Morgunblaðið - 20.02.2021, Side 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2021
Fegurðin er frá þér barst,
fullvel þótti sanna,
að yndið okkar allra varst,
engill meðal manna.
Hlutverk þitt í heimi hér,
þú hafðir leyst af hendi.
Af þeim sökum eftir þér,
Guð englahópa sendi.
Sú besta gjöf er gafst þú mér,
var gleðisólin bjarta,
sem skína skal til heiðurs þér,
skært í mínu hjarta.
(B.H.)
Elsku amma. Við vildum að
við hefðum fengið meiri tíma
með þér.
Takk fyrir að koma okkur í
heiminn. Við erum þér ævinlega
þakklát. Elskum þig.
Þín ömmubörn,
Fannar Ófeigur Alexson
og Ragnheiður Rósa
Arnórsdóttir.
Minningarnar streyma um
hugann og söknuðurinn er mik-
ill. Ragnheiði kynntist ég í Vest-
mannaeyjum árið 1982 þegar
hún var að vinna sem ljósmóðir
við Sjúkrahús Vestmannaeyja.
Þau kynni hófust með því að
Svala móðir mín stakk upp á því
við mig þá tíu ára gamla að
svara auglýsingu þess efnis að
gæta tæplega fimm ára gamall-
ar stúlku einstaka kvöld og um
helgar.
Hugmyndin var að við gætum
passað stúlkuna í sameiningu.
Dagurinn þegar þær mæðgur
Ragnheiður og Lollý komu fyrst
til okkar á Illugagötuna er mér í
fersku minni.
Samskipti okkar einkenndust
frá fyrsta degi af mikilli vináttu
og tryggð sem fylgt hefur okkur
alla tíð síðan.
Minnisstæð er fyrsta ferðin
með þeim mæðgum að Skúms-
stöðum þar sem ég gætti
Lollýjar á meðan Ragnheiður
skellti sér á þorrablót í Njálsbúð
en við áttum eftir það eftir að
eiga margar ljúfar stundir í
sveitinni sem hún unni þar sem
Ragnheiður átti ætíð samastað,
ekki síður hin síðustu ár eftir að
ég flutti á Hvolsvöll.
Heimili hennar og fjölskyldu
hennar stóð okkur ávallt opið og
eru margar eftirminnilegar
samverustundir með þeim í
Kvíslinni þar sem hlátur og
glaðværð einkenndi ljúfar
stundir.
Ragnheiður talaði ávallt fal-
lega um mömmu og umhyggjan
og hlýjan umvafði mig og það er
mér sérstaklega dýrmætt að
hafa fengið hana til að taka á
móti þremur börnum mínum í
heiminn. Hún fylgdist ávallt vel
með uppvexti þeirra en Ragn-
heiður var dásamleg barnagæla,
hafði mikla útgeislun og einstak-
lega góða nærveru.
Ragnheiður var traust vin-
kona sem alltaf var tilbúin að
hlusta, styðja og vera til staðar
og ómetanlegur er stuðningur
hennar við nám mitt í sjúkra-
liðafræðum.
Ragnheiður gat líka verið
beinskeytt, ákveðin, skemmti-
lega hreinskilin og hafði góðan
húmor.
Elsku Ragnheiður. Nú er
komið að kveðjustund. Minning-
arnar eru margar og góðar og
munu ylja mér alla tíð.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Hvíldu í friði elsku Ragnheið-
ur mín og hjartans þakkir fyrir
sanna vináttu og tryggð í gegn-
um árin. Þakka þér fyrir alla þá
ást, umhyggju og hlýju sem þú
sýndir mér og okkur fjölskyld-
unni.
Við þökkum þér samfylgdina
og biðjum góðan Guð að geyma
þig og varðveita.
Elsku Ófeigur, Ólafía Bjarn-
heiður (Lollý), Grétar, Guðríður
Bjartey, Ragnheiður Lilja og
fjölskyldur, við sendum ykkur
öllum okkar innilegustu samúð-
arkveðjur á þessum erfiðu tíma-
mótum. Megi góður
Guð styrkja ykkur og styðja í
sorginni.
Svandís Þórhallsdóttir
og fjölskylda.
Elsku Sigga mín er farin.
Sigga mín, dansdrottningin,
rauðvínsþambarinn, skófíkillinn,
stuðboltinn, stuðpúðinn, öxlin
mín.
Við vorum samferða í lífinu.
Fyrst og fremst sem vinkonur en
líka sem bekkjarsystur, sam-
starfskonur, „ská“-svilkonur, ná-
grannar og saumaklúbbssystur.
Kynni okkar hófust í Versló, í
þriðja bekk C. Við náðum strax
vel saman og urðum óaðskiljan-
legar, við Sigga og Þórdís. Á
Verslóárunum var margt brallað.
Upp í hugann koma „lærdóms-
ferðirnar“ í Þrastarból, útileg-
urnar sem farnar voru á appels-
ínugulu Simcunni,
útskriftarferðin til Acapulco með
viðkomu í New York og sauma-
klúbburinn Friðjón.
Sumarið eftir fjórða bekk
bauðst okkur Siggu að fara sem
ráðskonur norður í Fljót í nokkr-
ar vikur og elda ofan í vinnuflokk
hjá Fljótalaxi. Við tókum áskor-
uninni og héldum norður vopn-
aðar bókinni „Unga fólkið og eld-
hússtörfin“ og þannig blessaðist
eldamennskan, lax í flest mál og
karlarnir voru alsælir með ráðs-
konurnar kátu.
Um haustið fórum við Sigga í
örlagaríka Hollywoodferð. Sigga
hafði fyrr um sumarið hitt ungan
pilt í Þórsmörk sem henni leist
frekar mikið vel á. Pilturinn var
Bjarni og þarna kom Sigga auga
á hann aftur. Hún var skotin, en
þorði ekki að nálgast hann svo ég
dró piltinn út á dansgólfið til
okkar. Bjarni og félagar hans
Sigríður
Guðmundsdóttir
✝ Sigríður Guð-mundsdóttir
fæddist í Reykjavík
26. ágúst 1968. Hún
lést á Landspít-
alanum í Reykjavík
að kvöldi 23. janúar
2021. Útför hennar
fór fram 4. febrúar
2021.
Fyrir mistök
birtist þessi
minningargrein
ekki á útfarardegi Sigríðar.
Morgunblaðið biður hlut-
aðeigandi velvirðingar.
vissu ekki hvaðan á
sig stóð veðrið. Fé-
lagarnir komu í
humátt á eftir í
dansinn og úr urðu
tvö hjónabönd:
Sigga og Bjarni og
ég og Einar ná-
frændi Bjarna. Við
Sigga tengdumst
þar með fjölskyldu-
böndum sem styrkti
enn frekar vináttu
okkar.
Eftir að Versló lauk snerist líf-
ið um að mennta okkur og koma
okkur fyrir í atvinnulífinu, eign-
ast húsnæði og börn. Hanna
Hrund kom fyrst, þá Guðmundur
þremur árum seinna og Þórunn
og Dagur ári síðar. Við vorum
nágrannar, fyrst í Rofabænum
og svo í Selásnum. Haldin voru
ótal matarboð og krakkarnir
gistu sitt á hvað. Við ferðuðumst
um landið og utan þess, minning-
arnar eru óteljandi.
Eftir að leiðir okkar Einars
skildi fundum við Sigga og
Bjarni nýjan takt í vináttuna.
Birta kom í heiminn og þau
fluttu í Norðlingaholtið. Seinna
kynnist ég Orra mínum og þau
tóku honum opnum örmum.
Siggu biðu stór verkefni.
Fyrst tókst hún á við brjósta-
krabbamein og það gerði hún
með stæl, dyggilega studd af
Bjarna sínum, fjölskyldu og góð-
um vinum.
Nokkrum árum síðar komu
upp alvarleg veikindi hjá Degi.
Þá sáum við sem stóðum álengd-
ar að samstaða, kærleikur og
styrkur þessarar fjölskyldu er
engu líkur.
Það var gott að vera vinkona
Siggu. Hún var jákvæð og ráða-
góð og sagði það sem manni var
hollt að heyra. Svo var tími til að
gleðjast, slá á létta strengi og
skála í búbblum eða rauðu.
Elsku Bjarni, Guðmundur,
Dagur, Birta, Hulda, Guðmund-
ur, Helga, Fanney og Sigga
amma, megið þið finna styrk til
að takast á við sorgina og sökn-
uðinn. Minningin um yndislegu
Siggu lifir í hjarta okkar allra.
Anna Rún Ingvarsdóttir.
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta í yfir 70 ár
Við tökum vel á móti ástvinum
í hlýlegu og fallegu umhverfi
FALLEGIR LEGSTEINAR
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Á góðu verði
Verið velkomin
Opið: 11-16 virka daga
Elsku maðurinn minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, stjúpi og stjúpafi,
SIGMUNDUR SIGFÚSSON
geðlæknir,
lést á heimili sínu föstudaginn 29. janúar.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 22. febrúar klukkan 13.30. Því miður getur athöfnin
ekki verið öllum opin vegna sóttvarna. Streymt verður á
facebooksíðunni: Jarðarfarir í Akureyrarkirkju – beinar
útsendingar. Blóm eru vinsamlega afþökkuð en þeim sem vildu
minnast hans er bent á að styrkja góð málefni.
Ingiríður Sigurðardóttir
Marjón Pétur Sigmundsson Oorawan Sukphuwong
Sigfús Þór Sigmundsson Erna Hjaltested
Benedikt Sigmundsson Hala Mamdouhdóttir
Haraldur Sigmundsson
Steinunn Arnbjörg Stefánsd. Mathurin Matharel
barnabörn og stjúpbarnabörn
Elskuleg systir okkar, frænka og vinur,
ÞÓRA HARALDSDÓTTIR HOLME,
lést á spítala í heimaborg sinni Ósló,
sunnudaginn 14. febrúar.
Jóhanna Haraldsdóttir
Rebekka Haraldsdóttir Haugsted
Hrafnssynir, Hauksdætur og Haukssynir
Ástkær móðir, tengdamamma, amma
og langamma,
SIGRÚN ÓLÖF MARINÓSDÓTTIR,
lést á Landspítalanum Fossvogi aðfaranótt
mánudagsins 15. febrúar.
Útförin fer fram í kyrrþey.
Jón Gauti Guðlaugsson
Kári Gauti Guðlaugsson
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
GUÐMUNDUR MARÍSSON
bifreiðastjóri,
Maríubakka 20, Reykjavík,
lést á Landspítalanum Hringbraut
föstudaginn 12. febrúar. Útför hans fer fram frá
Árbæjarkirkju föstudaginn 26. febrúar klukkan 13 að
viðstöddum nánustu fjölskyldu og vinum. Við þökkum
auðsýndan hlýhug og samúð. Blóm og kransar eru
vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
orgelsjóð Árbæjarkirkju (reikningur 0113-26-577, kennitala
420169-4429).
Kári Marís Guðmundsson Anna Karen Arnarsdóttir
Anna María Guðmundsdóttir Bjarni Aron Þórðarson
Sveinn Ingi Ágústsson Charlotte Simonsen
og barnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, dóttir,
systir og amma,
HILDUR SVEINBJÖRNSDÓTTIR,
Hraunbæ 2, Reykjavík,
varð bráðkvödd á heimili sínu
miðvikudaginn 10. febrúar.
Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju föstudaginn 26. febrúar
klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu
aðstandendur viðstaddir athöfnina.
Björn Steinar Brynjólfsson Guðrún Kristín Einarsdóttir
Brynhildur Sara Brynjólfsd. Friðberg Óskar Sigurðsson
Bjarki Snær Brynjólfsson Signý Lind Elíasdóttir
Sveinbjörn Guðmundsson Guðný Sturludóttir
systkini hinnar látnu og barnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
BRYNHILDUR GUÐLAUG
KRISTJÁNSDÓTTIR
ljósmóðir,
frá Löndum í Stöðvarfirði,
Víðivöllum 16, Selfossi,
lést á hjúkrunaheimilinu Lundi á Hellu 12. febrúar.
Útförin fer fram frá Selfosskirkju miðvikudaginn
24. febrúar klukkan 14.
Streymt verður frá athöfninni á selfosskirkja.is.
Þórarinn Ingimundarson
Þórdís Þórarinsdóttir Gunnar Hrafn Sveinbjörnsson
Aðalheiður K. Þórarinsdóttir Árni Oddsson
Hjörtur Þórarinsson Eyrún Olsen
Brynja Þórarinsdóttir
Sigrún Þórarinsdóttir Stefán Sveinsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÁSTRÍÐUR ÞÓREY ÞÓRÐARDÓTTIR,
Ásta frá Hvítanesi,
lést á Dvalarheimilinu Höfða Akranesi
þriðjudaginn 16. febrúar. Útförin fer fram frá
Akraneskirkju mánudaginn 1. mars klukkan 13. Innilegar þakkir
til alls starfsfólks Dvalarheimilisins Höfða fyrir alúð og hlýju.
Athöfninni verður streymt á netinu frá vef Akraneskirkju.
Hlekk á streymi er hægt að nálgast á mbl.is/andlat.
Emil Þór Guðmundsson Guðbjörg Kristjánsdóttir
Sigríður Guðmundsdóttir Gunnar Sigurðsson
Ingibjörg Guðmundsdóttir Guðjón Þórðarson
Þórey G. Guðmundsdóttir Leifur Eiríksson
barnabörn og barnabarnabörn