Skessuhorn - 24.02.2021, Síða 30
MIÐVIKUDAGUR 24. FeBRúAR 202130
Hver er mikilvægasti
hluturinn á heimilinu þínu?
Spurning
vikunnar
(Spurt á netinu)
Hugrún Björt Hermannsdóttir
Hmmm, ætli að það sé ekki ís-
skápurinn eða þvottavélin.
Jökull Harðarson
Kaffivélin.
Hrefna Dan
Kaffivélin okkar, fátt betra en
góður kaffibolli.
Jóna Björk Sigurjónsdóttir
Þvottavél, uppþvottavél og ryk-
suguróbotinn. Ágætt að eiga
ofn og borðplötu líka og áhöld
til að elda með. Gæti samt lif-
að án ryksuguróbots en ekki án
þvottavélar og uppþvottavélar.
Körfuknattleikskonan Anna
Soffía Lárusdóttir hefur verið val-
in Íþróttamaður Umf. Snæfells
árið 2020. Á síðustu leiktíð tók
hún stórt stökk á sínum ferli en
hún spilaði stórt hlutverk í úrvals-
deildarliði Snæfells. „Anna Soffía
fór úr því að verða efnileg í það
að vera fullmótaður leikmaður
með mikinn metnað fyrir sínum
leik. Hún var máttarstólpi liðsins
í vörninni og fékk ávallt það hlut-
verk að stoppa helstu skorara and-
stæðingsins. Styrkur góðra leik-
manna er hins vegar að vera góður
á báðum endum vallarins en Anna
Soffía átti frábæra leiki sóknarlega
og var óhrædd að keyra á körfuna
í bland við hennar frábæru skot,“
segir í tilkynningu frá félaginu. Þá
segir að Anna Soffía sé mikill liðs-
maður bæði innan sem utan vallar
og er hún frábær fyrirmynd yngri
iðkenda. „Anna Soffía hefur með
miklum metnaði og aukaæfingum
lyft sínum leik á hærra plan. Hún á
nú sjö landsleiki með undir 20 ára
og níu landsleiki með undir 16 ára
í körfu.“
mm
Bikarkeppni KSÍ hefst í byrjun
apríl og eru flest lið komin á fullt
að undirbúa sig fyrir keppnina sem
og tímabilið. Að þessu sinni sendir
Reynir Hellissandi lið til þátttöku
í bikarkeppninni en Reynir dróst
gegn Aftureldingu sem spilar í 1.
deildinni í sumar. Heimildamynd
verður gerð um þátttöku liðsins í
bikarkeppninni. Það er heimamað-
urinn Kári Viðarsson sem stend-
ur fyrir því ævintýri sem framund-
an er hjá Reynismönnum. Það var
faðir hans, Viðar Gylfason, sem á
sínum tíma var í fararbroddi við
að gera grasvöllinn á Hellissandi
fyrir réttum aldarfjórðungi síðan.
Setti Viðar saman lið í bikarkeppn-
ina árið 1996 til að geta vígt völl-
inn með bikarleik. Það gekk því
miður ekki eftir þar sem fyrsti leik-
ur Reynis var útileikur gegn GG
og tapaðist 10-0. Þó flestir leik-
menn liðsins hafi ekki spilað mik-
inn keppnisbolta undanfarið verða
þeir allir klárir í leikinn í vor enda
er það ungmennafélagsandinn sem
er við lýði þar og mestu máli skiptir
að hjartað sé á réttum stað.
Kári Viðarsson var ánægður
með að Reynir hefði dregist á móti
sterkum mótherja þótt drauma-
mótherjinn hefði að sjálfsögðu ver-
ið Víkingur Ó. Sagði hann í sam-
tali við fréttaritara Skessuhorns að
völlurinn yrði tilbúinn þegar til
kæmi enda væri garðyrkjumaður
einn liðsmanna og myndi sá nostra
við völlinn ef á þyrfti að halda.
Strákarnir í Reyni setja stefnuna
auðvitað á sigur og ætla að gera
Aftureldingu erfitt fyrir. Þeir von-
ast jafnframt til að sem flestir mæti
á völlinn og að áhorfendamet verði
slegið. Þess má geta að leikurinn er
settur laugardaginn 10. apríl klukk-
an 16:00.
þa
Ágústa einarsdóttir og Rut Rún-
arsdóttir hafa séð um heilsuefl-
ingu fyrir 60 ára og eldri og ör-
yrkja í Grundarfirði í vetur. „Við
erum með þeim alla daga og það er
ótrúlega gaman,“ segja þær hressar
í samtali við blaðamann. „Við för-
um í hóptíma í íþróttahúsinu sinu
sinni í viku en svo skiptum við þeim
í smærri hópa sem koma í rækt-
ina hina daga vikunnar,“ útskýrir
Ágústa.
Þær tóku við þessu verkefni í
september á síðasta ári þegar lítið
var um takmarkanir í samfélaginu.
en síðan þá hafa miklar breyting-
ar orðið. Aðspurðar segjast þær
hafa tæklað samkomutakmarkanir
og lokanir á líkamsræktarstöðvum
með því að nýta útisvæði og hugsa
út fyrir kassann. „Við höfum gert
allskonar. Fyrst hittumst við úti og
gerðum æfingar saman og höfðum
bara gaman,“ segir Rut. Þegar lok-
að var fyrir útiæfingar færðu þær
sig yfir á samfélagsmiðla þar sem
þær hvöttu fólk áfram í hreyfingu.
„Við erum með hóp á Facebook þar
sem við settum inn upplýsingar og
hvöttum fólk áfram. Við settum upp
ratleik með ýmsum æfingum á litlu
svæði hér sem við köllum Þríhyrn-
inginn. Svo heyrðum við af því að
fleiri fóru þangað að taka æfingarn-
ar,“ segja þær. „Við auglýstum þetta
líka hér innanbæjar fyrir alla. Það
var alveg óþarfi að einblína bara á
eldri borgar. Þetta voru allt æfingar
sem allir gátu gert,“ segir Rut.
Miklir naglar
Aðspurðar segja þær þátttöku
eldri borgara í heilsueflingu hafa
verið mjög góða í vetur, þrátt fyr-
ir heimsfaraldurinn, og eru þær
mjög ánægðar að sjá hversu dug-
legir Grundfirðingar voru að fara
út og hreyfa sig í lokunum. „Þetta
er svo frábær hópur sem við erum
með. Þau voru svo dugleg að
hvetja hvert annað áfram, hittast
í smærri hópum til að labba sam-
an og gera æfingar,“ segir Ágústa.
Þær hlakka mikið til að halda
áfram núna þegar samkomutak-
markanir halda áfram að rýmka.
„Þetta er bara svo gaman,“ seg-
ir Rut. „Við munum halda áfram
að hittast reglulega og getum von-
andi farið að stækka hópana. Við
viljum samt passa að hafa hóp-
ana ekki of stóra svo allir fái eins
góða þjónustu og þeir þurfa,“ seg-
ir Ágústa. „Við erum svo þakklát-
ar fyrir þetta verkefni, þetta gef-
ur okkur svo mikið. Þetta eru allt
svo miklir naglar, meiri naglar en
við gerðum ráð fyrir,“ segir Rut og
Ágústa tekur undir það.
Skemmtilegur
aldurshópur
Spurðar hvort þær hafi áður verið
með heilsueflingu fyrir eldri borg-
ara segja þær svo ekki vera. „Við
erum sjálfar svo nýlega byrjaðar í
þessu öllu. Við byrjuðum á að læra
spinningkennarann, svo hóptíma-
kennarann og svo bara datt þetta
verkefni upp í hendurnar á okkur
sem við erum mjög þakklátar fyr-
ir,“ segir Rut og bætir við að hóp-
urinn samanstendur af fólki á aldr-
inum 60-92 ára. „Við erum með
einn hörkuduglegann 92 ára sem
fór í planka hér um daginn,“ segir
Ágústa. „Það er svo gaman að vera
með þennan aldurshóp. Þau eru
svo þakklát og það skiptir þau svo
miklu máli að fá þessa tíma. eldri
borgarar þurfa hreyfingu til að
auka lífsgæði og það hvetur okkur
áfram að sjá hvað þetta gerir mik-
ið fyrir þau,“ segir Ágústa. „Við
reynum bara alltaf að hafa þetta
skemmtilegt, sprella smá og hafa
gaman. Við erum öll alltaf eins og
27 ára í hausnum, það er bara lík-
aminn sem eldist. Þau hafa alveg
jafn gaman að svona fíflaskap og
sprelli eins og við,“ segja þær.
arg
Heimildamynd gerð um
bikarleik Reynis á Hellissandi
Bikarleikurinn fer fram á Reynisvelli á Hellissandi.
Anna Soffía Lárusdóttir. Með henni eru þau María Valdimarsdóttir, móðir hennar,
og Kristinn Hjörleifsson en þau eru stjórnarfólk í Snæfelli. Ljósm. sá.
Anna Soffía er Íþrótta-
maður Snæfells 2020
Á öskudaginn klæddi Rut sig upp sem Lína langsokkur og Ágústa sem Níels api. Þetta sprell vakti mikla lukku í tímanum hjá
eldri borgurum. Ljósm. tfk.
„Við reynum bara alltaf að hafa
þetta skemmtilegt“