Skessuhorn - 24.02.2021, Side 15
MIÐVIKUDAGUR 24. FeBRúAR 2021 15
AUGLÝSING UM SKIPULAG -
BORGARBYGGÐ
Í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér með auglýstar tillögur að nýju
deiliskipulagi í Borgarbyggð.
Deiliskipulag Munaðarnes – Engjaás.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 4. apríl 2020 að auglýsa tillögu að nýju deili-
skipulagi í Engjaási, Munaðarnesi í Borgarbyggð.
Deiliskipulagið er í landi Munaðarness og tekur til 1,8 ha svæðis. Innan þess eru skilgreindar
tvær frístundalóðir. Aðkoma að lóðum verður um Kýrholtsás sem tengist heimreið að Munaðar-
nesi (5294). Ætlunin er að skapa ramma um heildstæða og vistvæna frístundabyggð tveggja
lóða og að landnýting sé eins hagkvæm og kostur er.
Deiliskipulag íbúðarhúsa og frístundahúsa úr landi Mels í Borgarbyggð.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 10. september 2020 að auglýsa tillögu að nýju
deiliskipulagi fyrir íbúðar- og frístundahús í landi Mels í Borgarbyggð.
Deiliskipulagið er í landi Mels og tekur til íbúðarsvæðis Í5 og frístundabyggðar F131 auk opins
svæðis. Innan íbúðarsvæðis eru skilgreindar þrjár lóðir, þegar byggðar, hver lóð yfir 2,5 ha að
flatarmáli og sex frístundalóðir rúmlega 1,3 ha að flatarmáli, hver lóð.
Nes í Reykholtsdal.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 10. september 2020 að auglýsa tillögu að
deiliskipulagi í landi Ness.
Deiliskipulagið tekur til fjögurra lóða fyrir smábýli úr landi Ness og heita lóðirnar Hringanes
1-4. Allar lóðirnar eru yfir 1 ha að stærð og eru ætlaðar börnum ábúandans.
Deiliskipulag golfvallar, íbúðarhúsalóða og frístundalóða Nesi, Reykholtsdal.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 10. september 2020 að auglýsa tillögu að
deiliskipulagi í landi Ness.
Deiliskipulagið tekur til 20 ha svæðis og gerir grein fyrir 6 frístundahúsum (F109) og 9 holu
golfvelli (O29). Gert er ráð fyrir 2 íbúðarhúsalóðum og 2 lóðum fyrir frístundahús.
Deiliskipulag útleiguhúsa í landi Steðja í Borgarbyggð.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 8. október 2020 að auglýsa tillögu að nýju
deiliskipulagi í landi Steðja.
Deiliskipulagið er í landi Steðja og tekur til nýrrar lóðar þar sem skilgreindir eru fjórir bygg-
ingarreitir. Heildarstærð nýrrar lóðar verður 3.970 m2. Heimilt verður að byggja útleiguhús til
ferðaþjónustu í tengslum við núverandi starfsemi á jörðinni. Aðkoma að húsunum verður um
veginn Steðja (5160) sem tengist Borgarfjarðarbraut (50).
Ofangreindar deiliskipulagstillögur eru aðgengilegar á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgar-
byggd.is frá 27. febrúar 2021 til og með 10. apríl 2021. Ef óskað er eftir nánari kynningu á
ofangreindum tillögum þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.
Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera at-
hugasemd við auglýstar skipulagstillögur og er frestur til að skila inn athugasemdum til 10.
apríl 2021. Athugasemdum skal skila skriflega í Ráðhús Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310
Borgarnesi, b.t. skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulagsfulltrui@borgarbyggd.is .
Borgarbyggð, 27. febrúar 2021.
Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar.
Michael Nevin sendiherra Bret-
lands hér á landi, ásamt föruneyti,
sótti Borgarbyggð heim síðast-
liðinn mánudag. Sendiherrann
fundaði með sveitarstjórn Borgar-
byggðar, fulltrúum fyrirtækja í hér-
aðinu, Landbúnaðarháskóla Íslands
á Hvanneyri og fleirum. Blaða-
maður Skessuhorns settist niður
með sendiherranum á Kaffi Kyrrð
í Borgarnesi og ræddi stuttlega við
hann um tilgang heimsóknarinnar.
Sendiherrann, Michael, sagðist
í fyrsta lagi vera afskaplega feginn
að komast aðeins út úr sendiráðinu
og út fyrir borgarmörkin enda lítið
getað farið síðastliðið ár. Borgar-
byggð væri afskaplega góður staður
til að koma á og tilgangurinn með
heimsókninni væri að styrkja tengsl
þjóðanna, að auka gagnkvæman
skilning á milli þeirra og svo ein-
faldlega að sjá hvað um væri að vera
í íslensku samfélagi.
Á Íslandi búa í dag um 1.100
Bretar og þar af eru þeir hér á Vest-
urlandi um 50. Hlutverk sendi-
ráðsins er fyrst og fremst að gæta
hagsmuna Breta á Íslandi en jafn-
framt að fylgjast með og koma auga
á tækifæri í viðskiptum og að fylgj-
ast með ýmis konar áhugaverðum
nýjungum og nýsköpun. „Hér í
Borgarbyggð hafið þið mjög góðan
landbúnaðarháskóla og við eigum
að sama skapi mjög góða landbún-
aðarháskóla. Við höfum áhuga á
að skoða hvernig skólinn hér horf-
ir til framtíðar og hvort við sjáum
grundvöll fyrir hvers kyns samstarfi
á þeim vettvangi. Við getum vissu-
lega lært hvert af öðru á þessu sviði.
Við hugsum þetta til lengri tíma og
viljum skoða hvort við getum átt
samstarf sem gagnast báðum að-
ilum um ókomna framtíð,“ sagði
Michael.
Mikilvægara hlutverk
eftir Brexit
Aðspurður um hvort útganga
Breta úr evrópusamstarfinu, Brex-
it, hafi breytt hlutverki sendiráðs-
ins þá segir Michael að það geri
hlutverk sendiráðsins jafnvel enn
mikilvægara en það var áður. „Við
þurfum að gera fólki grein fyrir því
að Bretland er opið og að við erum
enn hluti af evrópu þó við stönd-
um nú utan sambandsins. Við gæt-
um hagsmuna okkar í hinum ýmsu
samningum sem náðst hafa milli
landanna og að öll samskipti gangi
sem best fyrir sig. Fram til þessa
höfum við ekki orðið vör við ann-
að en að samskiptin gangi eins og
best verður á kosið.“
Í heimsókn sinni heimsótti
sendiherrann meðal annars verk-
smiðju Steypustöðvarinnar í
Borgarnesi og sagði áhugavert að
skoða framleiðslu fyrirtækisins í
ljósi loftslagsbreytinga. Ráðstefna
Sameinuðu þjóðanna um loftslags-
breytingar, COP 26, verður hald-
in í Glasgow síðar á þessu ári og
ræddi sendiherrann um hvernig
líf okkar allra er að breytast í ljósi
loftstlagsbreytinga. Sagði hann
áhugavert að fá að skoða hvernig
Steypustöðin er að breyta sínum
framleiðsluferlum með tilliti til
þessara breytinga.
Michael sagði áhugavert að
fylgjast með hvernig Íslendingar
hefðu tekist á við Covid-19 og að
vinna heima. Faraldurinn hefði í
raun skapað ýmis tækifæri í stofn-
un nýrra fyrirtækja og að sumu
leyti afturhvarf til fyrri hátta þar
sem handverk var haft í hávegum.
Þá sagðist hann fylgjast vel með
fyrirhuguðum framkvæmdum við
Sundabraut sem koma til með að
stytta ferðatímann milli Vestur-
lands og höfuðborgarsvæðisins
umtalsvert.
Skapa tengsl
Michael sagðist hlakka til að hitta
Breta á svæðinu því að þótt ýmis-
legt sé hægt að gera á samfélags-
miðlum þá stenst það ekki saman-
burð við að hitta og ræða við fólk
í eigin persónu. Markmið hans
væri að sendiráðið væri ekki ein-
göngu fyrir upplýsingar um vega-
bréf heldur að vera opið og vinna
í því að skapa tengsl við fólk. Hlut-
verkið væri líka að koma Bretlandi
á framfæri við þá sem vilja stunda
nám eða starfa þar.
Hlutirnir hafa breyst með til-
komu Brexit en það þýðir ekki að
fólk geti ekki ferðast til Bretlands.
„ef fólk ætlar að starfa eða nema
í Bretlandi þarf vissulega vega-
bréfsáritun en fyrir ferðamenn er
breytingin lítil sem engin. Fyrir
þá sem vilja fara í verslunarferð til
Bretlands eða horfa á besta knatt-
spyrnulið Bretlands, Manches-
ter United, vinna leiki eða jafnvel
gráta þegar Liverpool tapar leik,
þá er það mjög einfalt og þarf ekki
áritun,“ segir Michael og brosir. frg
Enn hægt að horfa á Manchester United vinna leiki
Rætt við breska sendiherrann
sem kom í kurteisisheimsókn í
Borgarbyggð á mánudaginn
Sendiherra Breta, Michael Nevin á Blómasetrinu Kaffi Kyrrð í Borgarnesi, þar sem blaðamaður ræddi við hann síðdegis á
mánudaginn.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Ert þú ekki
örugglega
áskrifandi?