Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2012, Qupperneq 7

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2012, Qupperneq 7
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2012 Sesselja, langamma mín, var fædd og alin upp á Höfða og eyddi þar öllum stundum, meðan kraftar entust, þótt hún ætti sitt heimili í Reykjavík. Sigurður langafi minn var ætt- aður frá Votmúla í Flóa. Þar fæddist mamma hans, Anna Lafranzdóttir, og þar bjó Lafranz afi hans. Langafi var af Bergsætt. Hann var meiri- partinn af sinni starfsævi skrifari á Kirkjusandi hjá Tryggva Ofeigssyni. Langafi átti líka ófá handtökin austur á Höfða. Um leið geri ég mér ljóst að þessi yndislega amma mín sem situr þarna á móti mér, svo falleg og ungleg, hefur horft inn í allt aðra og mér framandi veröld, ver- öld sem er í senn heillandi og spennandi. Eg er svo glöð yfir því að hafa fengið að skyggnast inn í hana. Skólagangan En amma átti sér líka bemsku í Reykjavík. Hún var átta ára þegar hún byrjaði í Laugarnesskólanum í Reykjavík, ári á eftir öðrum börnum. Aðspurð sagði hún það ekki hafa komið að sök, af því að hún var flug- læs og vel skrifandi. Eftir inntökupróf hjá skólastjór- anum. hafi hún verið sett í besta bekkinn, hjá hinum þekkta og frábæra kennara, Skeggja Asbjarnarsyni. „Við krakkarnir í bekknum vorum kölluð englabömin hans Skeggja “ sagði amma hróðug. Morgunsöngur var fastur liður á hverjum degi. Hringt var inn með bjöllu og þurftu krakkarnir að raða sér upp í skipulegar raðir fyrir utan skólann. „Mér er minnisstætt að „afi“, umsjónarmaður skól- ans, kom reglulega með stóran brúsa af lýsi, sem var helt í könnu, og Skeggi gekk á milli okkar barnanna og hellti upp í okkur, en þó mismiklu! Magnið fór eft- ir því í hversu miklu uppáhaldi við vorum hjá hon- um!“ Hvernig var að koma til Reykjavrkur í skóla og setjast í bekk með öðrum krökkum? „Ég var mjög feimin, því ég var óvön því að vera í kringum mörg börn, sem þar að auki höfðu alist upp við allt aðrar aðstæður en ég. Ég var það þó ekki lengi.“ Fljótlega eignaðist amma góða vinkonu í skólanum og hefur sú vinátta varað æ síðan. „Það er ómetanlegt að geta deilt minningum sínum allt frá bernsku með góðri vinkonu.“ Skólaskyldu kláraði amma tólf ára gömul og hélt svo áfram fjögur ár, fyrst tvö ár í Laugarnesskólanum í gagnfræðadeild og síðan tvö ár í gagnfræðaskóla Austurbæjar, Gaggó Aust. Hún vill sem minnst urn þau ár tala og þar við situr. Segist varla hafa opnað bók í Gaggó Aust. og hafi alla ævina séð eftir því að mennta sig ekki meira. Gambri og sígarettur Hestamennskan hefur alla tíð heillað ömmu. Tólf ára fór hún fyrst á landsmót hestamanna á Þingvöllum. Það var eftir mikið tuð við móður sína sem hún fékk að fara, í fylgd Björns bónda í Skálholti. En það var nú ekki eins öruggt og það leit út fyrir að vera. Amma var eina stelpan og hellingur af körlum með í för. Þeir voru sífellt að staupa sig á leiðinni og einn þeirra saup svo vel á að hann reið öfugur á hestinum sínum alla leið að Apavatni! Þar að auki hafði þeim láðst að taka með sér tjald! Annars var Alfaskeið hápunktur skemmtananna á mínum bernsku- og unglingsárum, segir amma. Þá komu uppsveitirnar ríðandi, hestarnir voru sundreknir yfir Hvítá og allir ferjaðir yfir á bátum. Þar sat fólk- ið í brekkunni og söng og ömmu er minnisstætt að hundurinn þeirra, Lubbi, tók alltaf undir og spangól- aði hástöfum. Svo var dansað á palli fram undir morg- un. Þarna hittust bæði ungir og aldnir og stofnað var til margra kynna. „Mamma var ekki ströng hvað varðar útivistar- tíma og eftirlit“ segir amma, þegar hún rifjar upp bernskubrekin. „Við vinkonurnar vorum líka ansi uppátækjasamar. Atta ára gamlar ákváðum við að smakka á drykk, sem leigjendurnir brugguðu í kjallar- anum. Það var s.k. gambri, og ennfremur höfðum við safnað að okkur sígarettum og vindlastubbum, en á þeim tíma reyktu allir. Við fórum með þetta allt upp á háaloft í Tungu, og púuðum og púuðum, alveg eins og við sáum fullorðna fólkið gera, með þeim afleiðing- um að það leið yfir aðra okkar og hin ældi“. Þessi stund var bæði upphaf og endir í þeim mál- um. Eftir það hét amma því að gerast bindindis- manneskja, bæði á vín og tóbak, og hefur verið það síðan. Kelað og kysst Sem unglingur fór amma oft í skíðaferðir og hún seg- ist oft hafa verið djörf í brekkunum. Þá voru mörg íþróttafélög með litla skála utan við bæinn og þar var gist. Þá var nú kelað og kysst, mikið fjör og glens http://www.ætt.is 7 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.