Skessuhorn - 03.02.2021, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 3. FEbRúAR 2021 31
VÍS er nýr bakhjarl Körfuknatt-
leikssambands Íslands (KKÍ). „Þrátt
fyrir óvissu vegna alheimsfaraldurs-
ins er það gleðiefni að framundan
sé bikarkeppni KKÍ en þá verður
barist um VÍS bikarinn. Því er ljóst
að körfuboltinn verður rauðari en
hann hefur nokkurn tímann verið,“
segir í tilkynningu frá KKÍ og VÍS.
mm
Allir leikir íslenska karlalandsliðs-
ins í fótbolta frá árinu 2022 til og
með 2028 verða sýndir á streymis-
veitunni Viaplay. Frá því var greint
á fréttavef Ríkisútvarpsins að nor-
ræna fjölmiðlasamsteypan NENT
Group hafi samið við UEFA, Evr-
ópska knattspyrnusambandið, og
þar með tryggt sér sýningarrétt á
öllum leikjum íslenska karlalands-
liðsins í fótbolta.
RúV hefur undanfarið sýnt alla
leiki íslenska karlalandsliðsins í
undankeppni EM og HM en Stöð
2 Sport hefur haft sýningarrétt á
Þjóðadeild Evrópu. Leikir Íslands
í undankeppni fyrir HM 2022 og
HM 2022 verða þó sýndir á RúV
þar sem RúV var búið að tryggja
sýningarrétt á þeim leikjum. Stöð 2
Sport er enn með sýningarréttinn
á EM 2020 sem átti að fara fram
síðasta sumar en var frestað vegna
COVID-19 þar til næsta sumar.
RúV hefur eftir Anders Jens-
en, forstjóra og framkvæmdastjóra
NENT Group, að Viaplay vilji vera
leiðandi íþróttastöð í þeim lönd-
um sem veitan sendir út í. Viaplay
er ekki aðgengilegt á myndlyklum
en með áskrift er hægt að streyma
efni þeirra í snjallsjónvarp, í gegn-
um Apple TV eða sambærilegan
búnað eða í símum og tölvum, ekki
ósvipað og streymisveitan Netflix.
Þetta er í fyrsta sinn sem UEFA
gerir svona einkaréttarsamning við
streymisveitu. Samkvæmt netsíðu
Viaplay kostar mánaðaráskrift af
efni streymisveitunnar 1.599 krón-
ur með íþróttum.
arg
Nóg var að gera hjá
Skallagrímsmönnum um
helgina en liðið mætti
Sindra á föstudaginn og
Vestra á sunnudag í 1.
deild karla í körfubolta.
Skallagrímur tapaði
stórt, 92-64, þegar lið-
ið sóttir Sindra á heim á
Höfn. borgnesingar eltu
heimamenn allan leikinn
og strax eftir fimm mín-
útur skildu leiðir þegar heimamenn
voru komnir sex stigum yfir, 14-8.
Þegar fyrsta leikhluta lauk var Sindri
13 stiga forystu 27-14. borgnesing-
ar náðu aldrei að minnka muninn
í meira en níu stig í öðrum leik-
hluta og þegar gengið var til bún-
ingsklefa í hálfleik var staðan 52-31
heimamönnum í vil. Í síðari hálfleik
var lítið að frétta, Sindri hélt áfram
að skilja sig betur frá Skallagríms-
mönnum og lokatölur 92-64.
Í liði Skallagríms var Nebojsa
Knezevic stigahæstur með 17 stig,
Kristófer Gíslason skoraði tíu stig
og tók fimm fráköst og Davíð Guð-
mundsson skoraði níu stig en aðr-
ir skoruðu minna. Í liði Sindra var
Gerard blat baeza stigahæstur með
24 stig og sex fráköst, Gerald Rob-
inson skoraði 16 stig og tók 14 frá-
köst og Gísli Þórarinn Hallsson
skoraði 15 stig en aðrir skoruðu
minna.
Töpuðu á heimavelli
Skallagrímur kom sterkari til leiks
þegar liðið mætti Vestra í borgar-
nesi á sunnudag, en það dugði ekki
til og töpuðu borgnesingar með
þremur stigum, 84-81. Jafnræði
var með liðunum í fyrsta leikhluta
og voru heimamenn þremur stig-
um yfir í lok leikhlutans. Í öðrum
leikhluta náðu gestirnir að kom-
ast í 13 stiga forystu um
tíma en heimamenn voru
fljótir að bregðast við og
þegar flautað var til hálf-
leiks var munurinn fimm
stig, 52-47 fyrir gestina.
Vestri náði að halda for-
ystunni í þriðja leikhluta
en heimamenn gættu þess
að hleypa þeim ekki of
langt framúr sér og stað-
an 66-62 þegar lokaleik-
hlutinn hófst. Lítið markvert gerð-
ist eftir það, gestirnir leiddu áfram
en borgnesingar eltu stíft og loka-
tölur 84-81 gestunum í vil.
Í liði Skallagríms var Mustapha
Traore atkvæðamestur með 26
stig og sjö fráköst, Kristófer Gísla-
son skoraði 13 stig og Davíð Guð-
mundsson og Marinó Þór Pálma-
son skoruðu tólf stig hvor, en aðrir
skoruðu minna. Í liði Vestra voru
Arnar Smári bjarnason og Ken-Jah
bosley atkvæðamestir með 21 stig
hvor.
Skallagrímur leikur næst föstu-
daginn 12. febrúar þegar liðið sæk-
ir Álftanes heim.
arg/ Ljósm. Sindri
Snæfell tapaði með átta stigum gegn
Fjölni þegar liðin mættust í Stykk-
ishólmi í Domino‘s deild kvenna í
körfubolta síðastliðinn miðviku-
dag. Fjölniskonur komu sterkar til
leiks og voru komnar fjórum stig-
um yfir í lok fyrsta leikhluta, 22-18.
Ekkert markvert átti sér stað í öðr-
um leikhluta og Fjölnir hélt áfram
að leiða og þegar haldið var til bún-
ingsklefa í hléinu voru þær með 40
stig gegn 32. Eftir hléið lifnaði að-
eins meira við Snæfellskonum og
þær náðu að saxa vel á forskot gest-
anna en komust aldrei nær þeim en
tvö stig, 48-46 og þegar leiknum
lauk var staðan 74-66 fyrir Fjölni.
Í liði Snæfells var Haiden Denise
Palmer með 15 stig, níu stoðsend-
ingar og sex fráköst, Anna Soffía
Lárusdóttir skoraði einnig 15 stig
auk þess að taka sex fráköst, Emese
Vida skoraði ellefu stig og tók 17
fráköst, Tinna Guðrún Alexand-
ersdóttir skoraði einnig ellefu stig,
Kamilé berenyté var með sex stig,
Rebekka Rán Karlsdóttir skoraði
fimm stig og Dagný Inga Magnús-
dóttir skoraði þrjú stig.
Ariel Hearn átti góðan leik með
Fjölni og skoraði 30 stig, tók 13
fráköst og gaf sex stoðsendingar,
Fanney Ragnarsdóttir skoraði 14
stig, Lina Pikciuté og Margrét Ósk
Einarsdóttir skoruðu átta stig hvor,
Stefanía Ósk Ólafsdóttir skoraði
fimm stig, Sara Carina Vaz Djassi
skoraði fjögur stig og tók átta frá-
köst, Emma Sóldís Svan Hjördís-
ardóttir skoraði þrjú stig og Heiða
Hlín björnsdóttir skoraði tvö.
Snæfell er nú í sjötta sæti deild-
arinnar með fjögur stig, eins og
breiðablik. Nú er landsleikjahlé og
verður næsti leikur Snæfells gegn
Keflavík í Stykkishólmi 17. febrúar.
arg
Skallagrímur tapaði fyrir fyr-
ir Haukum þegar liðin mættust í
borgarnesi á miðvikudagskvöldið
í Domino‘s deild kvenna í körfu-
bolta. Skallagrímskonur kom-
ust yfir á fyrstu tveimur mínútum
leiksins en sú forysta entist stutt og
eftir fjórar mínútur voru Hafnfirð-
ingar búnir að jafna. Haukar tóku
þá alveg við stjórninni á vellinum
og voru komnar með átta stiga for-
ystu í lok fyrsta leikhluta, 19-11.
Skallagrímskonur eltu stíft í öðr-
um leikhluta en náðu þó aldrei að
jafna og þegar gengið var til klefa í
hálfleik voru gestirnir með 32 stig
gegn 25. Efti hléið gáfu Haukakon-
ur allt í leikinn og voru þær 16 stig-
um yfir þegar þriðji leikhluti klár-
aðist, 54-38. Í lokaleikhlutanum
sóttu Skallagrímskonur grimmt en
Hakuar gáfu ekkert eftir og héldu
yfirhöndinni allan tímann. Heima-
menn náðu að minnka muninn í tvö
stig en komust aldrei nær og loka-
tölur 65 stig gegn 59 gestunum í
vil.
Keira Robinson var stigahæst í
liðið Skallagríms með 23 stig. Ni-
kita Telesford kom þar næst með
22 stig og átta fráköst, Sigrún Sjöfn
Ámundadóttir skoraði sjö stig og
gaf fimm stoðsendingar, Maja Mic-
halska skoraði þrjú stig og tók sex
fráköst og Gunnhildur Lind Hans-
dóttir og Embla Kristínardóttir
skoruðu tvö stig hvor.
Í liði Hauka var Alyesha Lovett
atkvæðamest með 21 stig og 19 frá-
köst, Eva Margrét Kristjánsdóttir
skoraði 14 stig, bríet Sif Hinriks-
dóttir skoraði átta stig, Þóra Kristín
Jónsdóttir var með sjö stig og Irena
Sól Jónsdóttir, Lovísa björt Henn-
ingsdóttir og Rósa björk Péturs-
dóttir skoruðu fimm stig hvor.
Skallagrímur er nú í fimmta sæti
deildarinnar með sex stig. Vegna
landsleikjahlés leika Snæfellskonur
næst við KR í borgarnesi 17. febrú-
ar.
arg
Leikir karlalandsliðs-
ins í fótbolta seldir til
streymisveitu
Haiden Denise Palmer var stigahæst
Snæfellskvenna í tapi gegn Fjölni.
Ljósm. sá.
Snæfell tapaði fyrir
Fjölni á heimavelli
Keppt verður um VÍS
bikarinn í körfunni
Helgi Bjarnason
forstjóri VÍS og
Hannes S Jóns-
son formaður
KKÍ.
Skallagrímskonur. Ljósm. úr safni.
Tap gegn Haukum í Fjósinu
Skallagrímsmenn töpuðu
báðum leikjum vikunnar