Morgunblaðið - 20.02.2021, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2021
Aðalfundur
Sláturfélags Suðurlands svf.
Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn á
Goðalandi, Fljótshlíð, föstudaginn 19. mars 2021 og hefst kl. 15:00.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf samkvæmt 24. gr. samþykkta félagsins.
2. Önnur mál.
Tillögur frá félagsaðilum sem bera á fram á aðalfundi þurfa að
vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum
fyrir aðalfund. Framboð til stjórnar og varastjórnar skulu hafa borist
skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en þremur vikum fyrir
aðalfund í samræmi við 2. mgr. 27. gr. samþykkta félagsins.
Reykjavík, 18. febrúar 2021.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf.
Grímur Gríms-
son, tengiliður Ís-
lands hjá Europol
undanfarin þrjú
ár, mun taka við
miðlægri rann-
sóknardeild lög-
reglu í apríl.
Þetta staðfesti
Grímur í samtali
við mbl.is í gær.
Grímur var
yfirmaður deildarinnar til ársins
2017. „Starfið hjá Europol átti ávallt
að vera tímabundið og eins og málin
atvikuðust sný ég nú aftur til fyrri
starfa,“ segir Grímur.
Hann segir að fyrir fram hafi legið
fyrir að hann myndi snúa aftur til
starfa hjá lögreglunni þótt ekki hafi
legið fyrir innan hvaða deildar.
Þetta hafi hins vegar orðið niður-
staðan eftir að Karl Steinar Valsson
tók við stöðu hjá alþjóðadeild ríkis-
lögreglustjóra.
„Ég hlakka til að koma til baka í
LRH og miðlægu deildina,“ sagði
Grímur en nánar er rætt við hann á
mbl.is. vidar@mbl.is
Grímur fer
í fyrra starf
Grímur
Grímsson
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Akureyri er staður helgarinnar, en í
vetrarfríi grunnskólanna á höf-
uðborgarsvæðinu hefur leið margra
einmitt legið
norður í land til
skíðaiðkunar eða
í aðra skemmtun.
Á vef Vegagerð-
arinnar mátti sjá
mikla og jafna
umferð út á land
á greiðfærum
vegum, utan hvað
hálkublettir voru
á fjallvegum. Margir fóru svo með
flugi til Akureyrar. Air Iceland
Connect fór fimm ferðir í gær frá
Reykjavík norður með alls um 350
farþega. Einnig var talsvert af far-
þegum og vel bókað með flugi á aðra
áfangastaði félagsins, það er Ísa-
fjörð, Egilsstaði og Vestmannaeyjar.
„Nú er kominn fjöldi fólks í bæinn
og frá því heimsfaraldurinn hófst
hefur ekki verið jafn mikið að gera í
fluginu og nú,“ sagði Ari Fossdal,
stöðvarstjóri Air Iceland Connect á
Akureyrarflugvelli, í samtali við
Morgunblaðið.
Staðan er góð
„Útlit fyrir talsvert mikinn ferða-
mannastraum í bæinn, næsta helgi
sem er sú síðasta í febrúar lítur líka
vel út. Ferðaþjónustufólk sem ég hef
talað við segir stöðuna góða og það
er greinilega komin útþrá í landann,
núna þegar veiruástandinu er að
létta,“ segir Ari.
Í Hlíðarfjalli ofan við Akureyri er
nægur snjór þessa stundina og að-
stæður allar eins og best gerist.
„Hér er uppselt,“ sagði Brynjar Karl
Ásgeirsson forstöðumaður skíða-
svæðisins. Þar getur fólk komist á
skíði annaðhvort árdegis eða síðdeg-
is, um 1.200 manns á hvorum tíma.
„Aðsóknin er mikil og við getum ekki
tekið við fleirum þessa helgina. Mér
sýnist líka, að að stórum hluta sé það
utanbæjarfólk sem nú er komið
norður og hingað í fjallið.“
Við þetta er því að bæta að margir
af höfuðborgarsvæðinu voru á skíð-
um í Bláfjöllum í gær: þar sem að-
stæður eru ágætar.
Veðurspáin er góð
Útlit er fyrir gott veður norð-
anlands á morgun, að sögn Helgu Ív-
arsdóttur veðurfræðings. Í dag
gengur úrkomubelti yfir landið og
því verður einhver úrkoma um tíma í
flestum landshlutum. Síðdegis lægir
og léttir til og annað kvöld verður
léttskýjað víðast hvar á landinu.
Á sunnudag bætir í vind á Austur-
landi þar sem verður stíf norðanátt
með slyddu eða snjókomu fyrri hluta
dags. Þegar líður á sunnudaginn fer
svo væntanlega að snjóa á Norður-
landi.
Morgunblaðið/Eggert
Bláfjöll Vetrarfrí í grunnskólunum er tíminn sem fjölskyldurnar gera að gæðastundum.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Reykjavíkurflugvöllur Á norðurleið í skíðafrí er fljótlegast að fara með áætlunarflugi.
Á skíði fyrir
norðan í vetr-
arfríi skólanna
Morgunblaðið/Eggert
Skíðafólk Beðið eftir lyftunni upp í brekkuna. Útiveran er alveg ómótstæðileg og lungun fá hreint súrefni.
Ljósmynd/Brynjar Karl Ásgeirsson
Hlíðarfjall Margir voru í brekkunum sem eru upplýstar og aðstaðan góð.
Flug og bílar Fullbókað í Hlíð-
arfjalli Útþrá í landa Gott veður
Ari Fossdal
Allt um sjávarútveg