Morgunblaðið - 20.02.2021, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2021
Rótarýdagurinn er 23. febrúar, en
þá fagna Rótarýfélagar um allan
heim 116 ára sögu. Á tímum heims-
faraldurs hafa Rótarýklúbbar fundið
leiðir til að hittast, ef ekki í raun-
heimi þá í netheimum og það verður
tilfellið næstkomandi þriðjudag. Þá
verður afmælisdagurinn haldinn há-
tíðlegur með því að streyma Rótarý-
fundi umdæmisins og hefst hann
klukkan 17, segir í fréttatilkynningu.
Á fundinum tekur Soffía Gísla-
dóttir umdæmisstjóri á móti gestum
í sófann til sín á skrifstofu Rótarý.
Aðalfyrirlesari verður Bogi Ágústs-
son fréttamaður, en hann fjallar um
bandarísk stjórnmál, bæði innan-
ríkis- og utanríkismál. Guðríður
Helgadóttir verður með þriggja mín-
útna erindi, Bala Kamallakharan
fræðir um verkefnið Pudiyador á
vegum Rótarýklúbbsins Reykjavík
International í Chennai á Indlandi
og Álfheiður Erla Guðmundsdóttir
verður með tónlistaratriði, en hún er
styrkþegi tónlistarsjóðs Rótarý á Ís-
landi 2020. Áhugasamir geta fylgst
með fundinum á heimasíðunni rot-
ary.is.
Þema heimsforseta þetta starfs-
árið er „Rótarý opnar gáttir“ og seg-
ir í fréttatilkynningu að tækifærin
séu óendanleg við að láta gott af sér
leiða. Meðal annars hefur Rótarý-
hreyfingin barist fyrir því að útrýma
lömunarveiki með góðum árangri.
Styrkir á vegum Rótarý
Hér á landi er þessa dagana verið
að úthluta verkefnum úr Verkefnis-
sjóði Rótarý, en á hverju ári geta
klúbbar sótt um styrki til samfélags-
verkefna í sínu nærumhverfi á sviði
umhverfismála, forvarna, mennta,
lista og vísinda. Heildarupphæð
verkefnanna í ár er 11 milljónir og
eru verkefnin af fjölbreyttum toga
og dreifast um allt land. Tónlistar-
styrkir Rótarý verða afhentir á tón-
leikum í samvinnu við Sinfóníu-
hljómsveit Norðurlands 1. apríl í
Hofi á Akureyri. Þar fá tveir lista-
menn veglega styrki.
Æskulýðsmálefni Rótarý eru í
lægð þessi misserin á meðan farald-
urinn herjar. Hvorki hefur verið
hægt að senda unga skiptinema á
milli heimshorna, né friðarstyrkþega
til háskólanáms við erlenda skóla. Í
venjulegu árferði veitir Rotary
International 50 styrki til tveggja
ára meistaranáms í friðarfræðum og
sendir níu þúsund ungmenni til eins
árs skiptinemadvalar um allan heim.
Rafrænn Rótarý-
dagur í faraldri
Þema ársins er „Rótarý opnar gáttir“
Rótarý í þrjá ættliði Mæðgunar Katrín Eymundsdóttir, Rótarýklúbbi Húsa-
víkur, Soffía Gísladóttir, umdæmisstjóri og félagi i Rótarýklúbbi Akureyr-
ar, og Íris Gunnarsdóttir, Rkl. Akureyrar. Rótarýdagurinn er á þriðjudag.
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • tonastodin.is
Upptökutæki
Þér er í lófa
lagið
að taka upp
!
Breiðafirði til að meta lífslíkur varp-
fugla, færslur hreiðra milli ára og
breytileika í varptíma og líkams-
ástandi. Einnig hafa þessar æðar-
rannsóknir fjallað um fæðuval og
áhrif veðurfars á stofnstærð og
varptíma. Þó nokkuð er um alþjóð-
leg samstarfsverkefni, m.a. með vís-
indamönnum frá Norðurlöndunum
og Kanada.
Atvinnuleysi mælist með mesta
móti og kemur mörgum heimamann-
inum á óvart. Í lok janúar voru 57
íbúar á skrá og skiptast þeir jafnt á
milli kynja. Íslendingar eru 28 og 29
erlendir ríkisborgarar. Stærsti hóp-
urinn er á aldursbilinu 20-30 ára.
Þær atvinnugreinar sem verst verða
fyrir barðinu eru ferðaþjónusta, 15
manns, og fiskveiðar/fiskvinnsla, 20
manns. Svona tölur hafa ekki sést í
Hólminum í tugi ára. Þrátt fyrir það
ríkir bjartsýni um betri tíð.
Mikil eftirspurn er eftir lóðum í
Stykkishólmi – tvær lóðir voru aug-
lýstar á dögunum á Sæmundarreit 1
og 2 og sóttu 14 um lóðirnar – dregið
verður úr umsóknum á næsta bæjar-
stjórnarfundi. Þá var úthlutað íbúð-
arhúsalóð á Aðalgötu og parhúsalóð
í Áskinn 6. Þá eru fjölmörg einbýlis-
og fjölbýlishús í byggingu, m.a. á
Ægisgötu og Hjallatanga.
Nýr og góður leikskóli var tek-
inn í notkun árið 2007. Hann var ætl-
aður 74 nemendum. Þá var horft til
framtíðar. Brýn þörf er fyrir stækk-
un leikskólans til þess að mæta stöð-
ugt vaxandi eftirspurn. Nemendur
er núna 85 og farnir að myndast bið-
listar. Leikskólaumsóknir eru enn
og aftur í sögulegu hámarki. Öll
börn fædd 2019 og eldri með lög-
heimili í Stykkishólmi eru komin inn
í leikskólann. Viðbygging við leik-
skólann verður um 60 fermetrar og
vinna hefst á árinu.
Undirbúningi vegna uppbygg-
ingar og um leið breytingar á hluta
húsnæðis sjúkrahússins í Stykkis-
hólmi fyrir hjúkrunarheimili miðar
vel. Verkframkvæmd 2. áfanga mið-
ar ágætlega áfram og er framvinda
nú á bilinu 55-60% af heildarverki. Í
framhaldinu verður 3. áfangi boðinn
út, þ.e. hjúkrunarheimilið sjálft. Út-
boð er áætlað í byrjun mars nk.
Áætluð verklok eru á fyrsta árs-
fjórðungi næsta árs 2022.
Arion banki flytur um set. Hús-
næði bankans var byggt af Búnaðar-
bankanum árið 1968 í framhaldi af
samningi hans og Sparisjóðs Stykk-
ishólms. Á síðustu árum hefur margt
breyst í þjónustu bankans og núver-
andi húsnæði of stórt þar sem aðeins
tveir starfsmenn eru orðnir eftir. Í
apríl flytur bankinn starfsemi sína í
nýtt húsnæði við Aðalgötu 24. Breyt-
ingar verða á starfseminni. Enginn
gjaldkeri verður lengur á staðnum
en hraðbankinn tekur við störfum
þeirra. Ekki er vitað hvort hann tek-
ur við mynt eða afgreiðir gjaldeyri.
Sæfell hf. í Stykkishólmi hefur
fest kaup á húsnæði Arionbanka og
fær það afhent 1. maí nk. Félagið
hyggst leigja það út sem skrifstofu-
húsnæði. Stærsti hluti húsnæðisins
verður leigður félaginu Suðureyjum
ehf. sem stofnað var sl. haust. Til-
gangur félagsins er að bjóða starfs-
aðstöðu m.a. frumkvöðlum, ein-
yrkjum og þeim sem stunda fjar-
vinnu og hafa áhuga á að vinna í
Hólminum. Allir sem þar starfa hafa
félagsskap og stuðning hver af öðr-
um. Fjölgun starfa án staðsetningar
passar vel inn í módelið. Starfsemin í
bankahúsinu gefur fólki kost á að
flytja í fjölskylduvænt umhverfi,
með aðlaðandi menningar- og fé-
lagslíf og öflugt íþróttastarf.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Stykkishólmur Fremst er nýtt hús, byggt í gömlum stíl. Það sómir sér vel
meðal annarra húsa í gamla miðbænum niðri við höfn.
Bjartsýni í Hólminum
þrátt fyrir atvinnuleysi
ÚR BÆJARLÍFINU
Gunnlaugur Árnason
Stykkishólmi
„Take away“ eru orð sem flestir
Hólmarar þekkja vel í dag. Veitinga-
staðir bæjarins hafa verið lokaðir
meira og minna í vetur. En það er
eitt sem hefur komið þeim til hjálpar
við að þreyja þorrann. Það er take
away. Veitingastaðirnir bjóða allir
upp á matseðil flesta daga þar sem
kaupandinn tekur matinn með sér
heim. Þessi nýja matarmenning nýt-
ur mikilla vinsælda.
Lionsklúbbur Stykkishólms
hefur undanfarin ár haldið kótel-
ettukvöld til fjáröflunar. Nú gafst
ekki tækifæri til veisluhalda og sama
átti við um þorrablótið sem haldið er
fyrsta laugardag í febrúar. Þess í
stað buðu Lionsfélagar upp á take-
away-kótelettur þorrablótskvöldið.
Hólmarar tóku vel við sér og um 200
skammtar voru keyrðir heim til
fólks.
Á næstu dögum verður bók-
hald Stykkishólmsbæjar opnað og
birt á heimasíðu bæjarins, en mark-
visst er einnig unnið að skilvirkari
og opnari stjórnsýslu hjá Stykk-
ishólmsbæ undanfarin ár. Rík
áhersla hefur verið á að fund-
argerðir bæjarstjórnar og fasta-
nefnda bæjarins séu greinargóðar
og auðlesnar. Nú birtast einnig
fylgiskjöl með sjálfvirkum hætti
með fundargerðum á heimasíðu bæj-
arins og fyrr á árinu hófust upp-
tökur á bæjarstjórnarfundum sem
eru aðgengilegar á netinu.
Rannsóknasetur Háskóla Ís-
lands á Snæfellsnesi var stofnað árið
2006. Jón Einar Jónsson vísinda-
maður er forstöðumaður. Æðarfugl
hefur verið aðalrannsóknategundin
frá upphafi en einnig hafa verið
rannsökuð um m.a. botndýr, bjarg-
fuglar, dílaskarfar og álftir. Stærsta
verkefnið eru árlegar merkingar á
æðarkollum á sunnanverðum