Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2012, Side 11

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2012, Side 11
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2012 Guðfinna Ragnarsdóttir: Fimmmannaleiðið í kirkjugarðimim á Snæfoksstöðum Þorleifur Guðmundsson og Nesjavalla-Grímur Fróðleiksmolar með ættfræðilegu ívafí íNorðurkoti, sem var hjáleigafrá Öndverðarnesi í Grímsnesi, bjuggu upp úr miðri 18. öldinni Guðmundur Brandsson og kona hans Eydís Grímsdóttir. Pau fórust bæði í eldsvoða, 1773, ásamt þrem öðrum. Þetta fólk var allt jarðsett í svo kölluðu Fimmmannaleiði í kirkjugarðinum á Snœfoksstöðum. Vinnukonu tókst að bjarga þrevetra syni húsbændanna, Þorleifi að nafni, út úr logandi bænum. Þau voru þau einu sem kom- ust lífs af úr brunanum. Ekki er getið um önn- ur börn þeirra hjóna. Forfeður drengsins höfðu búið í Öndverðarnesi og Norðurkoti í fjóra ætt- liði, eða frá því um 1600. Brandur, afi Þorleifs, var talinn tveggja manna maki, til hvers er taka skyldi, og þar með útsjónarsamur og hagvirk- ur. Guðmundur faðir Þorleifs og Guðni Jónsson „gamli“, ættfaðir Reykjakotsættarinnar í Ölfusi, voru bræðrasynir. Norðurkot fór í eyði 1938. Goljvöllur Múrarameistarafélags Reykjavíkur er nú þar sem Norðurkotið stóð. Sagnir herma að Þorleifur Guðmundsson hafi þrisvar lent í lífsháska en bjargast, tvisvar úr elds- voða og einu sinni frá drukknun. Drengurinn fór í Enn, eftir rúm 200 ár, sést móta fyrir kirkjustœð- inu og kirkjugarðinum á Snœfoksstöðum, en kirkjan var lögð niður 1801. Staðurinn er frið- lýstur. Talið er að hann hafi verið með hinu forna lagi, næstum kringlóttur og kirkjan í miðjum garðinum. Þar er lítil bunga eða hóll, sem nefii- ist Kirkjuhóll. Tvö leiði sáust lengi vel í garð- inum, annað var Fimmmannaleiðið, sem skar sig úr vegna stœrðar sinnar. Það er í suðvesturhorni garðsins og er nú orðið mjög óljóst og sést best á haustin, eftir að grösfalla, eða í litlum snjó að vetri til. Hitt var leiði séra Vigfúsar Jónssonar, sem var síðastur presta að Snœfoksstöðum. Hann varð úti í hrauninu árið 1799, aðeins fimmtugur að aldri, þegar hann var á leið frá útkirkju sinni að Klausturhólum í stórhríð. Skógræktarfélag Árnesinga keypti jörðina Snæfoksstaði árið 1945, en síðasti ábúandinn sat jörðina til 1963. Hér sést til suðurs,frá kirkjustaðnum,yfir gamla heimatúnið. I fjarska sést í Hvítá. (Ljósmynd Guðfínna Ragnarsdóttir) fóstur til Halldórs Brandssonar föðurbróður síns að Úlfljótsvatni og ólst þar upp. Hann fór þangað ásamt vinnukonunni, bjargvætti sínum, og var með þeim kvíga sem fara átti upp í fóstrið. Þegar komið var að vatninu og kvígan var komin í bátinn varð drengurinn svo ókyrr að óttast var að hann mundi gera kvíguna brjálaða og voru þau skilin eftir og átti að sækja þau síðar. Úti á vatninu ærðist kvígan samt og bátnum hvolfdi og fylgdarmaðurinn drukknaði. Kona bóndans, sem var nýstigin upp af barnssæng, sá slysið, setti fram bát og tókst að bjarga bónda sínum. Þar bjargast Þorleifur litli í annað sinn úr lífsháska. Þegar hann var enn á barnsaldri, 5-6 ára, að leik inni í baðstofunni og fólk- ið við vinnu úti, kviknaði í rúmfleti. Konu einni örv- asa tókst að staulast út úr alelda bænum með dreng- inn. Þar bjargaðist Þorleifur í þriðja sinn úr bráðum lífsháska. Steindór sýslumaður Finnsson, í Oddgeirshólum, varð fjárhaldsmaður Þorleifs þegar hann missti for- eldra sína. Sýslumaður keypti handa honum jörð- ina Nesjar í Grafningi fyrir erfðafé hans. Þorleifur kvæntist rúmlega tvítugur, Guðrúnu Magnúsdóttur, frá Efri-Sýrlæk í Flóa, og gerðist bóndi í Nesjum. Þau eignuðust átta börn, sex komust upp. Eitt þeirra var Grímur, Nesjavalla-Grímur, sem frægur var og marg- ar sögur eru til af. Hann þótti góður bóndi, refaskytta mikil og hestamaður. Hann var einnig mjög veð- urglöggur og talinn forspár. http://www.ætt.is 11 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.