Skessuhorn


Skessuhorn - 20.01.2021, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 20.01.2021, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 20. jANúAR 202122 Hettupeysur fáð� verðtilboð fyrir þin� hóp www.smaprent.is • smaprent@smaprent.is • sími 666-5110 Ef verslað er fyrir 10.000 kr eða meira er enginn sendingarkostnaður! www.smaprent.is 900 kr/stk Verð áður 1.290 kr/stk 1.290 kr/stk 1.500 kr/stk Verð áður 2.990 kr/stk 990 kr/stk 400 kr/stk Verð áður 1.990 kr/stk 1.990 kr/stk 1.490 kr/stk Elís� w w w .s m ap re n t. is TI LB O Ð SH O R N Við sendum út um alLt LAND! Starfsfólk Grunnskóla Snæfellsbæj- ar, Lýsuhólsskóla hafði samband við Landgræðsluna snemma á liðnu ári og óskaði eftir ráðgjöf í skóla- verkefni um uppgræðslu vegkants við skólann. Verkefnið er hluti af Grænfánastarfi skólans og var komið að því að kynna sér og reyna vistheimt. Iðunn Hauksdóttir, hér- aðsfulltrúi Vesturlands hjá Land- græðslunni, brást fljótt við og eft- ir gott spjall við kennara varð úr að hanna tilraunaverkefni á vegkanti til þess að rannsaka áhrif mismun- andi lífræns áburðar á gróðurfram- vindu. Haft var samband við Rann- veigu Magnúsdóttur starfsmann Landverndar sem slóst einnig með í hópinn. Að sögn Iðunnar varð tilraunin að smækkaðri útgáfu af Vistheimt- arverkefni Landverndar og voru það nemendur 5.-9. bekkjar skól- ans sem unnu að henni. Nemendur og kennarar við skólann sáu sjálfir um að útvega lífræna efnið en það var kúamykja, kindaskítur og moð, hænsnaskítur og hrossatað. Verkefnið hófst vorið 2020 á kynningu frá Landgræðslunni og Landvernd um mikilvægi jarðvegs og vistheimtar. Síðan var haldið út og nemendur mældu út fimm til- raunareiti með staurum sem þeir höfðu smíðað í skólanum. Gróður- tegundir voru mældar innan allra reita. Eftir það skelltu allir nem- endur sér í bleika plasthanska og hófu að þekja tilraunarreiti með líf- rænu efni með tilheyrandi þef og drullumalli sem einstaklega gaman var að fylgjast með. Haustið 2020 mætti héraðs- fulltrúi Landgræðslunnar aftur á svæðið og hjálpaði hópnum að taka út gróðurinn í tilraunareitun- um. Mikinn mun var að sjá á gróðri innan og utan reita en þess má geta að sauðfé komst í gróðurinn og vildu sumir meina að það hefði haft mesta lyst á kindaskítsreitnum en þetta hefur ekki verið vísindalega sannað. Nemendur hafa unnið fjölbreytt verkefni út frá tilrauninni, t.d. útbúið rafbók með upplýsingum um verkefnið, teiknað hvernig þau sjá reitinn fyrir sér eftir tíu ár, tínt blóm og jurtir úr reitunum, þurrk- að og búið til plöntuhandbók, veitt skordýr í gildrur í hverjum reit og birt niðurstöður í töfluformi. „Héraðsfulltrúi Vesturlands þakk- ar kennurum og nemendum, ásamt Landvernd, fyrir skemmtilegt sam- starf og hlakkar til að fylgjast með reitunum í framtíðinni,“ í tilkynn- ingu sem Iðunn Hauksdóttir sendi Skessuhorni. mm/ Ljósm. ih. Hér er búið að reita vegkantinn niður og setja í hvern reit mismunandi hús- dýraáburð. Vistheimtarverkefni í vegkanti við Lýsuhólsskóla Krakkar í fimmta bekk með bleika hanska tilbúnir í skítadreifingu. Vegkanturinn reitaður niður fyrir tilraunir.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.