Morgunblaðið - 18.02.2021, Page 44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2021
Verð: 25.995.-
Stærðir: 36 - 41
Vnr. E-880133
Verð: 26.995.-
Stærðir: 36 - 46
Vnr. E-880124/123
Verð: 26.995.-
Stærðir: 39 - 45
Vnr. 880124
Þægilegir leður götuskór með
mjúkum botni, 360° vatnsvörn
og góðri öndun. Henta sérlega
vel í gönguferðirnar.
ECCO MULTI-VENT
NÝ SENDING AFVÖNDUÐUM GÖTUSKÓM Á DÖMUR OG HERRA
Hildur Gunnlaugsdóttir er arkitekt sem heldur uppi ótrú-
lega skemmtilegum Instagram-reikningi undir nafninu
hvasso_heima. Þar deilir hún myndum af heimili sínu, sem
er raðhús í Hvassaleiti, og ferlinu sem hefur farið í að end-
urgera húsið.
Ásamt því deilir hún ýmsum DIY (Do it yourself) ráðum,
kaupir til dæmis skemmtileg húsgögn í Góða hirðinum sem
hún endurnýtir og málar, hannar sína eigin kransa og
margt fleira.
Hildur elskar að gera góð kaup, er dugleg að kaupa not-
að og gefur skemmtilegar hugmyndir um hvernig hægt er
að gefa gömlum húsgögnum nýtt líf.
Það er ótrúlega létt og skemmtilegt yfir þessum frábæra
Instagram-reikningi og gaman að fylgjast með. Ég spjallaði
aðeins við Hildi og spurði hana hvernig hugmyndin kvikn-
aði að halda uppi svona sniðugum aðgangi.
Maður mömmu Hildar hélt dagbók þegar hann endur-
byggði hús og í bókinni eru m.a. fyrir- og eftirmyndir,
teikningar og fleira. Hildi fannst þetta svo skemmtilegt og
hana langaði að gera eitthvað svipað en notast við Insta-
gram sem dagbók.
Hún segist hafa gert þetta mest fyrir sjálfa sig til þess að
geta rifjað ferlið upp, en sem arkitekt hefur hún mikinn
áhuga á húsum, teikningum o.s.frv.
Þegar kórónuveirufaraldurinn skall á fór hún að nota In-
stagrammið meira til þess að kasta fram hugmyndum og
deila því sem hún var að gera. Henni fannst hún á þann
hátt vera minna ein og alltaf hafa félaga með sér, þar sem
oft komu upp skemmtilegar umræður, hugmyndir og spjall
í gegnum Instagram-aðganginn.
Ótrúlega skemmtilegt verkefni og ég mæli með því að
fylgja þessari hörkuduglegu konu fyrir innblástur, hug-
myndir og alls konar skemmtilegt.
Deilir framkvæmdunum á Instagram
Ljósi punkturinn með Dóru Júlíu:
Skjáskot/Instagram/hvasso_heima
Montana-hillur
Hillurnar hafa fylgt
Hildi í yfir 15 ár.
Borðstofan Opið
og fallegt rými.
Fallegt Eldhúsið er
stórt og rúmgott.
Þvottahúsið Fallegar flís-
ar og óhefðbundið útlit.