Skessuhorn - 27.01.2021, Side 10
MIÐVIKUDAGUR 27. jANúAR 202110
Þrátt fyrir heimsfaraldur eru nú
þrettán skiptistúdentar frá sjö lönd-
um að koma sér fyrir á Bifröst. Um
mánaðamótin febrúar-mars bætast
við tveir nemar sem verða í skólan-
um í seinni lotu haustannar. Nem-
arnir nú koma frá Þýskalandi, Aust-
urríki, Frakklandi, Rúmeníu, Ít-
alíu, Tékklandi og Bandaríkjunum
og koma sér fyrir í þremur náms-
mannaíbúðum í háskólaþorpinu.
„Segja má að nemarnir hafi vað-
ið eld og brennistein til þess að
komast í sveitasæluna í Borgarfirði.
Fólkið hefur að sjálfsögðu allt ver-
ið í sóttkví með tilheyrandi auka-
kostnaði, auk þess sem það lenti
í ýmiskonar hremmingum á leið
sinni hingað til lands, svo sem nið-
urfellingu á flugi. En stúdentarnir
létu ekki stoppa sig og nú eru þau
komin, kát og glöð, og sest við nám
meðal annars í forystu og stjórnun,
hagvexti og þróun og alþjóðahag-
fræði. Skiptistúdentarnir munu
dvelja á Bifröst fram í maí og von-
ast til að bólusetningar gangi nægi-
lega vel til þess að heimferð þeirra
verði með einfaldara sniði en ferð
þeirra hingað til lands,“ segir í frétt
frá skólanum.
mm
Byggðarráð Borgarbyggðar fjallaði
á fundi sínum síðastliðinn fimmtu-
dag um rakavandamál í Ráðhúsinu
við Borgarbraut 14 í Borgarnesi.
Fram kemur í fundargerð að hafn-
ar séu framkvæmdir við húsið og
til staðar séu nú fyllri upplýsingar
en áður um umfang viðhalds á því.
Byggðarráð samþykkti að fela sveit-
arstjóra að finna tímabundið hús-
næði fyrir hluta eða alla starfsemi
ráðhússins þar sem ástand þess
vegna rakavandamála sé verra en
búist var við, eftir forskoðun Eflu
á hluta fasteignarinnar. „Byggðar-
ráð leggur jafnframt til að ljúka við
úttekt á ráðhúsi Borgarbyggðar og
að farið verði í viðeigandi aðgerðir
í kjölfarið. Málið verður lagt aftur
fyrir næsta fund byggðarráðs.“
Guðveig Eyglóardóttir, fulltrúi
Framsóknarflokks og minnihlut-
ans í byggðarráði, lagði fram bók-
un þar sem hún segir ljóst af lýsing-
um að dæma að húsnæði Ráðhúss
Borgarbyggðar sé illa farið af raka,
myglu og skemmdum af þeim sök-
um. „Undirrituð telur óforsvaran-
legt að sveitarfélagið leggi í kostnað
við viðgerðir á húsinu og leggur til
að unnið verði að því að húsið verði
rifið eða selt í því ástandi sem húsið
er. Brýnt er að koma starfsemi Ráð-
hússins í nýtt og hentugra húsnæði
til framtíðar.“
Samkvæmt heimildum Skessu-
horns hefur sveitarfélaginu boð-
ist til kaups hús Arionbanka við
Digranesgötu og hefur umræða um
flutning starfsemi Ráðhúss þangað
átt sér stað. Engin ákvörðun hef-
ur þó verið tekin í sveitarstjórn um
slíkt.
Yfirlýsing frá
sveitarfélaginu
Síðastliðinn mánudag sendi Borg-
arbyggð frá sér yfirlýsingu vegna
rakaskemmda í Ráðhúsinu. „Í lok
síðasta árs skilaði verkfræðistof-
an EFLA skýrslu vegna úttektar á
neðstu hæð Ráðhússins með það að
markmiði að meta núverandi ástand
á ytra byrði hússins og kanna inn-
vist, þar á meðal athuga hvort raka-
vandamál væru til staðar. Niður-
staða úttektar gaf til kynna að raka-
skemmdir er að finna í húsnæðinu
og því nauðsynlegt að bregðast við.
Á 549. fundi byggðarráðs var er-
indið tekið fyrir og ákveðið að hefja
endurbætur á Ráðhúsinu þegar í
stað. Framkvæmdir hófust í síðustu
viku og í ljós kom að rakaskemmd-
irnar eru umfangsmeiri en upphaf-
lega var talið og því ljóst að end-
urbæturnar koma til með að taka
lengri tíma en áætlað var í fyrstu.
Byggðarráð tók málið til umfjöll-
unar á 550. fundi þann 21. janú-
ar s.l. þar sem ákveðið var að fela
sveitarstjóra að finna tímabundið
húsnæði fyrir hluta eða alla starf-
semi Ráðhússins.“
Þá segir að einungis hafi ver-
ið gerð úttekt á afmörkuðu svæði
Ráðhússins sem hefur verið afgirt á
meðan unnið er að frekari úrbótum.
„Starfsstöðvar starfsmanna í ná-
lægð við umrætt svæði voru færðar,
öryggi og heilsa starfsmanna hefur
og verður ávallt í fyrirrúmi. Það er
mat sérfræðinga að einungis þurfi
að flytja hluta af starfseminni úr
Ráðhúsinu og þá er einungis um að
ræða starfsstöðvar sem eru í nálægð
við framkvæmdarsvæðið. Á þessum
tímapunkti máls liggja ekki fyrir
framtíðaráform Ráðhússins. Brýnt
er að klára að gera heildarúttekt
á öllu húsnæðinu áður en ákvörð-
un er tekin um framtíðarstaðsetn-
ingu þess. Engin áform eru um að
rífa húsið, heldur er fullnægjandi að
fara í endurbætur á húsinu. Byggð-
arráð ákvað á fundi sínum 21. janú-
ar sl. að ljúka við úttekt og í fram-
haldinu skoða viðeigandi aðgerðir
í kjölfarið. Ekki hefur verið ákveð-
ið hvert hluti af starfseminni flyst á
meðan unnið er að endurbótum.“
mm
Guðmundur Ingi Guðbrandsson,
umhverfis- og auðlindaráðherra,
mælti á Alþingi í síðustu viku fyr-
ir frumvarpi um vernd, velferð og
veiðar á villtum fuglum og villtum
spendýrum. Um er að ræða heild-
arendurskoðun laga, sem kveðið er
á um í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórn-
arinnar. Umhverfi málaflokksins
hefur tekið töluverðum breyting-
um frá því núverandi löggjöf tók
gildi fyrir 25 árum, til að mynda
með aukinni áherslu á umhverfis-
og loftslagsmál, breyttum skuld-
bindingum Íslands á grundvelli al-
þjóðasamninga og fjölgun ferða-
manna sem vilja skoða náttúru og
dýralíf landsins.
Meðal helstu áherslna í frum-
varpinu sem ráðherra mælti fyrir
er aukin dýravernd og dýravelferð
og alhliða vernd villtra fugla, villtra
spendýra og helstu búsvæða þeirra.
Eins er kveðið á um lögfestingu
válista vegna villtra fugla og villtra
spendýra og að sérstakar stjórnun-
ar- og verndaráætlanir verði gerðar
fyrir alla helstu stofna og tegundir
villtra dýra. Ákvarðanir um vernd
og veiðar byggi þannig á vísinda-
legum og faglegum forsendum, en
gerð áætlananna verður samvinnu-
verkefni Náttúrufræðistofnunar Ís-
lands og Umhverfisstofnunar og
eiga þær að liggja til grundvallar
ákvarðanatöku í málaflokknum.
Í frumvarpinu er kveðið á um að
allar veiðar á villtum dýrum, þ.m.t.
hlunnindaveiðar, eigi að vera sjálf-
bærar, mælt er fyrir um virka veiði-
stjórnun og veiðieftirlit á landinu
öllu og að tekið verði með mark-
vissum hætti á tjóni sem villt dýr
og fuglar valdi. Þá er þar komið
til móts við sérstakar þarfir veiði-
manna sem bundnir eru við hjóla-
stól.
mm
Lilja D Alfreðsdóttir mennta- og
menningarmálaráðherra hefur
ákveðið að hefja skuli undirbún-
ing að tilfærslu starfsmenntanáms
í garðyrkju og skyldum greinum
frá Landbúnaðarháskóla Íslands
á Reykjum í Ölfusi og undir yfir-
stjórn og ábyrgð Fjölbrautaskóla
Suðurlands. Þessi ákvörðun er tek-
in að fenginni niðurstöðu starfs-
hóps sem fjallaði um starfsmennt-
anám við LbhÍ. Samhliða er lögð
áhersla á að efla rannsóknir og ný-
sköpun á vegum Landbúnaðarhá-
skólans.
„Til að vinna að þessum áform-
um er stefnt að því að gera sérstak-
an þríhliða samning á milli Land-
búnaðarháskóla Íslands, Fjölbraut-
arskóla Suðurlands og Mennta- og
menningarmálaáðuneytisins, og er
undirstrikað að tilfærslan hafi ekki
áhrif á nemendur skólans,“ segir í
tilkynningu. mm
Talsverðrar óánægja hefur gætt um stöðu starfsmenntanáms í garðyrkju. Nú
hyggst ráðherra færa námið undir ábyrgð Fjölbrautaskóla Suðurlands. Ljósm. úr
safni af hvítkálsuppskeru á Flúðum.
Starfsmenntanám í garðyrkju
frá LbhÍ til FS
Hópur skiptinema mættur á Bifröst
Mælti fyrir frum-
varpi um villt dýr
Miklar rakaskemmdir á Ráðhúsi Borgarbyggðar