Morgunblaðið - 20.02.2021, Síða 10

Morgunblaðið - 20.02.2021, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2021 Miðstöð íslenskra bókmennta auglýsir eftir styrkumsóknum Þýðingastyrkir eru veittir til að þýða á íslensku mikilvæg verk úr samtímanum, erlendar fagur- bókmenntir og fræðirit. Einnig myndríkar bækur fyrir börn og ungmenni. Barna- og ungmennabóka– sjóðurinn Auður styrkir útgáfu vandaðra bóka sem skrifaðar eru á íslensku, fyrir yngri lesendur. Umsóknarfrestur er til 15. mars 2021 Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á www.islit.is eru veittir til útgáfu og miðlunar íslenskra ritverka, þar sem kappkostað er að styrkja verk sem hafa menningarlegt og þekkingarfræðilegt gildi. Útgáfustyrkir Ólafur Kjartan & Bjarni Frímann 19. mars 2021 kl. 20 í Norðurljósum Takmarkað sætaframboð · Tryggið ykkur miða á harpa.is Söngskemmtun Íslensku óperunnar f w g g . I U M W W T p w w n g b . w w g b p w w n g b . p w w n g b . Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ekki stendur til að rífa gömlu kirkj- una í Odda á Rangárvöllum þótt þar verði byggð ný kirkja og menningar- og fræðasetur eins og Oddafélagið vill gera. Séra Elína Hrund Krist- jánsdóttir, sóknarprestur í Odda, sagði hvergi hafa komið fram að rífa ætti kirkjuna. Hins vegar hafi verið rætt um hlutverk hennar verði af fyrirhugaðri uppbyggingu. „Það eiga allir Odda, hann er sam- einingartákn hér í Rangárþingi,“ sagði Elína. „Væntanlega verða tvær kirkjur í Odda, verði af þessu. En hvert hlutverk gömlu kirkjunnar verður er ekki ákveðið.“ Hún benti á Hrafnseyri þar sem er gömul kirkja en jafnframt kapella í skólanum og báðar notaðar. Gamla kirkjan í Reykholti stendur enn þótt þar hafi risið ný kirkja. Elína sagði að Oddafélagið hefði haft samráð við sóknarnefndina í Odda, Biskupsstofu og sveit- arstjórnarmenn um áformin. „Þetta eru enn bara fyrstu hugmyndir að uppbyggingu. Það er ekki eins og þetta gerist á morgun,“ sagði Elína. Málið er ekki komið svo langt að ræða um fjármögnun eða hvort sóknin kemur þar að málum. Engin sóknarkirkja er á Hellu en íbúar þar eru í Oddasókn og aka því 8-10 km til kirkju. Elína sagði að ekki hefði verið rætt um að byggja kirkju á Hellu. „Kirkjan í Odda var til löngu á undan kauptúninu. Við höfum hliðstæðu í Búðardal þar sem kirkjan er ekki í þorpinu heldur í Hjarðarholti,“ sagði Elína. Oddasókn er með safnaðarsal og menningarsal í ágætu húsnæði á Hellu. Þar er sunnudagaskóla- og æskulýðsstarf. Einnig eru þar skrif- stofur prófasts og sóknarprests. Ýmsir viðburðir og fundir fara þar fram og allir kórar og harmoniku- félagið í Rangárvallasýslu halda æf- ingar sínar í menningarsalnum. Elína sagði mikið að gerast í Odda. Þar hefur verið fornleifaupp- gröftur og m.a. grafnir upp Sæ- mundarhellar. Fornleifaskóli unga fólksins, sem nemendur skólanna í Rangárþingi taka þátt í, hefur fengið að kynnast þar fornleifauppgreftri undir stjórn Kristborgar Þórsdóttur fornleifafræðings. Engin áform eru um að rífa Oddakirkju  Tvær kirkjur í Odda verði af áformum Oddafélagsins Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Oddakirkja Hún var reist árið 1924 og þjónar meðal annars íbúum á Hellu og í sveitunum í kring. Áform eru um mikla uppbyggingu í Odda. Öryggi í fjarskiptum, til dæmis í óveðri og hamförum, styrkist með tilkomu nýrra færanlegra rafstöðva sem afhentar voru björgunar- sveitum Slysavarnafélagsins Lands- bjargar í gær. Rafstöðvarnar koma frá Neyðarlínunni og ríkinu í krafti 276 milljóna króna framlags úr fjarskiptasjóði. Óveðrið sem gekk yfir landið í desember 2019 og olli búsifjum, svo sem í Dalvíkurbyggð, leiddi ýmsa veikleika í ljós og því var farið í að styrkja fjarskiptakerfi víða um land með því að bæta vara- afl á fjarskiptastöðum. Kaupin á færanlegu rafstöðv- unum eru af þessum sama meiði, en tryggja á sem kostur er að fjar- skipti detti ekki út vegna rafmagns í óveðri. Fólk á alltaf að geta hringt í Neyðarlínuna eftir aðstoð. Þrettán færanlegar neyðar- rafstöðvar, sem eru festar á kerru, voru í gær afhentar björg- unarsveitunum til að mynda í Borgarnesi, Ólafsvík, Blönduósi, Dalvík, Seyðisfirði, Hornafirði og Selfossi. Alls verða færanlegar stöðvar á 31 stað á landinu og eru ýmist komnar þangað eða vænt- anlegar. Meðalafl hverrar er 20KW. – Auk fyrrgreinda ráðstaf- ana hefur ljósleiðaratengingum verið fjölgað, tengi fyrir rafstöðvar sett upp og fleira. „Engum er betur treystandi til þess að taka þetta verkefni að sér en sjálfboðaliðum og starfsfólki hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra við afhendingu tækjanna. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Rafstöðvar Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra, Þórhallur Ólafsson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar, og Jóhann Valgeir Helgason, formaður Björgunarfélags Árborgar, athuga tækjakostinn. Orka fyrir öryggi  Björgunarsveitirnar fá neyðarraf- stöðvar  Fjarskipti haldist í óveðri

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.