Skessuhorn


Skessuhorn - 20.01.2021, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 20.01.2021, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 20. jANúAR 20218 Aflatölur fyrir Vesturland 9. - 15. janúar Tölur (í kílóum) frá Fiski- stofu Akranes: 4 bátar. Heildarlöndun: 20.947 kg. Mestur afli: Eskey ÓF-80: 17.568 kg. í þremur löndunum. Arnarstapi: 3 bátar. Heildarlöndun: 46.877 kg. Mestur afli: Kristinn HU-812: 31.564 kg. í einni löndun. Grundarfjörður: 9 bátar. Heildarlöndun: 551.973 kg. Mestur afli: Björgvin EA-311: 133.163 kg. í einni löndun. Ólafsvík: 16 bátar. Heildarlöndun: 348.055 kg. Mestur afli: Ólafur Bjarnason SH-137: 60.548 kg. í sex lönd- unum. Rif: 17 bátar. Heildarlöndun: 699.400 kg. Mestur afli: Örvar SH-777: 106.178 kg. í sex löndun. Stykkishólmur: 5 bátar. Heildarlöndun: 19.077 kg. Mestur afli: Kári SH-78: 5.492 kg. í einni löndun. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Björgvin EA-311 - GRU: 133.163 kg. 11. jan. 2. Þórunn Sveinsdóttir VE-401 - GRU: 116.505 kg. 12. jan. 3. Örvar SH-777 - RIF: 106.178 kg. 10. jan. 4. Rifsnes SH-44 - Rif: 99.833 kg. 12. jan. 5. Tjaldur SH-270 - Rif: 82.874 kg. 12. jan. -frg Hagstofan birtir fyrir helgina bráðabirgðatölur um heildarafla ársins 2020 við Íslandsstrendur. Heildaraflinn var 1.021.000 tonn og dregst saman um 3% frá 2019. Uppsjávarafli er nær óbreyttur milli áranna 2019 og 2020, um 530 þús- und tonn. Ríflega helmingur aflans, kolmunni 244 þúsund tonn, makríll 152 þúsund tonn og síld 134 þús- und tonn. Loðnuafli var hins vegar enginn árin 2019 og 2020. Botnfisksafli dregst saman um 4% milli ára og var rúm 463 þús- und tonn árið 2020 og skiptist þannig: Þorskur 277 þúsund tonn og ýsa, ufsi og karfi rúm 50 þúsund tonn hvert. Flatfisksafli breyttist lítið milli ára, var 23 þúsund tonn en skelfisksafli minnkaði um rúm- lega helming, úr tíu þúsund tonn- um í fimm þúsund tonn. frg Alþingi samþykkti á mánudag að fela ríkisendurskoðanda að gera úttekt á starfsemi Vegagerðarinn- ar. Það var Sara Elísa Þórðardótt- ir, þingmaður Pírata, sem fór fram á úttektina sem var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Rík- isendurskoðandi mun því ráðast í fjárhags- og stjórnsýsluúttekt á Vegagerðinni og skila skýrslu að þeirri vinnu lokinni. Í beiðninni eru tilgreindir nokkrir þættir sem lagt er til að fjallað verði sérstak- lega um í skýrslunni. Í fyrsta lagi að metnir verði þættir sem snúa að stjórnsýslu og stjórnun Vega- gerðarinnar. Í öðru lagi þættir sem varða meðferð almannafjár og ráð- stöfun til vegaframkvæmda. Loks í þriðja lagi þættir sem varða öryggi vegfarenda á þjóðvegum landsins og eftirlit með vegaframkvæmd- um. „Í fyrra komu upp nokkur tilvik þar sem slys og tjón urðu í kjölfar vegaframkvæmda, á sama tíma og miklu fé hefur verið varið í sam- gönguframkvæmdir í tengslum við fjárfestingaáætlun ríkisstjórnar- innar í faraldrinum. Líklega hefur því aldrei verið jafn rík þörf og nú til að hafa eftirlit með starfsemi og skilvirkni Vegagerðarinnar,“ sagði Sara Elísa eftir að stuðningur þing- heims við tillögu hennar lá fyrir. mm Samgöngu- og sveitarstjórnarráð- herra hefur staðfest tillögur val- nefndar um þrjá verkefnastyrki sem veittir eru á grundvelli stefnu- mótandi byggðaáætlunar. Að þessu sinni var 12 milljónum króna út- hlutað til verslunar í strjálbýli fyrir árið 2021. Samningar vegna styrkj- anna verða undirritaðir á næstu dögum. Verkefnin sem hljóta styrk eru Hríseyjarbúðin, Kaup- tún Vopnafirði og verslun á Reyk- hólum. Til Reykhóla rennur hæsti styrkurinn, krónur 5,8 milljónir, til stofnkostnaður vegna opnunar og reksturs verslunar. Þar hefur eins og kunnugt er ekki verið verslun síðan Hólabúðinni var lokað síð- asta haust. Markmið með framlögunum er að styðja verslun í skilgreindu strjálbýli fjarri stórum þjónustu- kjörnum, þar sem verslun hefur átt erfitt uppdráttar. Framlögin eiga að bæta rekstur verslana og skjóta frekari stoðum undir hann, til dæmis með samspili við aðra þjón- ustu, breyttri uppsetningu í versl- unum og bættri aðkomu. mm Stærsti einsaki styrkurinn rennur til endurreisnar verslunar á Reykhólum. Styrkja verslun á strjálbýlustu svæðum Heildarafli var rúm ein milljón tonna á síðasta ári Samþykkt að fara í úttekt á starfsemi Vegagerðarinnar Svipmynd úr umferðinni á Kjalarnesi. Ljósm. úr safni/ mm.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.