Skessuhorn - 20.01.2021, Page 22
MIÐVIKUDAGUR 20. jANúAR 202122
Hettupeysur
fáð� verðtilboð fyrir þin� hóp
www.smaprent.is • smaprent@smaprent.is • sími 666-5110
Ef verslað er fyrir 10.000 kr eða meira
er enginn sendingarkostnaður!
www.smaprent.is
900 kr/stk
Verð áður 1.290 kr/stk
1.290 kr/stk
1.500 kr/stk
Verð áður 2.990 kr/stk
990 kr/stk
400 kr/stk
Verð áður 1.990 kr/stk
1.990 kr/stk 1.490 kr/stk
Elís�
w
w
w
.s
m
ap
re
n
t.
is
TI
LB
O
Ð
SH
O
R
N
Við sendum út
um alLt LAND!
Starfsfólk Grunnskóla Snæfellsbæj-
ar, Lýsuhólsskóla hafði samband
við Landgræðsluna snemma á liðnu
ári og óskaði eftir ráðgjöf í skóla-
verkefni um uppgræðslu vegkants
við skólann. Verkefnið er hluti
af Grænfánastarfi skólans og var
komið að því að kynna sér og reyna
vistheimt. Iðunn Hauksdóttir, hér-
aðsfulltrúi Vesturlands hjá Land-
græðslunni, brást fljótt við og eft-
ir gott spjall við kennara varð úr að
hanna tilraunaverkefni á vegkanti
til þess að rannsaka áhrif mismun-
andi lífræns áburðar á gróðurfram-
vindu. Haft var samband við Rann-
veigu Magnúsdóttur starfsmann
Landverndar sem slóst einnig með
í hópinn.
Að sögn Iðunnar varð tilraunin
að smækkaðri útgáfu af Vistheimt-
arverkefni Landverndar og voru
það nemendur 5.-9. bekkjar skól-
ans sem unnu að henni. Nemendur
og kennarar við skólann sáu sjálfir
um að útvega lífræna efnið en það
var kúamykja, kindaskítur og moð,
hænsnaskítur og hrossatað.
Verkefnið hófst vorið 2020 á
kynningu frá Landgræðslunni og
Landvernd um mikilvægi jarðvegs
og vistheimtar. Síðan var haldið út
og nemendur mældu út fimm til-
raunareiti með staurum sem þeir
höfðu smíðað í skólanum. Gróður-
tegundir voru mældar innan allra
reita. Eftir það skelltu allir nem-
endur sér í bleika plasthanska og
hófu að þekja tilraunarreiti með líf-
rænu efni með tilheyrandi þef og
drullumalli sem einstaklega gaman
var að fylgjast með.
Haustið 2020 mætti héraðs-
fulltrúi Landgræðslunnar aftur
á svæðið og hjálpaði hópnum að
taka út gróðurinn í tilraunareitun-
um. Mikinn mun var að sjá á gróðri
innan og utan reita en þess má geta
að sauðfé komst í gróðurinn og
vildu sumir meina að það hefði haft
mesta lyst á kindaskítsreitnum en
þetta hefur ekki verið vísindalega
sannað.
Nemendur hafa unnið fjölbreytt
verkefni út frá tilrauninni, t.d.
útbúið rafbók með upplýsingum
um verkefnið, teiknað hvernig þau
sjá reitinn fyrir sér eftir tíu ár, tínt
blóm og jurtir úr reitunum, þurrk-
að og búið til plöntuhandbók, veitt
skordýr í gildrur í hverjum reit og
birt niðurstöður í töfluformi.
„Héraðsfulltrúi Vesturlands þakk-
ar kennurum og nemendum, ásamt
Landvernd, fyrir skemmtilegt sam-
starf og hlakkar til að fylgjast með
reitunum í framtíðinni,“ í tilkynn-
ingu sem Iðunn Hauksdóttir sendi
Skessuhorni. mm/ Ljósm. ih.
Hér er búið að reita vegkantinn niður
og setja í hvern reit mismunandi hús-
dýraáburð.
Vistheimtarverkefni í vegkanti við Lýsuhólsskóla
Krakkar í fimmta bekk með bleika hanska tilbúnir í skítadreifingu.
Vegkanturinn reitaður niður fyrir
tilraunir.