Skessuhorn - 03.02.2021, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 3. FEbRúAR 20218
Aflatölur fyrir
Vesturland
23. - 29. janúar
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu
Akranes: 2 bátur.
Heildarlöndun: 11.664 kg.
Mestur afli: Eskey ÓF-80:
11.638 kg. í einni löndun.
Arnarstapi: 3 bátar.
Heildarlöndun: 18.394 kg.
Mestur afli: Kristinn
HU-812: 14.697 kg. í tveim-
ur löndunum.
Grundarfjörður: 8 bátar.
Heildarlöndun: 419.193
kg.
Mestur afli: Sigurborg
SH-12: 83.618 kg. í einni
löndun.
Ólafsvík: 11 bátar.
Heildarlöndun: 108.294
kg.
Mestur afli: Ólafur bjarna-
son SH-137: 29.978 kg. í
þremur löndunum.
Rif: 17 bátar.
Heildarlöndun: 481.454
kg.
Mestur afli: Rifsnes SH-44:
125.999 kg. í tveimur lönd-
unum.
Stykkishólmur: 4 bátar.
Heildarlöndun: 8.179 kg.
Mestur afli: Fjóla SH-7:
3.040 kg. í fimm löndunum.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Tjaldur SH-270 - RIF:
88.339 kg. 26. jan.
2. Sigurborg SH-12 -
GRU: 83.618 kg. 25. jan.
3. Rifsnes SH-44 - RIF:
75.807 kg. 28. jan.
4. Hringur SH-153 - GRU:
70.404 kg. 27. jan.
5. Farsæll SH-30 - GRU:
66.510 kg. 26. jan.
-frg
Svínaði
á lögguna
VESTURLAND: Ökumað-
ur sem ók Innnesveg ók í veg
fyrir lögreglumenn á eftir-
litsferð á gatnamótum Akra-
fjallsvegar og Innnesveg-
ar. Þar sem ökumaður lög-
reglubifreiðarinnar þurfti að
hemla var það metið svo að
hinn ökumaðurinn hefði ekki
virt biðskyldu. Sá neitaði og
sagðist telja að hann hefði
ekki valdið því að lögreglu-
maðurinn þurfti að hemla.
Hann hlaut engu að síður 30
þúsund krónur í sekt. -frg
Vélsleðaslys við
Stóra Kamb
SNÆFELLSBÆR: Síðdeg-
is á föstudag barst Neyðar-
línu tilkynning um vélsleða-
slys við bæinn Stóra Kamb í
Snæfellsbæ. Það hafði 12 ára
drengur ekið vélsleða ofan í
skurð með þeim afleiðingum
að hann slasaðist á fæti og
mjöðm. Lögregla og sjúkra-
lið kom á staðinn og ósk-
aði læknir eftir þyrlu Land-
helgisgæslunnar til þess að
sækja drenginn. Drengurinn
var vel búinn, með hjálm og
brynju en það reyndist ekki
nóg til að koma í veg fyrir
meiðsli. -frg
Dóttir tefst á
Háahnjúk
AKRANES: Um kl. 20:25 á
mánudagskvöld barst Neyð-
arlínu tilkynning frá föður
sem hafði áhyggjur af dóttur
sinni. Dóttirin hafði gengið
á Háahnjúk á Akrafjalli, lagt
af stað um kl. 16:00 og ætlað
að koma heim um kl. 18:00.
Faðirinn náði ekki símasam-
bandi við dóttur sína og fór
því lögregla að Akrafjalli
og þegar þeir komu á stað-
inn sást ljós í hlíðinni fyrir
ofan. Kom hún síðan af fjalli
heil á húfi. Afar mikilvægt er
að þegar fólk er einsamalt á
gönguferðum utan alfara-
leiða verði það að vera með
síma svo hægt sé að ná sam-
bandi við fólkið eða finna
það ef slys ber að höndum.
-frg
Íbúum fækkar
milli mánaða
VESTURLAND: Sam-
kvæmt nýjum tölum Þjóð-
skrár fækkaði íbúum á Vest-
urlandi um ellefu frá 1. janú-
ar til 1. febrúar á þessu ári,
en það jafngildir tæplega
0,1% fækkun. Íbúum á Akra-
nesi fjölgaði um 25 í nýliðn-
um mánuði og í Hvalfjarðar-
sveit um 13. Íbúum í borg-
arbyggð fækkaði hins veg-
ar um 21 í janúar, í Grund-
arfirði fækkaði um 14, tíu í
Dalabyggð og sjö í Stykkis-
hólmi.
-mm
Versluninni og veitingastaðnum baulunni
í borgarfirði var nú um mánaðamótin lok-
að tímabundið. Skeljungur keypti stað-
inn í byrjun síðasta árs og var markmiðið
með kaupunum að þétta stöðvanet Ork-
unnar um landið, eins og fram kom í til-
kynningu. Að sögn Karenar Rúnarsdótt-
ur, framkvæmdastjóra einstaklingssviðs
hjá Skeljungi, er stefnt að opnun staðarins
að nýju með vorinu þegar umferð fer að
aukast aftur. Karen segir ekki liggja fyrir
hvort fyrirtækið muni sjálft reka staðinn
eftir enduropnun eða bjóða áhugasömum
rekstraraðila að taka við. Áfram verður
hægt að fá eldsneyti við bauluna þrátt fyr-
ir lokun verslunarinnar. Næstu mánuðina
verður að sögn Karenar unnið að ýmsum
endurbótum og lagfæringum í og við hús-
ið. Meðal annars verður leiksvæðið betr-
umbætt. mm
Talsvert frost hefur verið að und-
anförnu. Meðfylgjandi mynd var
tekin í Ólafsvíkurhöfn síðastlið-
inn miðvikudag. Á henni má sjá að
krapahröngl leggur nú yfir en þarna
eru bátarnir Indriði Kristins bA frá
Tálknafirði sem hefur undanfarið
róið til fiskar og lagt afla sínum upp
í Ólafsvík. Indriði er einn af stærri
„smábátum“ í íslenska flotanum.
Um borð í honum er beitningar-
vél og er hann skráður 29,63 tonn
og lengdin er 13,2 metrar. Aftan
við Indriða í heimahöfn sinni er svo
dragnótarbáturinn Guðmundur
Jensson SH sem er 242,4 tonn að
stærð og 31,35 metri á lengd. At-
hygli vekur að brúin á báðum bát-
unum er álíka hátt yfir sjávarmáli,
þrátt fyrir skráðan tonnafjölda. af
Mjög góð aflabrögð voru í öll veiðarfæri um helgina hjá
bátum sem gera út frá höfnum í Snæfellsbæ. Sem dæmi
landaði Hafdís SK, sem er beitningarvélarbátur, á sunnu-
dagskvöldið 25 tonnum eftir eina lögn.
Á Arnarstapa var landað um helgina 135 tonnum af sex
línubátum sem mokfiskuðu og var nóg um að vera á hafna-
svæðinu þar, enda höfnin ekki stór og því þröngt á þingi
þegar margir leggja að á sama tíma. Aðeins er einn lönd-
unarkrani og þurfa sjómenn því að sýna biðlund uns röðin
kemur að þeim í löndun. Á meðfylgjandi mynd er Em-
anúel Magnússon skipstjóri á Óla G GK ásamt skipverj-
anum Senjor að landa afla dagsins sem var um ellefu tonn
af stórþorski.
af
„Gjafmildi Kaupfélags Skagfirð-
inga við hjálparstofnanir ger-
ir okkur kleift að úthluta matvæl-
um tvisvar í febrúarmánuði, þriðju-
daginn 9. febrúar og miðvikudag-
inn 24. febrúar frá kl 12-16,“ seg-
ir í tilkynningu frá Mæðrastyrks-
nefnd Akraness. úthlutunin verður
nú í Hb Granda húsinu við báru-
götu 8-10.
Umsækjendur geta sótt um í
síma 859-3000 og í 859-3200 og
á netfanginu maedrastyrkurakra-
nes@gmail.com Símatími var í gær,
þriðjudag, og í dag miðvikudaginn
3. febrúar frá kl. 11-13 báða dag-
ana. „Mikilvægt er að sækja um
á auglýstum tíma því við þurfum
að panta matinn fimmtudaginn 4.
febrúar. Það er hægt að skrá sig í
báðar úthlutanirnar. Einungis nýir
umsækjendur þurfa að skila inn
gögnum að þessu sinni; búsetuvott-
orði og staðgreiðsluskrá.“
Styrktareikningur Mæðrastyrks-
nefndar er: 0552-14-402048 kt:
411276-0829. „Við þiggjum líka
glaðar matvörur ef einhver fyrir-
tæki geti styrkt okkur með það.
Ath. við gefum út reikning fyrir
bókhaldið.“
mm/ Ljósm. jho.
Baulunni lokað tímabundið
Mokveiði hjá
línubátunum
Litli og stóri í Ólafsvíkurhöfn
Tvær febrúarúthlutanir
Mæðrastyrksnefndar