Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.01.2021, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.01.2021, Blaðsíða 18
Rocco Arquitetos-arkitektastofan hannaði einstakteinbýli með hressilegri litapallettu sem mættijafnvel heimfæra á hjara veraldar ef fólk þráir að flippa og hafa gaman. Húsið er í Sao Paulo í Brasilíu og það sem gerir húsið sérlega heillandi er horngluggi nokkur sem stát- ar af turkíslituðum bekk með pullum. Svarthvíta fólkið myndi kannski ekki velja þessa litapallettu en þegar rýnt er í myndirnar þarf ekki að efast um að slík sam- setning sé hamingjuaukandi. Ef fólk hefur tök á því að koma sér upp svona hægindahorni þá má útbúa það með því að hringja í bólstrara og biðja hann um að smíða svona dýrð eftir máli. Það þarf ekki einu sinni að kosta mikið. Í húsinu eru hlýleg viðargólf sem fara vel við hippa- legar mottur, appelsínugula eldhúsinnréttingu, potta- plöntur og hörsófa. Ef þú vilt fá smá útlönd inn í líf þitt þá er hægt að fá margar góðar hugmyndir hér. Hamingjuaukandi hægindahorn í einstöku húsi Á ísköldum janúardögum þegar veira geisar um heiminn er fátt nota- legra en að láta sig dreyma um glæsivillur í útlöndum. Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.1. 2021 LÍFSSTÍLL VEFVERSLUN www.betrabak.is OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN OPNUNARTÍMI einstakra verslana sjá www.betrabak.is FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 KRINGLUNNI Reykjavík 820 6015

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.