Morgunblaðið - 20.02.2021, Qupperneq 29
Ágætur maður sem var aðkoma með barn sitt ánámskeið hjá Skákskól-anum spurði hvort skák-
hreyfingin gæti ekki hafi not af söl-
um Rúgbrauðsgerðarinnar við
Borgartún og varð úr að sameinuð
keppni Meistaramóts Skákskóla Ís-
lands 2020 og Unglingameistaramót
Íslands 2020 fór þar fram um síð-
ustu helgi. Vegna Covid hafði báð-
um þessum mótum verið frestað sl.
haust.
Rúgbrauðsgerðin hefur áður kom-
ið við sögu skákarinnar á Íslandi og
verður það ekki rakið í löngu máli
en allir voru sammála um ágæti sal-
arkynna og aðstæður voru til fyr-
irmyndar. Omar Salama, alþjóð-
legur skákdómari, og Ingibjörg
Edda Birgisdóttir, aðalskákstjóri
mótsins, sáu til að allar viðureignir
mótsins væru sýndar í beinni út-
sendingu á netinu.
Til mikils var að vinna á mótinu
því að meðal verðlauna var sæti í
landsliðsflokki í húfi. Vignir Vatnar
Stefánsson var álitinn langsigur-
stranglegasti keppandinn; hann
hafði unnið bæði mótin 2019 en
efsta sætið hékk á bláþræði að
þessu sinni því í lokaumferðinni
varð hann að vinna Gauta Pál Jóns-
son, sem þá var einn efstur. Það
tókst eftir 72 leikja baráttu og loka-
staða efstu manna varð þessi:
1.-2. Benedikt Briem og Vignir
Vatnar Stefánsson 5 v. (af 6) 3.
Gauti Páll Jónsson 4½ v. 4.-5. Jó-
hann Arnar Finnsson og Pétur
Pálmi Harðarson 4 v. 6.-10. Símon
Þórhallsson, Kristján Dagur Jóns-
son, Arnar Milutin Heiðarsson.
Ingvar Wu og Adam Omarsson 3½
v.
Samkvæmt hefð var teflt um sig-
urvegaratitilinn eða -titlana öllu
heldur og á miðvikudagskvöldið fór
fram tveggja skáka einvígi Bene-
dikts og Vignis. Tímamörk voru 20:5
og vann Vignir báðar skákirnar og
er því aftur tvöfaldur sigurvegari.
Það er að vonum en hann getur
bætt sig mikið með því að leggja
harðar að sér við skákborðið. Í
keppni við enn sterkari skákmenn
dugar ekki að taka ákvarðanir hugs-
unarlaust. Dæmi:
Meistaramót Skákskólans/
Unglingameistaramót Íslands, 5.
umferð:
Vignir Vatnar Stefánsson – Jó-
hann Finnsson
Vignir lék nú án mikillar um-
hugsunar 37. Rd4 en eftir 37. …
Hd1! náði svartur jafntefli. Hannes
Hlífar Stefánsson benti á að hvítur
gat leikið 37. Hxf8+! því að 37. …
Kxf8 er svarað með 38. Hd8 mát.
Jóhann Arnar, sem hlaut fjóra
vinninga, náði bestum árangri
keppenda undir 2.000 elo-stigum.
Hann hækkaði um 28 elo-
kappskákstig. Kristján Dagur
Jónsson náði bestum árangri kepp-
enda undir 1.800 elo-stigum og
hækkaði sig mest allra keppenda
eða um 69 elo-kappskákstig. Þess
ber að geta að fyrstu tvær umferð-
irnar fóru fram með tímamörkum
at-skáka, 20:5.
Ingvar Wu var annar sem náði
góðum árangri. Snemma móts
vann hann mikinn varnarsigur yfir
einum þeirra sem voru taldir lík-
legir til að berjast um efstu sætin:
Meistaramót Skákskólans/
Unglingameistaramót Íslands, 3.
umferð:
Birkir Ísak Jóhannsson –
Ingvar Wu
Birkir hafði smátt og smátt
misst niður sigurvænlega stöðu
gegn úrræðagóðum andstæðingi
sem lék nú …
75. … Re4!
Til að svara 76. a8(D) með 76. …
Hb1 mát.
76. Hf8+ Kg4 77. Kg1
77. … Ha2?
Hann gat gert út um taflið strax
með 77. … Rg3! með óverjandi
hótun, 78. … Hg2 mát.
Framhaldið varð:
78. a8(D) Hxa8
79. Hxa8 Kg3
- og svartur átti vænlega stöðu
og vann skákina eftir 82 leiki en á
einum stað gat Birkir Ísak senni-
lega náð jafntefli.
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2021
Holtsgata 18, 260 Reykjanesbæ
Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is
Vel staðsett og gott 4ra herbergja parhús á tveimur hæðum,
miðsvæðis í Njarðvík. Stutt í skóla, leikskóla og þjónustu.
Jóhannes Ellertsson
Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677
Júlíus M Steinþórsson
Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555
Verð 38.500.000 122,8 m2
Eftir einelti RÚV og
Helga Seljan frétta-
manns í því máli sem
kallað var vafasöm við-
skipti Samherja og Þor-
steins Más forstjóra við
norska bankann DNB,
og látið að því liggja að
um glæpamál væri að
ræða, hefur sannleik-
urinn komið í ljós en
ekki til framdráttar ein-
eltisliðinu. Þarna var
um að ræða þá aðila hjá RÚV þar
sem ræður ríkjum Akureyringurinn
Stefán Eiríksson, sá sem hefur hrak-
ist á milli starfa hjá ríki og borg með
misjöfnum árangri, og eftirtekjur í
þessu Samherjamáli tómar lygar. Og
verst er að þessi stofnun, RÚV, sem
Stefán stýrir á þennan hátt, er rekin
fyrir almannafé svo mörgum millj-
örðum króna nemur.
Ríkissaksóknari Noregs hefur eft-
ir vandlega yfirferð mála komist að
þeirri niðurstöðu að fella beri niður
öll svokölluð sakamál sem til rann-
sóknar voru og fjölluðu um viðskipti
norska bankans DNB við Samherja
og Þorstein Má forstjóra fyrir-
tækisins. Rannsóknin beindist m.a.
að þeirri ásökun að um væri að ræða
peningaþvætti en ekkert það kom í
ljós, sem benti til þess að um slíkt
væri að ræða, segir í tilkynningu frá
norska bankanum.
Samherji og forstjóri þess sjáv-
arútvegsfyrirtækis hafa legið undir
ómaklegum og allt að því svívirðileg-
um ásökunum frá RÚV og aðstand-
endum um að peningaþvætti hafi
verið stundað í gegnum DNB-
bankann í Noregi
vegna útgerðar fyrir-
tækisins í Namibíu.
Niðurstaða rík-
issaksóknara Noregs,
eins og fyrr segir, um
niðurfellingu þessa
máls, sýnir svo ekki
verður um villst að ekk-
ert er hæft í fyrr-
greindum fullyrðingum
sem á borð hafa verið
bornar. Ástæða er fyrir
Samherja og Þorstein
Má að fagna þessari
niðurstöðu enda hefur
fyrirtækið og hann ávallt haldið því
réttilega fram að allar ásakanir um
vafasöm viðskipti við DNB í Noregi
séu ekki á rökum reistar og með öllu
tilhæfulausar.
RÚV og Helgi Seljan hafa farið
hamförum um meint svindl, pen-
ingaþvætti og mútur Samherja og
Þorsteins Más í Noregi og Namibíu
og málavextir meira og minna slitnir
úr samhengi. Meira að segja voru
greiðslur til skipverja, sem bárust í
gegnum norska bankann, gerðar tor-
tryggilegar. Er þar um mjög alvar-
legar ásakanir að ræða sem settar
voru fram um þessi viðskipti; þar hafi
verið um peningaþvætti að ræða og
jafnvel mútur.
Sannleikur í
Samherjamáli
Eftir Hjörleif
Hallgríms
» Ótrúleg og ósæmi-
leg framkoma
RÚV og tengdra aðila
gagnvart Samherja
og Þorsteini Má
Hjörleifur
Hallgrímsson
Höfundur er eldri
borgari á Akureyri.
Styrmir Kárason fæddist lík-
lega á árabilinu 1170-1180. Lítið
er vitað um ættir hans en talið
er að faðir hans hafi verið Kári
Runólfsson, d. 1187 eða 1188,
ábóti í Þingeyraklaustri. Þar
hafi Styrmir alist upp og dvalist
fram undir 1220.
Styrmir var vígður prestur og
var heimilisprestur hjá Snorra
Sturlusyni í Reykholti frá því
fyrir 1228 til 1235 og því líklegt
að hann hafi aðstoðað Snorra
við ritstörfin.
Styrmir var lögsögumaður
1210-1214 og 1232-1235, en varð
síðan príor, eða forstöðumaður,
klaustursins í Viðey 1235-1245.
Styrmir var kunnur rithöf-
undur og skrifaði Styrmisbók
Landnámu, en áður hafði verið
skrifuð Frum-Landnáma sem
var mun styttri. Útgáfa Styrmis
er glötuð sem heild en marga
hluta hennar er að finna í síðari
bókum Landnámu. Það sama á
við um Lífssögu Ólafs helga eft-
ir Styrmi. Kaflar úr henni eru
varðveittir í Flateyjarbók.
Styrmir er mjög líklega höf-
undur Harðar sögu og Hólm-
verja og hann skrifaði upp
Sverris sögu, en óvíst er hversu
mikið eða hvort hann átti þátt í
gerð hennar.
Talið er að sonur hans hafi
verið Valgarður Styrmisson
sem var fylgdarmaður Snorra.
Styrmir lést 20. febrúar 1245.
Merkir Íslendingar
Morgunblaðið/Ómar
Styrmir
Kárason
Viðey Styrmir var forstöðu-
maður í Viðeyjarklaustri.
Morgunblaðið/SÍ
Lokaumferðin Vignir Vatnar og Arnar Milutin virða fyrir sér stöðuna.
Fjær sjást Benedikt Briem og Pétur Pálmi Harðarson.
Nýr keppnisvett-
vangur sterkustu
unglingamótanna
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VEISTU UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?