Morgunblaðið - 20.02.2021, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2021
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Komdu í BÍLÓ!
Nýskráður 07/2020, ekinn 5 Þ.km, bensín & rafmagn (plug in hybrid, drægni 69 km) 218 hö,
sjálfskiptur (8 gíra). Stafrænt mælaborð, 18“ álfelgur, Night pack o.fl.
Verð aðeins 5.990.
M.BENZ A 250 E SALOON
Eigumeinnig til steingráan bíl ekinn aðeins 3 þkm!
20. febrúar 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 128.93
Sterlingspund 180.04
Kanadadalur 101.78
Dönsk króna 20.952
Norsk króna 15.249
Sænsk króna 15.53
Svissn. franki 143.87
Japanskt jen 1.2203
SDR 185.62
Evra 155.8
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 188.2025
Hrávöruverð
Gull 1782.8 ($/únsa)
Ál 2147.0 ($/tonn) LME
Hráolía 65.02 ($/fatið) Brent
● Alls nam velta
tengd verslun og
þjónustu innan-
lands 63 millj-
örðum króna í jan-
úar sl. sem er 2,5%
aukning milli ára
miðað við fast
verðlag. Þetta
kemur fram í gögn-
um sem Seðla-
banki Íslands birti
í vikunni og fjallað er um í Hagsjá
Landsbankans.
Þar kemur einnig fram að kortavelta
Íslendinga erlendis hafi numið alls 8,7
milljörðum króna og dregist saman um
46% milli ára miðað við fast gengi.
Samanlagt dróst kortavelta saman
um 8% milli ára í janúar miðað við fast
gengi og fast verðlag.
Innlend greiðslukorta-
velta jókst milli ára
Verslun Veltan
jókst.
STUTT
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Athafnamaðurinn Kristján Berg Ás-
geirsson, betur þekktur sem Fiski-
kóngurinn, hyggst opna nýja verslun
með heita potta á fimmtugsafmæli
sínu 30. mars.
Verslunin Heitirpottar.is er nú á
Höfðabakka 1 við Gullinbrú en verð-
ur flutt á Foss-
háls 13, sunnan
Ölgerðarinnar, í
lok mars.
Kristján áætlar
aðspurður að
hafa selt heita
potta fyrir um
hálfan milljarð
króna í fyrra.
Áformað sé að
tvöfalda söluna í
ár og eru þá m.a. meðtaldar tekjur af
sölu gufubaða.
Kristján er fyrir löngu orðinn
þjóðþekktur sem Fiskikóngurinn en
hann hóf fisksölu árið 1989 er hann
var aðeins 18 ára gamall.
Vantaði pott í garðinn
Kristján seldi fiskbúðina Vör árið
2005 og varð hún hluti að Fiskisögu.
Árið 2006 flutti Kristján til Dan-
merkur og leið ekki á löngu þar til
athafnasemin gerði vart við sig.
„Ég var atvinnulaus og vissi ekki
hvað ég ætti til bragðs að taka. Ég
ákvað að kaupa mér heitan pott í
garðinn og hafði sem atvinnulaus
maður nægan tíma til að kynna mér
potta. Því lauk þannig að ég –
ofvirkur drengur úr Breiðholtinu –
var kominn með umboð fyrir þessa
potta í Danmörku og opnaði verslun
þar. Síðan opnaði ég verslun með
heita potta á Íslandi sem félagi minn
rak og gekk hún svo vel að ég var
stöðugt að fljúga heim til að hjálpa
honum að selja potta og taka á móti
gámum,“ segir Kristján.
Eiginkona hans, Sólveig Lilja
Guðmundsdóttir, fékk nóg af flakki
bónda síns og fór svo að þau fluttu
heim í september 2008 eða aðeins
nokkrum vikum fyrir hrunið.
Urðu að lúxusvöru
„Eftir hrunið urðu heitir pottar
lúxusvara og þeir seldust ekki í
nokkra mánuði. Þá var ég nýkominn
til landsins og átti stóran lager af
pottum, starði á vegginn og hugsaði
með mér: „Ég nenni þessu ekki leng-
ur“ og byrja aftur að selja fisk.
Þannig að árið 2009 opnaði ég Fiski-
kónginn á Sogavegi,“ segir Kristján.
Hann seldi heita potta samhliða
fisksölunni og fór svo að lagerinn
kláraðist. Til að anna eftirspurn hef-
ur Kristján farið með pottana í sífellt
stærri sýningarsali en rýmið tvöfald-
ast í 700 m2 á Fosshálsinum og er
lofthæðin fimm metrar. Húsnæðið
kostar 180 milljónir og endurbætur
70 milljónir. Að meðtöldum kostnaði
við nýjan lager segir Kristján nýju
verslunina kosta um hálfan milljarð.
Húsnæðið er hér sýnt á mynd og
sömuleiðis drög að útliti hússins. Um
er að ræða jarðhæð á Fosshálsi 13.
Spurður um staðarvalið bendir
Kristján á að atvinnuhúsnæði sé
víkjandi í Vogunum vegna þéttingar
byggðar, þ.m.t. í Dugguvogi. Þá sé
áformað að þétta byggð á Ártúns-
höfða með niðurrifi á atvinnuhús-
næði og uppbyggingu íbúða.
Þrengt að fyrirtækjum
„Hvar á fólkið að vinna? Því að
bílaverkstæðin og önnur þjónusta
sem maður þarf að nota er að fara
upp á Esjumela og á Vellina í Hafn-
arfirði. Það er því farið að þrengja
mjög að atvinnuhúsnæði en sjálfur
er ég að kaupa slíkt húsnæði og
breyta því í verslunarhúsnæði,“ seg-
ir Kristján sem gerir sér sem áður
segir vonir um að tvöfalda söluna
milli ára úr hálfum milljarði í einn
milljarð króna.
Máli sínu til stuðnings vísar hann
til þess að kórónuveirufaraldrinum
sé ekki lokið, ásamt því sem gæði
pottanna muni spyrjast út.
Meðal annars séu kaldir pottar í
tísku og salan á innrauðum sánaklef-
um sprungið út síðustu ár.
Þá hafi skapast mikil þörf fyrir
endurnýjun á heitum pottum.
Spurður hvort hann sé orðinn
sterkefnaður á viðskiptunum svarar
Kristján því til að fjölskyldan eigi
orðið fyrirtækin skuldlaust.
Stefnir á sölu heitra potta
fyrir milljarð króna í ár
Myndir/Heitirpottar.is/KJ hönnun
Á Fosshálsi Kristján hyggst opna stærstu verslunina í sögu landsins sem selur heita potta.
Fiskikóngurinn fjárfestir fyrir hálfan milljarð í nýju verslunarhúsnæði og lager
Kristján Berg
Ásgeirsson
Alls birtust rúmlega 1.800 greinar
og fréttir um Ísland sem áttu upp-
runa sinn í samskiptum Íslandsstofu
við fjölmiðla eða fjölluðu um verk-
efni á hennar vegum á síðasta ári.
Þetta kemur fram í frétt á vef Ís-
landsstofu en þar segir einnig að
þetta beri vitni um mikinn áhuga er-
lendra fjölmiðla á Íslandi.
Umfjallanirnar náðu til um 750
milljón neytenda og er virði um-
fjallananna gróflega metið á um 5,5
milljarða kr., eins og segir í fréttinni.
Heimsfaraldurinn vegna Covid-19
gerði það að verkum að samskipti
Íslandsstofu við erlenda fjölmiðla
hafa verið með óhefðbundnum hætti.
Í kastljósi vegna veirunnar
„Síðastliðið sumar var Ísland í
kastljósinu fyrir góðan árangur í
baráttunni gegn kórónuveirunni og
vann Íslandsstofa náið með utanrík-
isráðuneytinu við að svara fyrir-
spurnum áhugasamra fjölmiðla.
Fyrsti hluti markaðsherferðarinnar
Saman í sókn hófst svo í júlí og skil-
aði hún um 1.000 umfjöllunum um
Ísland og herferðina.“
1.800
fréttir
2020
Metið á um 5,5
milljarða króna
Kristján Ás-
geirsson
kveðst ein-
beita sér að
sölu heitra
potta frá
mars og
fram í októ-
ber en snúi
sér þá að
fisksölunni.
Kórónu-
veirufaraldurinn hafi aukið
eftirspurn eftir fiski.
„Við vorum að sinna veitinga-
stöðum en þeir urðu margir fyr-
ir höggi og lokuðu. Jafnframt
var mörgum fyrirtækjum lokað
og starfsfólkið vann heima. Fólk
þarf að borða og fer þá út í búð
að kaupa sér í soðið. Ég myndi
ætla að salan í fiskbúðum hefði
aukist um 18-30% milli ára,“
segir Kristján.
Fisksalan
18-30% meiri
VEIRAN HEFUR VÍÐA ÁHRIF
Heimavinna skapar
eftirspurn.