Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2012, Blaðsíða 14

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2012, Blaðsíða 14
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2012 Jón Þ. Þór, sagnfræðingur, rekur sögu Klausturhóla í gamla kirkjugarðinum í Klausturhólum, síðast- liðið sumar, í tengslum við Grímsneshátíðina Brú til Borgar. (1 jósmynd Guómundur Guðmundsson) opnv brefi.At eg gefurj heidur med gvd oc hans signada moder marie til œverndiligt bœnahalz til videyar stadar jordina sem holar heita med viij kvigilldvm. Sem lig(g)ur j grimsnesi firir sal vigfvsar jvarssonar oc hans sonar ellendz sem gvd þeirra sal frelsi til œfverndiligrar eign- ar. Med ollvm þeim gognvm oc gœdvm sem til hennar liggur oc leigit hejur fra fornv oc nyiv oc avngvv vndann skilldv. Svo framt sem ec matte framast med logvm hana eignast. Minningarskjöldurinn í Klausturhóla- kirkjugarði. (Ljósmynd Guðmundur Guðmundsson) ól þá fengið greitt meðlagið frá Klausturhólum. Árið 1703 var þó sannanlega einn holdsveikisjúklingur í Klausturhólum. Hann hét Magnús Ásgautsson og var 24 ára gamall. Holdsveikraspítalana átti að kosta af með tillagi af aflahlut á vetrarvertíð á Suðurlandi og sumarvertíð á Austfjörðum, en sitthvað bendir til þess að innheimta tillagsins hafi gengið misjafnlega. Klausturhólar Þar með voru Hólar orðnir eign Viðeyjarklausturs og nú var tekið að kalla jörðina Klausturhóla, svo sem til aðgreiningar frá öðrum „Hólum“ í Grímsnesinu. Ekkert er hins vegar vitað um ábúendur á jörðinni þá liðlega einu öld sem hún var í eigu klaustursins. Þegar Viðeyjarklaustur var lagt af við siðaskipti fluttist síð- asti ábótinn, Alexíus Pálsson, að Klausturhólum. Það mun hafa gerst annaðhvort 1539 eða 1541 og í Klausturhólum bjó Alexíus nánast óslitið og hélt Grímsnesjarðir til dauðadags árið 1568. Hann var sagður rammur að afli og við hann eru kenndar ábótahellur, tveir miklir steinar, sem áður voru í kirkjuvegg í Klausturhólum. Má hver sem vill trúa þeirri þjóðsögu, sem lifað hefur í Klausturhólum, að Alexíus hafi látið flytja hellurnar frá Þingvöllum, þar sem hann var prestur áður en hann fór í Viðey, og sjálfur borið þær í kirkjuvegginn. Við siðaskiptin sló Danakonungur eign sinni á all- ar eignir íslensku klaustranna. Þá urðu Klausturhólar konungseign og voru það allt fram á 19du öld, en árið 1652 lagði Friðrik konungur 111. jörðina undir holds- veikraspítala, án þess þó að afsala sér eignarhaldi. Holdsveikraspítali var í Klausturhólum í eina öld, en var þá fluttur að Kaldaðarnesi. Fáar heimildir hafa hins vegar varðveist um spítalann í Klausturhólum og við vitum til að mynda ekki hve margir holdsveik- issjúklingar dvöldust þar á hverjum tíma. í jarðabókinni, sem kennd er við Árna Magnússon og Pál Vídalín, sagði að landskuld af Klausturhólum væri goldin með „forsorgun eins spítalsks ómaga“. Ekki kemur hins vegar fram hvort þessi holdsveiki ómagi dvaldist alltaf í Klausturhólum, og nrá vera að sumir þeirra hafi verið annars staðar, en bóndinn sem Landkostir rýrir Þegar manntal var tekið í fyrsta skipti á íslandi árið 1703 bjuggu í Klausturhólum hjónin Jón Hjörtsson lögréttumaður og Þóra Snorradóttir. Á heimilinu voru auk þeirra tvö börn Jóns, tvær ekkjur, vinnumaður og vinnukona, eitt barn „sem umboði fylgir“, smalapilt- ur. kona af ótilgreindri stétt og áðurnefndur Magnús Ásgautsson. Á afbýlinu Klausturhólahjáleigu bjuggu þá hjónin Guttormur Höskuldsson og Helga Jónsdóttir ásamt fjórum ungum börnum sínum. Upplýsingum um jarðir í Grímsneshreppi fyr- ir Jarðabók Áma Magnússonar og Páls Vídalín var safnað sumarið 1708. Þá bjuggu þeir Jón Hjörtsson og Guttormur Höskuldsson enn á Klausturhólum og í Klausturhólakoti. Bústofn beggja virðist hafa verið í meðallagi, en landkostir voru rýrir og fóru versn- andi: Torfrista og stúnga lök. Mótak er því aflagt, að ei þótti nýtandi. Grasatekja er þrotin, síðan Hekla brann seinast. Skógarhögg á hospítalið í Miðengis skógi, og er það árlega brúkað til eldiviðar, en þar í mót brúk- ar Miðengi heytorfsristu í Klausturhólalandi. í túninu gengur grjót upp árlega meir og meir, og fer það stórlega til rýrðar. Enginu spillir sandur úr jarðföll- um. Þess ber hjer að gæta, að á jörðunni Klausturhólum er meira bítskátt en annarstaðar, en óhægra dýr að vinna, því jörðin er mjög hol af urð og hraunum. Kirkjustaður og prestsetur Heimildir um kristnihald í Hólum og Klausturhólum á fyrri öldum eru óljósar, svo ekki sé fastar að orði http://www.ætt.is 14 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.