-
ber og apríl fengu báðir 6%, des-
ember 4%, janúar 3% en aðrir
mánuðir fengu 2% hver.
Í næstu viku er spurt:
Borðar þú þorramat?
Rósa Soffía hefur verið að hvetja
fólk til að horfa ekki á heilsu að-
eins út frá tölum á vigtinni og
ræddi hún þetta við blaðamann
í viðtali sem birtist hér í Skessu-
horni. Rósa Soffía er Vestlend-
ingur vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur
Leiðrétt
SKESSUHORN: Í síðasta
Skessuhorni var rætt við nýja
eigendur að Dússabar, eða Mat-
stofunni í Borgarnesi. Í frétt-
inni var sagt að seljendur hefðu
verið María og Steinþór Grön-
feldt. Hið rétta er að seljendur
eru hjónin Steinþór Grönfeldt
og Malonesrange Dalaguete-
grove, kölluð Kora. María er
hins vegar dóttir þeirra. Beðist
er velvirðingar á þessu. -mm
Þrjú sóttu um
lögreglustjóra
VESTURLAND: Þrír um-
sækjendur voru um embætti
lögreglustjóra á Vesturlandi, en
umsóknarfrestur var til og með
14. desember sl. Þetta kemur
fram á vef Stjórnarráðsins. Þau
sem sóttu um eru: Arnfríður
Gígja Arngrímsdóttir aðstoðar-
saksóknari, Birgir jónasson lög-
lærður fulltrúi í greiningardeild
ríkislögreglustjóra og stunda-
kennari við Háskólann á Ak-
ureyri og Gunnar Örn jónsson
lögreglustjóri á Norðurlandi
vestra. Hæfnisnefnd sem hefur
ráðgefandi hlutverk í ráðning-
arferlinu fer nú yfir umsóknirn-
ar. -frg
Sala Neyðar-
kallsins í byrjun
febrúar
LANDIÐ: Sölu á Neyðarkalli
björgunarsveitanna var eins og
kunnugt er frestað í nóvember
vegna Covid. Nú hefur verið
ákveðið að salan fari fram dag-
ana 3.-7. febrúar. Að þessu sinni
er Neyðarkallinn með björgun-
arhund sér við hlið. Landsbjörg
biðlar til fólks að taka björgun-
arsveitafólki vel, en búast má
við að það komi sér fyrir í versl-
anamiðstöðum og víðar. Sem
fyrr er sala Neyðarkallsins með
mikilvægustu fjáraflanaleiðum
björgunarsveitanna. -mm
Sveitarstjórn
í beinni
BORGARBYGGÐ: Síðastlið-
inn fimmtudag voru tímamót
í sögu sveitarfélagsins Borg-
arbyggðar því streymt var frá
fundi sveitarstjórnar í fyrsta
skipti. Gefst nú íbúum og öðr-
um tækifæri til að fylgjast með
sveitarstjórnarfundum í hljóði
og mynd í rauntíma. „Þessi ný-
breytni er liður í því að stuðla
að auknum áhuga og þekk-
ingu íbúa á málefnum sveitar-
félagsins. Fundir sveitarstjórn-
ar Borgarbyggðar verða héðan í
frá sendir út í beinni útsendingu
en sveitarfélagið hefur í vaxandi
mæli verið að nota stafrænar
leiðir til þess að auka aðgengi
íbúa að íbúafundum og upplýs-
ingafundum á vegum Borgar-
byggðar,“ segir í tilkynningu frá
sveitarfélaginu. -mm
Akraneskaupstaður auglýsti í síðustu
viku eftir dagforeldrum til starfa í
bæjarfélaginu. Að sögn Valgerðar
janusdóttur, sviðsstjóra skóla- og
frístundasviðs, hefur skortur á dag-
foreldrum aðallega gert vart við sig
Laganám við Háskólann á Bifröst
hefur verið hluti af félagsvísinda-
deild frá árinu 2017 en á haust-
mánuðum var tekin ákvörðun um
að stofna að nýju sérstaka laga-
deild við skólann. Elín jónsdóttir
hefur verið ráðin í starf deildarfor-
seta lagadeildar en hún hefur gegnt
starfi umsjónarmanns laganáms
skólans frá því í haust og unnið að
stefnumótun um námið í samstarfi
við stjórnendur skólans. Að mati
Elínar sýnir sú ákvörðun að rektor
og stjórn hafa mikla trú á lagadeild-
inni og vilja tryggja vöxt hennar og
viðgang. „Fræðigreinin fær við það
meiri áherslu í starfi innan skólans
og stuðningur við nemendur og
kennara eykst,“ segir Elín.
Helsta sérstaða laganámsins á
Bifröst verður áhersla á viðskipta-
lögfræði, nám þar sem samþætt eru
fjármál, viðskipti og lögfræði með
það að markmiði að mennta stjórn-
endur með sérþekkingu á lagaleg-
um þáttum viðskipta og rekstrar
fyrir atvinnulíf og samfélag. Lög-
fræðilegur hluti námsins felur í sér
þau réttarsvið sem lúta almennt að
rekstri fyrirtækja, rekstrarformi og
rekstrarumhverfi. Viðskiptafræði-
legi hlutinn kynnir grunnþætti hag-
fræði, stjórnunar og reikningshalds
fyrir nemendum.
„Að mínu mati er Háskólinn á
Bifröst í góðri stöðu til að sækja
fram og styrkja laganámið nú þeg-
ar líður að tuttugu ára afmæli laga-
náms við skólann. Lögfræðinám
við Bifröst hefur frá upphafi haft
skýra aðgreiningu í flóru þeirra
háskóla sem kenna lögfræði hér á
landi. Þá vísa ég bæði til samstarfs-
ins við viðskiptadeild varðandi
námsframboð og til þess fjölbreytta
nemendahóps sem skólinn þjónar
með fjarkennslu. Skólanum hefur
reynst auðvelt að laða til sín góða
kennara og nú verður lögð áhersla
á að styrkja utanumhald og þjón-
ustu við störf þeirra. Nemendur
munu njóta góðs af því að kennur-
um er gefið færi á að blómstra og fá
hvatningu til aukinnar rannsóknar-
virkni. Laganám innan Háskólans
á Bifröst hefur sveigjanleika til að
bregðast hratt við samfélagsbreyt-
ingum og leggja áherslu á það sem
atvinnulíf og samfélag hefur þörf
fyrir. Við munum því leggja áherslu
á að styrkja kennslu í greinum sem
tengjast samfélagsábyrgð fyrirtækja
og nýsköpun og tækni enda ljóst
að breytingar í viðskiptalífinu gera
kröfu til þekkingar á því sviði,“ seg-
ir Elín jónsdóttir.
mm
Svavar Gestsson fv. alþingismaður,
ráðherra og sendiherra er látinn, 76
ára að aldri. Svavar var fæddur 26.
júní 1944 á Guðnabakka í Borgar-
firði, elstur átta systkina, barna
hjónanna Guðrúnar Valdimarsdótt-
ur og Gests Sveinssonar. Svavar var
fyrst kosinn á Alþingi fyrir Alþýðu-
bandalagið árið 1978 og sat á þingi
í 21 ár. Áður starfaði hann m.a. sem
blaðamaður og síðar ritstjóri Þjóð-
viljans. Eftir að Svavar settist á þing
tók hann að sér störf ráðherra í fjór-
um ríkisstjórnum en eftir að þing-
setu lauk varð hann sendiherra fyr-
ir Ísland í nokkrum löndum. Þegar
starfsævi Svavars lauk tók hann að
sér þátttöku í fjölmörgum menn-
ingarverkefnum, m.a. á heimaslóð
í Dölum. Ritstýrði hann Breiðfirð-
ingi, riti Breiðfirðingafélagsins, og
sat í undirbúningsnefnd fyrir stofn-
un Sturluseturs til minningar um
verk Sturlu Þórðarsonar sagnarit-
ara. Þá var hann ötull talsmaður
Gullna söguhringsins sem nær frá
Búðardal, út fyrir Klofning og að
Saurbæ í Dölum.
Eftirlifandi eiginkona Svavars er
Guðrún Ágústsdóttir, fyrrum for-
seti borgarstjórnar Reykjavíkur.
Börn Svavars af fyrra hjónabandi
eru Svandís, Benedikt og Gestur
og börn Guðrúnar eru Ragnheiður,
Árni og Gunnhildur.
mm
Stofnuð verður sérstök lagadeild við
Háskólann á Bifröst
Elín Jónsdóttir hefur tekið til starfa
sem forseti lagadeildar Háskólans á
Bifröst.
Skortur er á dagforeldrum á Akranesi
þegar líða fer á veturinn. Dagfor-
eldrar hefja störf á haustin í flestum
tilfellum með nýjan hóp barna og
fylla þá sín pláss eins og kostur er.
Þegar líða fer á veturinn verður til
nýr hópur af börnum sem þarf pláss
hjá dagforeldrum. Til þess að mæta
þörfum þessa hóps þurfa starfandi
dagforeldrar að halda eftir lausum
plássum sem þýðir tekjuskerðingu
fyrir þá eða nýir dagforeldrar koma
inn á markaðinn. Nú er svo kom-
ið að eftirspurnin eftir plássum hjá
dagforeldrum er meiri en framboð-
ið. Auk þeirrar skýringar sem nefnd
var hér að ofan getur skýringin verið
fjölgun íbúa í bænum.
Í auglýsingunni frá bænum seg-
ir m.a. að dagforeldrar starfi eft-
ir reglugerð um daggæslu barna í
heimahúsum. Dagforeldrar eru sjálf-
stæðir verktakar en Akraneskaup-
staður hefur umsjón og eftirlit með
starfsemi þeirra. Til að fá starfsleyfi
til daggæslu í heimahúsum þarf að
uppfylla ákveðin skilyrði. Leyfileg-
ur barnafjöldi hjá dagforeldri er allt
að fjórum börnum samtímis fyrsta
árið. Að því loknu er heimilt að veita
leyfi fyrir einu barni til viðbótar. Þó
þannig að eigi skulu að jafnaði vera
á heimilinu fleiri en tvö börn undir
eins árs aldri. Skörun á tímum barna
í daggæslu er ekki heimilaður nema
milli klukkan 12 og 13 á daginn. Þar
sem tveir dagforeldrar starfa sam-
an er leyfilegt að vera með allt að
tíu börn í einu þ.e. fimm börn fyrir
hvort dagforeldri.
Réttindanámskeið fyrir verð-
andi dagforeldra hefur verið hald-
ið af Námsflokkum Hafnarfjarðar
og niðurgreiðir Akraneskaupstaður
hluta af námsgjaldi. Umsókn um
leyfi til daggæslu barna í heimahúsi
og frekari upplýsingar er að finna á
vef Akraneskaupstaðar. Frekari upp-
lýsingar veitir verkefnastjóri á skóla-
og frístundasviði Akraneskaupstaðar
í síma 433-1000 en einnig er hægt
að senda fyrirspurnir á netfangið
skolifristund@akranes.is.
frg
Svavar Gestsson fyrrum
ráðherra er látinn
Svavar Gestsson er hér með tímaritið
Nýjan Breiðfirðing sem kom út 2015.
Breiðfirðingur hafði þá legið í dvala
síðan 2009, en þar áður komið út
óslitið frá 1942.
Ljósm. úr safni Skessuhorns.