Skessuhorn


Skessuhorn - 03.02.2021, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 03.02.2021, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 3. FEbRúAR 202116 Við Háskólann á bifröst fór í janú- ar af stað nýtt nám í háskólagátt en því lýkur í byrjun ágúst. Nám- ið er ætlað fólki af erlendum upp- runa sem búsett er hér á landi og eru fjörutíu einstaklingar innritað- ir nú í upphafi. Uppruni fólksins er víða, en nemendur koma úr öllum heimsálfum, utan Eyjaálfu. Fjórir af fjörutíu stunda námið í staðnámi á bifröst, en aðrir eru í fjarnámi en sækja vinnuhelgar á bifröst. Um er að ræða spegilmynd sambæri- legs náms sem fer fram á íslensku, sambærilegt að öðru leyti en því að kennt verður á ensku, en áhersla lögð á íslenskunám. Í stað hefð- bundinna íslenskuáfanga taka nem- endur íslensku sem annað tungu- mál og í stað dönskuáfanga geta nemendur valið um að bæta við sig áfanga í ensku- og/eða áfanga í íslensku sem öðru máli. Náms- tilhögun er sniðin að átaki stjórn- valda; „Nám er tækifæri“ en mark- mið Vinnumálastofnunar og fleiri er að koma til móts við atvinnuleit- endur og hvetja þá til þess að sækja sér formlega menntun til að styrkja stöðu sína á vinnumarkaði. Gríð- arlegt atvinnuleysi er nú í landinu, en mest er það í hópi fólks af er- lendu bergi brotið sem margt starf- aði við ferðaþjónustu fyrir hrun hennar vegna kóvid. Leifur Finn- bogason heldur utan um háskóla- gátt á ensku á bifröst. Sjálfur lauk hann bA prófi í Hagfræði, heim- speki og stjórnmálafræði (HHS) í staðnámi frá skólanum síðastliðið vor og réðist til starfa við skólann í haust. Leifur á rætur sínar á Vestur- landi, fæddur og uppalinn í Hítar- dal á Mýrum. blaðamaður Skessu- horns ræddi við Leif um þetta nýja námsframboð sem mun án nokkurs vafa opna dyr fólki fólk af erlendum uppruna sem búsett er hér á landi og vill hvergi annarsstaðar búa. Kúnst að koma upplýs- ingum til markhópsins „Stofnun háskólagáttar á ensku átti sér skamman aðdraganda hér á bifröst, en farið var hratt í skipu- lagningu námsins á haustmánuð- um vegna atvinnuástandsins og í ljósi þess að hátt í 30 þúsund ein- staklingar af erlendu bergi brotnir eru án atvinnu hér á landi. Þörfin er því mikil,“ segir Leifur. „Í upp- hafi var aðal áskorun okkar að ná með skömmum fyrirvara að koma upplýsingum um væntanlegt náms- framboð inn í hóp útlendinga sem búsettur er hér á landi. Fæstir þeirra lesa eða skilja íslenska fjöl- miðla og því fórum við þá leið að kynna væntanlegt nám inn á ýms- um íbúasíðum á Facebook og láta þetta fréttast. Þannig tókst okkur á einungis örfáum vikum að fá um 70 umsóknir. 40 þeirra uppfylltu inn- gönguskilyrði og hófu nám nú í byrjun janúar,“ segir Leifur. Lykill að frekara námi Öllum nemendum var boðið að búa á bifröst á meðan þeir stunduðu þetta nýja nám og nýtti tíundi hver sér það. „Kannski er hentugt núna í ljósi sóttvarna að flestir eru í fjar- námi en í framtíðinni, ef þetta nám verður áfram í boði, má gera ráð fyrir að fleiri þiggi að búa á bifröst og nýta sér kosti staðnáms. Allir okkar nemenda, utan einn, eru hins vegar búsettir hér á landi og koma raunar úr öllum landshlutum. Við erum síðan í samstarfi við Vinnu- málastofnun því allir sem hafa ver- ið án atvinnu í sex mánuði eða lengur geta stundað þetta nám án þess að atvinnuleysisbætur þeirra skerðist. Það er frábært að þessu fólki bjóðist slíkt tækifæri, ekki síst vegna þess að þetta er eina aðfar- arnámið að grunnnámi í háskóla sem því býðst hér á landi þar sem kennt er á ensku. Markmið okkar er að allt þetta fólk muni að námi loknu getað lesið íslensku, hlust- að á hana til gagns og tekið virk- an þátt í náminu. Nemendur okk- ar verða þannig betur búnir undir þátttöku á vinnumarkaðinum þegar hann hressist á ný, en einnig getur það nýtt háskólagátt á ensku til að innrita sig til háskólanáms hjá okk- ur. Þar sem námið er sniðið til að undirbúa fólk undir háskólanám á bifröst geta nemendur t.a.m. ekki farið í líffræðinám að námi loknu, þeir væru ekki undirbúnir undir slíkt nám, en vonandi komast þeir að í öðrum námsleiðum hérlendis sem viðurkenna háskólagátt á bif- röst sem nægan undirbúning fyrir viðkomandi nám. Eina sem við get- um því lofað þessu fólki nú, er að námið opnar möguleika til frekara námi á bifröst.“ Íslenskunám í öndvegi Lögð er mikil áhersla á kennslu í ís- lensku í háskólagátt á ensku á bif- röst. Kennarar eru þær Ólína Þor- varðardóttir doktor í íslenskum bókmenntum og þjóðfræðum og Sigríður Kristinsdóttir aðjúnkt við HÍ. „Við flokkum nemendur í þrjá flokka eftir þekkingu þeirra í ís- lensku. Það er gert til að sem flestir komist sem lengst í íslenskunni og öðlist betri færni í málinu. En al- mennt á nám í háskólagátt að búa nemendur undir nám á háskóla- stigi í greinum hug- og félagsvís- inda og veita undirstöðumenntun á framhaldsskólastigi og auka sam- keppnishæfni þeirra á vinnumark- aði. Í náminu er auk íslenskunnar lögð höfuðáhersla á færni nemenda í grunngreinum svo sem ensku og stærðfræði.“ Leifur segir að miðað sé við að nemendur sem hefji nám í háskólagátt á ensku séu með ein- hverja formlega menntun á fram- haldsskólastigi frá heimalandi sínu og/eða íslenskum skólum. Ef um- sækjandi uppfyllir ekki alveg inn- tökuskilyrði, en býr yfir töluverðri starfsreynslu, gefst viðkomandi kostur á að brúa bilið með því að leggja fram niðurstöður raunfærni- mats þar sem reynsla er metin til jafns við menntun. Skipulagt lotunám Námið í háskólagátt í ensku er skipulagt í lotum og verða tvær lot- ur nú á vorönn og tvær á sumarönn og lýkur í byrjun ágúst eins og fyrr segir. Hver lota stendur í sjö vikur og er byggð upp þannig að kennt er í sex vikur og sjöunda vika er náms- matsvika. Þó eru nokkur námskeið, eðlis þeirra vegna, ýmist kennd í styttri eða lengri lotum. Á vorönn er forlota sem stendur yfir í rúma viku í upphafi annar og eru hún ein- mitt framundan núna. Að sögn Leifs auðveldar lotukerfið nemendum að einbeita sér að þeim námsgreinum sem þeir taka hverju sinni og álagið verður jafnara yfir kennslutímabilið. mm Fjörutíu nemendur innritaðir í nýja háskólagátt í ensku Háskólinn á Bifröst kemur til móts við fjölda fólks sem nú er án vinnu Bifröst og umhverfið í Norðurárdal skartaði sínu fegursta síðastliðinn fimmtudag í björtu en köldu miðsvetrarveðri. Hér er að hefjast kennslustund. Sævar Ari Finnbogason kennari lengst til hægri. Þrír af fjórum staðnemendum eru viðstaddir, en flestir nemendur eru heima hjá sér í fjarnámi. Leifur Finnbogason stendur fjær. Ljósm. mm. Áhugasamir nemendur í upphafi kennslustundar. Ljósm. mm. Íslenskukennarar Háskólagáttar, f.h. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir og Sigríður Kristinsdóttur, ásamt Leifi Finnbogasyni. Þarna var verið að framkvæma munnleg stöðupróf í íslensku til að hver og einn fái íslenskunám við hæfi. Ljósm. Bifröst.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.