Morgunblaðið - 20.02.2021, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2021
STYRKUR -HAGKVÆMNI -HÖNNUN
LANDSHÚSLandshús - Sími 553 1550 - landshus.is
KLETTARHEILSÁRSHÚS
Klettareru sterkbyggðhús – sérhönnuðaf Efluverkfræðistofu.
Húsineruhefðbundin timburgrindarhús semeru Íslandi aðgóðukunn.
Húsinafhendastósamsett, aðhluta í forsmíðuðumeiningumogaðhluta
semforsniðiðefni.Hentug lausnviðþröngaraðstæður.
Uppsetninghúsannaerafarfljótleg.
Klettar erumeðrúmgóðusvefnlofti
(hæð2,1m) semeykurnotagildi
hússinsumtalsvert.
Klettar 65 –Grunnverð kr. 8.373.000,-
Klettar 80 –Grunnverðkr. 10.807.000,-
Ítarlegar upplýsingar og
afhendingarlýsingumá
finna á vefsíðu okkar.
Húsið ámyndinni er af
gerðinni Klettar 80 sem
reist var 2019 á Vesturlandi.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Íslandspóstur fær 509 milljónir frá
íslenska ríkinu vegna alþjónustu
samkvæmt ákvörðun Póst- og fjar-
skiptastofnunar (PFS). Samræmist
það því sem Bjarni Benediktsson
fjármálaráðherra er sagður hafa
lagt til á fundi með stjórn og for-
stjóra Íslandspósts, þ.e.a.s. að rík-
issjóður bætti fyrirtækinu alþjón-
ustubyrði vegna ársins 2020, að
fjárhæð 490 milljónir króna.
Fram kemur í úrskurði PFS að
framlagið nemi hreinum kostnaði al-
þjónustu ÍSP, alls 509 milljónum
króna.
Hreinum kostnaði Íslandspósts er
skipt í fjóra liði: kostnað vegna land-
póstadreifingar (257 milljónir),
dreifingu í þéttbýliskjörnum með
undir 750 fyrirtækjum eða heimilum
(181 milljónir), blindrasendingar (15
milljónir) og kostnað vegna sömu
gjaldskrár um allt land fyrir vörur
innan alþjónustu.
Frá þessu dragast 70 milljónir
vegna ávöxtunarkröfu, hagræðingar
vegna pakka, markaðsávinnings og
hagræðingarkröfu.
Frá 509 milljónunum dragast 250
milljónir, varúðarframlag sem ÍSP
var veitt með ákvörðun PFS nr. 29/
2019.
Þann 1. janúar 2020 féll niður
einkaréttur ríkisins á dreifingu
bréfa. Íslandspóstur sótti um fram-
lag frá ríkissjóði vegna innlendra
bréfa, innlendra pakka og innlendra
rekjanlegra bréfa auk þeirrar
skyldu sem hvílir á fyrirtækinu, að
vera með sömu gjaldskrá innan al-
þjónustu um land allt.
Ákveðið að Íslandspóstur
fái 509 milljónir frá ríkinu
Morgunblaðið/Hari
Pósturinn Fyrirtækið fær 509 millj-
ónir frá ríkinu vegna alþjónustu.
257 milljónir
vegna landpósta
Alexander Kristjánsson
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
Bólusetningu við kórónuveirunni lýk-
ur í lok júní, gangi forsendur heil-
brigðisráðuneytisins eftir. Ráðu-
neytið birti í gær
bólusetningardagatal í samvinnu við
sóttvarnalækni.
Eins og áður hefur verið greint frá
liggur fyrir að skammtar fyrir um
190.000 manns muni berast frá lyfja-
fyrirtækjunum Pfizer, Moderna og
AstraZeneca fyrir júnílok. Þetta eru
þau þrjú bóluefni sem fengið hafa
markaðsleyfi í Evrópu.
Um 280.000 manns, 16 ára og eldri,
búa hins vegar á Íslandi. „Í þessu
dagatali er líka miðað við skammta
frá þeim fyrirtækjum sem ekki hafa
fengið markaðsleyfi í Evrópu,“ segir
Svandís Svavarsdóttir heilbrigð-
isráðherra í samtali við Morg-
unblaðið. „Þessir skammtar fyrir
190.000 manns er það sem við höfum í
hendi, en annað er gefið upp með fyr-
irvörum, eins og kemur fram í daga-
talinu,“ segir Svandís. Þannig getur
dagatalið tekið breytingum eftir því
sem forsendur skýrast.
Ísland hefur í gegnum samstarf við
Evrópusambandið samið um kaup á
tveimur öðrum bóluefnum, frá Cura-
vac og Janssen og eru þau komin í
áfangamat hjá Evrópsku lyfjastofn-
uninni. Sömu sögu er að segja um
bóluefni Novavax, en samninga-
viðræður við það fyrirtæki eru á loka-
metrunum.
Einn skammtur
veitir mikla vörn
Nýjar rannsóknir frá Ísrael og
Kanada, sem birtar voru í vikunni,
sýna að Bóluefni Pfizer og BioNTech
gegn kórónuveirunni veitir öfluga
vernd eftir aðeins einn skammt og lít-
ill ávinningur er til skamms tíma af
síðari skammtinum. Sýna þær að
bóluefnið veitir á bilinu 85-92% vernd
nokkrum vikum eftir að fólk fær fyrri
skammt þess, en til samanburðar er
virknin um 95% eftir að síðari
skammtur hefur verið gefinn. Nið-
urstöður rannsóknanna hafa gefið
þeim byr undir báða vængi sem vilja
fresta síðari skammtinum til þess að
gefa megi sem flestum fyrri skammt
efnisins. Þeirri aðferð hefur til að
mynda verið beitt í Bretlandi.
Að sögn Magnúsar Gottfreðssonar,
prófessors og yfirlæknis á Landspít-
ala, gefa niðurstöðurnar fyrirheit um
að ráðlegt sé að fresta seinni bólu-
setningu í löndum sem glíma við
slæman faraldur, þar sem hægt sé að
gefa fleirum fyrri skammt efnisins.
Enn sé þó ekki vitað hver áhrif þess
til langs tíma að seinka seinni bólu-
setningu eru, og því sé þessi aðferð
ekki endilega fýsileg á Íslandi, þar
sem lítið er um smit eins og sakir
standa.
Áætlað að
bólusetningu
ljúki í lok júní
Bólusetningardagatal klárt Rann-
sóknir sýna virkni eftir eina bólusetningu
Morgunblaðið/Eggert
Bólusetning Dagatal stjórnvalda
um bólusetningar var birt í gær.
Lok bólusetningar
» Mars: Heilbrigðisstarfs-
menn
» Mars: Fólk á aldrinum 80-89
ára
» Maí: 70-79 ára
» Júní: 60-69 ára
» Maí: Fólk með undirliggjandi
sjúkdóma
» Júní: Kennarar og starfs-
menn félagsþjónustu
» Júní: Fólk í erfiðri félagslegri
stöðu
» Lok júní: Aðrir
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Reglur á skíðasvæðum landsins voru
rýmkaðar í gær. Lyftur og skíða-
göngusvæði eru opin með fjöldatak-
mörkunum og tilmælum sóttvarna-
læknis um sóttvarnir fylgt. Fólk er
beðið um að afla sér upplýsinga um
aðgengi að skíðasvæðinu áður en
lagt er af stað. Ekki er víst að allir
komist á skíði þegar þeim hentar.
Þannig var til dæmis uppselt í Blá-
fjöllum í gær, enda mjög gott veður
og góðar aðstæður.
Leyfilegur hámarksfjöldi gesta er
nú helmingur af reiknuðum há-
marksfjölda hvers svæðis. Aukið eft-
irlit er með fjölda gesta og ef útlit er
fyrir að hann sé að ná hámarki verða
upplýsingar birtar á upplýsingasíð-
um svæðanna og aðgangi lokað tíma-
bundið. Börn fædd árið 2005 og síðar
eru ekki talin með, nema um æfingar
eða keppni sé að ræða.
Nándarmörk eru tveir metrar og
eru tveggja metra merkingar við
byrjun raðar í hverja skíðalyftu. Þeir
sem eru einir á ferð eiga að fara einir
í stól en tengdir aðilar geta ferðast
saman. Grímuskylda er á salernum.
Veitingasala verður opin en fólk er
hvatt til að hafa með sér nesti og
neyta þess úti eða í bílnum. Skíða-
skálar eru opnir en 20 mega vera að
hámarki saman í rými hverju sinni.
Seinni sprautan hjá mörgum
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðis-
ins býður öllum 90 ára og eldri á til
bólusetningar þriðjudaginn 23. febr-
úar á Suðurlandsbraut 34. Boð um
það verða send með smáskilaboðum
(SMS) og er fólk beðið að fylgja
tímasetningu sem þar kemur fram.
Þeir sem fengu fyrri bólusetn-
inguna 2. febrúar en hafa ekki fengið
SMS-skilaboð geta komið á Suður-
landsbraut 34 milli klukkan 9.00 og
15.00 og fengið seinni bólusetn-
inguna. Aðrir fæddir árið 1931 eða
fyrr sem misstu af bólusetningunni
2. febrúar eru einnig velkomnir nú í
fyrri bólusetninguna.
Fólk er minnt á grímuskyldu og að
taka með sér persónuskilríki. Fólk
er beðið um að vera þannig klætt að
auðvelt sé að bólusetja það í öxlina.
Allir þurfa að bíða í 15 mínútur eftir
að bólusetning er gefin.
Morgunblaðið/Eggert
Bláfjöll Þar viðraði vel til skíðaiðkunar í gær og var uppselt á svæðið. Miðasala er öll á netinu en ekki á staðnum.
Reglur á skíðavæð-
unum rýmkaðar
90 ára og eldri verða bólusettir á þriðjudag í næstu viku
Einn greindist smitaður af kór-
ónuveiru í fyrradag og var sá í
sóttkví. Enginn greindist á
landamærunum.
Svandís Svavarsdóttir heil-
brigðisráðherra kvaðst í gær
gera ráð fyrir að Þórólfur
Guðnason sóttvarnalæknir skili
henni tillögum um tilslakanir á
aðgerðum um helgina. Þar
verði væntanlega um að ræða
rýmkun á fjöldatakmörkunum
og skref til afléttingar hömlum
á tiltekinni starfsemi.
Svandís sagði að áfram
þyrfti að fara varlega, nota
grímurnar og gæta að fjarlægð
á milli fólks. Ekki væri vitað
hvort veiran leyndist einhvers
staðar.
Nýjar tillögur
um helgina
EINN MEÐ SMIT