Skessuhorn


Skessuhorn - 03.02.2021, Page 17

Skessuhorn - 03.02.2021, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 3. FEbRúAR 2021 17 Verslun okkar á Akranesi er lokuð laugardaginn 6. febrúar vegna framkvæmda. Biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kanna að valda. Skagamenn athugið Leifur Finnbogason umsjónar- maður háskólagáttar á ensku við Háskólann á bifröst er með bA próf í HHS frá skólanum og stefnir síðar meir á masterspróf í alþjóða- samskiptum. Hann er uppalinn í Hítar dal á Mýrum, fæddur 1989 og á tvær yngri systur. Foreldrar hans eru Finnbogi Leifsson bóndi og sveitarstjórnarmaður og Erla Dögg Ármannsdóttir bókari. Hítardalur á Mýrum er í samnefndum falleg- um dal, langt upp til fjalla og sam- göngulega nokkuð úr þjóðbraut. Leifur segir að staðsetningin hafi bæði kosti og galla. Kostirnir séu náttúrufegurð og friðsæld sem felst í afar lítilli umferð, en gallarnir séu fyrst og fremst þeir að fjarskipta- fyrirtæki hafa ekki séð hag sínum borgið með að þjónusta bæina með viðunandi sjónvarps- og símasam- bandi. „Símasambandsleysi komst í hámæli eftir að stóra skriðan féll í dalnum sumarið 2018. Þá komu margir á svæðið og það virtist koma öllum í opna skjöldu að það væri ekkert símasamband! Samt hefur ítrekað verið bent á það og pabbi lét meðal annars einhverju sinni þau boð út ganga að betra væri að senda honum reykmerki, en reyna að ná í hann í síma eða senda SMS skilaboð. Reyndar var eftir að skriðan féll sett upp Tetra stöð til bráðabirgða, en símasam- band er ennþá nákvæmlega jafn lé- legt og það hefur verið frá upphafi byggðar. Það er bót í máli að net- samband er viðunandi og hægt að streyma fréttunum á RUV í gegn- um það og pabbi getur tekið þátt í streymisfundum sveitarstjórnar. Í rauninni er Hítardalur afskekktur, en samt eiginlega svona skemmti- lega afskekktur. Þetta er falleg sveit sem fáir þekkja og því er friðsælt og það hefur vissulega sína kosti. Engu að síður er heiman frá og til Reykjavíkur ekki nema hálfs annars tíma akstur og það telst ekki langur ferðatími og ef maður lítur þann- ig á málið þá er Hítardalur ekki af- skekktur.“ Framhaldsskólagangan í Reykjavík Leifur fór allan grunnskólaaldurinn með skólabíl í borgarnes en fram- haldsnámið var tekið í Mennta- skólanum við Hamrahlíð. „Ég er elstur systkinanna. Þegar ég byrj- aði í námi í Reykjavík keyptu for- eldrar mínir íbúð fyrir sunnan og mamma flutti þangað og annaðist okkur systkinin þegar við vorum komin þangað í nám. Eftir nokk- ur ár skellti hún sér svo í nám með- fram vinnu. Pabbi var heima og sá um búið og sinnti félagsmálun- um, en hann er nú búinn að sitja nánast samfellt í sveitarstjórn frá 1984. Mamma fer svo í sveitina til hans um helgar, allavega þegar er fært. Hún er nú búin að ljúka námi sem viðurkenndur bókari og starf- ar hjá fyrirtæki fyrir sunnan. Pabbi er hins vegar áfram með kindur en hefur fækkað þeim talsvert upp á síðkastið, eru núna 300 en voru um 600 þegar mest var.“ Stefnir áfram á nám Eftir að framhaldsskóla lauk prófaði Leifur að læra heimspeki við Há- skóla Íslands en hætti í því námi og vann í nokkur ár fyrir sér í Reykja- vík. Fór til náms á bifröst 2017 og hefur búið þar síðan. „HHS námið á bifröst er gagnlegt nám og hefur nýst mér ágætlega við þessa vinnu við háskólagáttina, en í bA ritgerð- inni fjallaði ég um Lánasjóð náms- manna,“ segir Leifur en markmið hans er að taka mastersnám í al- þjóðasamskiptum við Háskóla Ís- lands. „Ég ætlaði að vera farinn í það nám núna en frestaði því þar sem mér var boðið þetta starf hér á bifröst. Ég var fljótur að þiggja það, enda er ekki eftirsóknarvert að flytja í kóvið í Reykjavík við þær aðstæður sem þar hafa verið.“ Ánægður með áherslur nýs rektors Leifur er ánægður með þær áherslur sem Margrét Jónsdóttir Njarðvík rektor er að leggja á bif- röst og stefnumótun sem þar er í gangi. „Ég er ánægður með að lögð verði áherslu á að fjölga íbúum á bifröst og að fá fólk hingað á svæð- ið til búsetu. Sjálfum fannst mér það ögrandi og skemmtilegt að fara út fyrir þægindarammann og kynnast sjálfum mér betur með því að flytja á bifröst. Að kynnast öðr- um íbúum er einnig ákveðinn skóli, því þegar maður vinnur hópverk- efni með Íslendingum jafnt og út- lendingum kynnist maður ólíkum siðum og venjum. Lærdómsum- hverfið í svona skólaþorpum er því skóli út af fyrir sig. Vissulega getur það verið þægilegt að stunda fjar- nám, en búseta á svona skólacam- pus gefur manni meira. Ekki sakar að hér í Norðurárdal er umhverf- ið fallegt og friðsæld mikil. Nú eft- ir að ég sjálfur er farinn að starfa við skólann finnst mér ekki síður skemmtilegt að hjálpa erlendu fólki á Íslandi að aðlagast landinu okkar betur. Þetta er ég sérlega ánægður með í þeim áherslum sem nýr rekt- or er að koma með. Helstu ógn- anirnar fyrir bifröst núna eru þær að fólk sem hér hefur búið og ver- ið í skóla hefur gjarnan starfað eitt- hvað samhliða náminu til að kljúfa kostnaðarhliðina og flestir þá við ferðaþjónustu. Nú eru takmörkuð atvinnutækifæri þar vegna veirunn- ar. Miðað við húsakostinn á bifröst gætu hæglega búið þar 350-400 manns fleiri en gera í dag. Það er því verkefni samfélagsins að kynna kosti þess að búa á bifröst, hvort sem það er til að stunda hér nám, fjarvinnu eða vinnu á svæðinu. Það styrkir svo stoðir leik- og grunn- skóla, verslunar og annarrar þjón- ustu við íbúa í héraðinu – og all- ir hagnast. Samfélagið hér er þétt og allir þekkjast, ekki of fjölmennt en ekki of fámennt heldur,“ segir Leifur Finnbogason að endingu. mm Segir spennandi að koma að skipulagningu náms fyrir útlendinga Leifur Finnbogason umsjónarmaður háskólagáttar á ensku á Bifröst. Ljósm. James Einar Becker.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.