Morgunblaðið - 20.02.2021, Síða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2021
Morgunblaðið/Ófeigur
Laugardalshöllin Vettvangur margvíslegra viðburða í rúmlega 55 ár. Hús-
ið hefur verið lokað að undanförnu vegna vatnsleka sem eyðilagði gólf þess.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Félögin Þróttur og Ármann lýsa sig
reiðubúin til viðræðna við borgina
um að Laugardalshöll verði breytt í
íþróttahús fyrir þau. Jafnframt að
skólar hverfisins fái þar aðstöðu eft-
ir þörfum, verði af byggingu þjóð-
arhallar í innanhússíþróttum í
Laugardal.
Þetta kemur fram í drögum að
viljayfirlýsingu milli Reykjavík-
urborgar, Knattspyrnufélagsins
Þróttar og Glímufélagsins Ármanns
vegna aðstöðumála félaganna, sem
borgarráð samþykkti á fimmtudag-
inn.
Eins og fram kom í frétt í Morg-
unblaðinu hinn 19. desember sl.
voru Þróttarar mjög óhressir með
þann drátt sem var orðinn á við-
ræðum við borgina um aðstöðumál
félagsins. Finnbogi Hilmarsson, for-
maður Þróttar, ritaði harðorða grein
um stöðuna í jólablað félagsins.
Sagði hann að ekki væri farið fram á
annað en að íbúar Laugardals
fengju sambærilega þjónustu og
veitt væri í öðrum hverfum borg-
arinnar
Þau svö fengust hjá borginni að
viðræður myndu hefjast fyrri hluta
árs 2021. Nú hafa viðræður farið
fram milli borgarinnar, Þróttar og
Ármanns og drög að viljayfirlýsingu
liggja fyrir.
Samkvæmt henni eru aðilar sam-
mála um að strax hefjist undirbún-
ingur við gerð nýs deiliskipulags
sem byggist á hugmyndum félag-
anna um íþróttamannvirki í Laug-
ardal.
Þarfagreining verður unnin
Stefnt skal að því að nýtt deili-
skipulag verði tilbúið til auglýsingar
eigi síðar en 1. desember 2021. Jafn-
framt verði unnin þarfagreining
vegna nýs íþróttahúss fyrir félögin
og skal henni lokið fyrir 30. apríl í
ár.
Þá lýsir Reykjavíkurborg vilja til
að flýta framkvæmdum við endur-
nýjun núverandi gervigrasvallar
Þróttar (Eimskipsvallar) og gerð
nýrra gervigrasvalla til æfinga aust-
an Laugardalsvallar miðað við fimm
ára fjárfestingaráætlun borgar-
innar. Unnin verður sameiginleg
tímasett framkvæmdaáætlun um
verkefnin.
Fram kom í grein Finnboga að
vetraraðstaða knattspyrnumanna
og -kvenna í Þrótti væri vægast sagt
ömurleg. Yfir 1.000 iðkendur deildu
lélegu, útslitnu gervigrasi, einum
velli með ónýtum hitalögnum.
Laugardalshöllin var vígð 6. des-
ember 1965, eða fyrir rúmlega 55
árum. Húsið hefur síðan verið vett-
vangur íþróttakappleikja, tónleika,
sýninga og funda. Höllin hefur verið
lokuð síðan í nóvember síðastliðnum
í kjölfar heitavatnsleka sem eyði-
lagði gólf hússins. Búið er að fjar-
lægja ónýtt parket og undirlag þess.
Borgarráð heimilaði nýlega um-
hverfis- og skipulagssviði Reykja-
víkur að bjóða út framkvæmdir
vegna endurnýjunar á lýsingu og
gólfefni í sal Laugardalshallarinnar.
Kostnaðaráætlun vegna fram-
kvæmdanna er 230 milljónir króna.
Taka Þróttur og Ármann við Höllinni?
Viljayfirlýsing beggja félaga og borgarinnar Þróttur fær nýja og endurbætta gervigrasvelli