Skessuhorn


Skessuhorn - 20.01.2021, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 20.01.2021, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 20. jANúAR 202112 Svandís Svavarsdóttir heilbrigð- isráðherra hefur ákveðið að fresta um ótiltekinn tíma breytingum á neðri mörkum aldursviðmiða vegna skimana fyrir brjóstakrabba- meini. „Kynna þurfi betur áform- aðar breytingar og fagleg rök að baki þeim. Ákvörðun um að hækka efri mörk aldursviðmiðanna úr 69 árum í 74 ár stendur óbreytt,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. Skimunarráð sem starfar á veg- um embættis landlæknis fjallar um fyrirkomulag skimana fyrir krabba- meinum á faglegum forsendum og byggir á bestu þekkingu hverju sinni. Það er mat skimunarráðs að breyta skuli aldursviðmiðum brjós- taskimana þannig að skimanir hefj- ist ekki fyrr en við 50 ára aldur en að efri aldursmörkin hækki úr 69 árum í 74. Tillaga um að hækka lægri aldursviðmiðin var fyrst lögð fram árið 2016 af hálfu embættis landlæknis og aftur á liðnu ári þar sem embætti landlæknis byggði á niðurstöðum skimunarráðs þess efnis. Svandís Svavarsdóttir heilbrigð- isráðherra segist hvorki hafa for- sendur né ástæður til að draga í efa faglegt mat sérfræðinga skim- unarráðs eða embættis landlækn- is um aldursviðmið krabbameins- skimana. Aftur á móti sé þarna um nokkuð miklar breytingar að ræða varðandi neðri aldursviðmiðin sem skiljanlega veki ýmsar spurning- ar, ekki síst hjá þeim konum sem eiga í hlut. „Það er alveg ljóst af umræðum síðustu daga að þessa breytingu þarf að kynna betur og því hef ég ákveðið að fresta gildis- töku þessarar breytingar varðandi skimun krabbameina í brjóstum,“ segir Svandís Svavarsdóttir heil- brigðisráðherra í tilkynningu. mm Nýtt stjórnskipulag Akraneskaup- staðar var samþykkt á fundi bæjar- stjórnar 15. desember og tók gildi 1. janúar síðastliðinn. „Markmið breytinganna er að auka og bæta innri og ytri þjónustu Akranes- kaupstaðar, auka skilvirkni í rekstri sveitarfélagsins með upplýsinga- tækni, skýrari verkferlum, stjórnun og öflugu starfsumhverfi,“ segir í tilkynningu. Samhliða breyting- unum hefur verið gengið frá ráðn- ingu í fjögur störf hjá Akraneskaup- stað en breytingarnar fela ekki í sér fjölgun starfsmanna þar sem neð- angreindar breytingarnar fela í sér tilfærslu á verkefnum. Skrifstofa bæjarstjóra tekur til starfa Meðal helstu breytinga má nefna að stofnuð var ný eining sem ber heitið skrifstofa bæjarstjóra. Und- ir hana tilheyra eftirfarandi mála- flokkar: Þjónusta og stafræn þróun • ásamt skjalastýringu og mið- lægri stýringu tölvu- og kerfis- mála. Þessi verkefni flytjast frá stjórnsýslu- og fjármálasviði ásamt tilheyrandi mannafla. Verkefnastofa þar sem áhersla • er á uppbyggingu þverfag- legs samstarfs og samhæfingu í stýringu verkefna. Um er að ræða nýja deild innan skrif- stofunnar sem er ætlað að fara fyrir teymisvinnu innan kaup- staðarins þvert á svið og starf- semi. Mannauðsmál þar sem nýr • mannauðsstjóri gegnir forystu og stuðlar að eflingu mála- flokksins þvert yfir starfsemi Akraneskaupstaðar. Atvinnuþróun og samstarf við • þróunarfélög. Ferðamál þar sem haldið er • utan um rekstur Akranes- vita, upplýsingamiðstöðvar og Guðlaugar. Markaðsmál þar sem viðburða-• hald og framleiðsla markaðs- og kynningarefnis fer fram. Menningar- og safnamál þar • sem haldið er utan um rekstur byggða-, bóka-, ljósmynda- og héraðsskjalasafns. Sædís Alexía skrifstofustjóri Ný staða skrifstofustjóra varð til samhliða nýrri skrifstofu og tók Sædís Alexía Sigurmundsdóttir við stöðunni en áður gengdi hún starfi deildarstjóra á stjórnsýslu- og fjár- málasviði. Sædís Alexía hefur starf- ar hjá Akraneskaupstað í tæp átta ár og hefur sinnt sambærilegum verkefnum á sviði þjónustu og staf- rænnar þróunar ásamt atvinnu-, ferða- og markaðsmálum. Þá hefur hún stýrt þeim verkefnum ásamt fjölda annarra innan ólíkra sviða ásamt því að starfa í framkvæmda- stjórn innan bæjarskrifstofunnar. Sædís Alexía er viðskiptalögfræð- ingur að mennt og með meistara- gráðu í forystu og stjórnun með áherslu á verkefnastjórnun. Ella María verkefnastjóri Innan nýrrar einingar verður starf- rækt verkefnastofa og hefur verið ráðinn inn verkefnastjóri til þess að leiða og skipuleggja þverfaglegt teymisstarf innan sveitarfélags- ins. Ella María Gunnarsdóttir sem gegndi áður starfi forstöðumanns menningar- og safnamála hef- ur tekið við þeirri stöðu en henn- ar fyrra starf var lagt niður sam- hliða þessum stjórnkerfisbreyting- um. Ella María hefur starfað hjá Akraneskaupstað frá árinu 2015 og sinnt verkefnum sem falla und- ir menningar- og safnamál. Ella María er með meistarapróf í við- skiptafræði ásamt bókasafns- og upplýsingafræði frá Háskóla Ís- lands og öðlaðist B-stig IPMA vottunar hjá Verkefnastjórnunar- félagi Íslands. Starfsreynsla Ellu Maríu er fyrst og fremst mótuð út frá verkefnastjórnun en hún starf- aði fyrir Arion banka í 15 ár, þar af lengst í verkefnastjórnun. Harpa mannauðsstjóri Akraneskaupstaður auglýsti í nóvember síðastliðnum starf mannauðsstjóra en slíkur hefur ekki verið starfandi hjá kaupstaðn- um síðan árið 2012. Málaflokkur- inn hafði frá þeim tíma verið hluti af starfi sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs. Ráðningu mann- auðsstjóra lauk rétt fyrir áramót og hóf Harpa Hallsdóttir störf 7. janúar sl. Harpa lauk BA gráðu í spænsku með uppeldis- og mennt- unarfræði sem aukagrein. Hún lauk meistaragráðu í mannauðs- stjórnun frá Háskóla árið 2005 og er að leggja lokahönd á viðbótar- diplómu í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands. Harpa hefur starf- að hjá Kópavogsbæ frá 2011 sem mannauðsfulltrúi og mannauðs- ráðgjafi á stjórnsýslu- og umhverf- issviði. Áður vann hún sem deild- arstjóri starfsmannahalds hjá Toll- stjóra og sérfræðingur hjá Skatt- rannsóknarstjóra ríkisins. Nútímavæða þjónustuferla Í tilkynningu frá Akraneskaupstað segir að með skrifstofu bæjarstjóra sé ætlunin að nútímavæða þjónustu- ferla og efla þjónustuhugsun með- al starfsfólks og innleiða þjónustu- markmið ásamt því að leysa mál með þjálfun starfsmanna í fyrstu snert- ingu og gegnir einingin frumkvæð- ishlutverki í stafrænni þróun sveitar- félagsins með það markmið að auka framleiðni og létta álagi á starfsfólk. Ætlunin er einnig að ná fram betri nýtingu á mannauði svo öflugri sam- rekstur fáist á byggðasafni, vitasvæði og Guðlaugu. Þá er stefnt að ráðn- ingu skjalastjóra á næstu mánuðum sem einnig mun gegna starfi pers- ónuverndarfulltrúa. Kristjana Helga deildarstjóri fjármála Stjórnkerfisbreytingarnar höfðu í för með sér endurskipulagningu og um leið styrkingu innan fjármála- deildar kaupstaðarins. Helstu breyt- ingar þar voru að Steinar Adolfsson sviðsstjóri stjónsýslu- og fjármála- sviðs hefur tekið við auknu hlutverki innan deildarinnar þar sem starf fjár- málastjóra var lagt niður og einnig hefur Kristjana Helga Ólafsdóttir verkefnastjóri innan fjármáladeild- ar tekið við nýrri stöðu deildarstjóra fjármála og fengið aukið hlutverk við stærstu verkefni kaupstaðarins eins og ársreikningsgerð og fjárhagsáætl- un. Kristjana Helga hefur unnið hjá Akraneskaupstað í rúmlega tvö ár og hefur þar að auki víðtæka og farsæla reynslu í fjármálum sveitarfélaga. Kristjana Helga er viðskiptafræð- ingur að mennt og með viðbótardip- lómu í opinberri stjórnsýslu. Einnig var samþykkt að ráða inn verkefna- stjóra í deildina sem myndi m.a. hafa það hlutverk að styðja við hagstæð- ari innkaup og greiningar og nýtast vel heildarstarfsemi kaupstaðarins. Skilar sér í öflugri þjónustu „Við förum jákvæð inn í nýtt ár og með tilhlökkun um að takast á við krefjandi og ný verkefni mörg hver. Með þessum breytingum er það okk- ar einlægja von að ná fram aukinni skilvirkni bæði í skipulagi og rekstri þannig að við náum að veita sem bestu mögulegu þjónustu til okk- ar nærsamfélags. Ég vil nota tæki- færið og óska þessum fjórum öflugu konum til hamingju með nýtt starf. Það verður spennandi að starfa með þeim að eflingu á starfsemi Akranes- kaupstaðar sem ég er sannfærður um að muni skila sér í enn öflugri þjón- ustu við íbúa og starfsmenn,“ segir Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri í tilkynningu. mm Breytingum frestað á aldursviðmiðum brjóstaskimana Nýtt skipurit Akraneskaupstaðar tók gildi um áramót Lykilstjórnendur í nýjum störfum samkvæmt skipuriti Akraneskaupstaðar. F.v. Kristjana Helga Ólafsdóttir, Ella María Gunnarsdóttir, Sædís Alexía Sigurmundsdóttir og Harpa Hallsdóttir.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.