Morgunblaðið - 20.02.2021, Qupperneq 47
ÍÞRÓTTIR 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2021
Aldrei hætta, aldrei gefast
upp. Þrátt fyrir að staðan sé erf-
ið má ekki gefast upp. Leikur KA
og Vals í Olísdeild karla í hand-
bolta á fimmtudaginn var sýndi
og sannaði að þetta er ekki búið
fyrr en síðasta nóta feitu kon-
unnar fjarar út.
Valur var með 27:23-forskot
þegar um þrjár mínútur voru
eftir en leiknum lauk með 27:27-
jafntefli. Undirritaður fylgdist
með leiknum í beinni textalýs-
ingu en þegar Arnór Snær Ósk-
arsson skoraði 27. mark Vals
skellti hann sér í eldamennsk-
una, viss um að úrslitin væru
ráðin.
Eftir kvöldmat kíkti ég yfir
úrslit kvöldsins. Um leið og ég
sá lokatölurnar frá Akureyri var
ég handviss um að ég þyrfti
sterkari gleraugu. Þetta gat ekki
staðist.
Eftir nánari athugun sá ég
að KA jafnaði með ótrúlegum
endaspretti, sem minnti helst á
þegar Ísland tapaði niður þriggja
marka forskoti á mettíma gegn
Austurríki á EM á heimavelli
Austurríkismanna árið 2010.
KA-menn spiluðu eld-
snöggar sóknir á lokakaflanum,
staðráðnir í að jafna metin þótt
staðan væri erfið. Á sama tíma
hikaði Valsliðið mikið, reyndi að
spila hægt og fór að verja for-
skotið. Það má ekki.
Þegar lið fara að hika og
verja forskot gegn andstæðingi
sem fer af öllum krafti í hverja
einustu sókn ertu að bjóða
hættunni heim. Það gerðu Vals-
menn á miðvikudag en leikmenn
KA eiga mikið hrós skilið fyrir að
gefast ekki upp.
Segja má að Valsmenn hafi
farið á taugum. Mikil orka fór í
hluti sem þeir hafa enga stjórn
á, eins og að deila við dómara
og ritara. Kannski voru KA-menn
svolítið heppnir og Valsmenn
óheppnir, en þú býrð til þína eig-
in heppni. Aldrei gefast upp.
BAKVÖRÐUR
Jóhann Ingi
Hafþórsson
johanningi@mbl.isKnattspyrnukonan Andrea Mist
Pálsdóttir er búin að skrifa undir
tveggja ára samning við sænska úr-
valsdeildarliðið Växjö. Andrea Mist
kemur frá FH. Frá þessu er greint
á Akureyri.net. Á dögunum var til-
kynnt að hin 22 ára gamla Andrea
Mist hefði gengið til liðs við Breiða-
blik að láni frá FH en nú hefur hún
verið keypt til Svíþjóðar. Växjö
endaði í sjötta sæti af 12 liðum í
sænsku úrvalsdeildinni á síðasta
keppnistímabili. Andrea hefur leik-
ið með Vorderland í Austurríki og
Orobica á Ítalíu.
Andrea Mist
til Svíþjóðar
Morgunblaðið/Eggert
Svíþjóð Andrea Mist Pálsdóttir er
komin til Svíþjóðar.
Sturlu Snæ Snorrasyni tókst ekki
að ljúka fyrri ferð í aðalkeppni
karla í stórsvigi á HM í alpagrein-
um í Cortina d’Ampezzo á Ítalíu í
gær. Sturla Snær var eini Íslend-
ingurinn sem komst áfram í aðal-
keppnina eftir að hafa hafnað í 17.
sæti í undankeppninni í gær.
Frakkinn Mathieu Faivre bar sig-
ur úr býtum en hann var með fjórða
besta tímann eftir fyrri ferð en
tryggði sér sigurinn með glæsilegri
seinni ferð. Sigurinn er sá fyrsti hjá
Faivre í greininni á heimsmeistara-
móti.
AFP
Skíði Sturla Snær Snorrason féll í
fyrri ferðinni á Ítalíu í gær.
Sturla lenti í
vandræðum
UNDANKEPPNI HM
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Íslenska kvennalandsliðið í hand-
knattleik býr sig nú undir að taka
þátt í undankeppni HM, sem fer
fram í Norður-Makedóníu dagana
19. – 21. mars næstkomandi. Ísland
er með heimakonum í Norður-
Makedóníu í riðli 2, ásamt Litháen
og Grikklandi. Tvö lið fara áfram úr
riðlinum í umspil um laust sæti á
HM 2021, sem áætlað er að fari
fram í desember á Spáni.
Upphaflega átti undankeppnin að
fara fram í byrjun desember og var
ráðgert að landsliðið kæmi saman í
Vestmannaeyjum dagana 28. sept-
ember til 3. október til þess að hefja
undirbúning fyrir undankeppnina.
Bæði æfingunum í Vestmanna-
eyjum og leikjunum í Norður-
Makedóníu var hins vegar frestað í
tengslum við kórónuveirufarald-
urinn.
Á síðasta ári náði íslenska lands-
liðið því einungis að hittast einu
sinni til æfinga, þar sem æfingar
hófust um miðjan júní og stóðu út
þann mánuð, og spilaði liðið ekki
einn einasta leik á árinu. Það voru
því miklir fagnaðarfundir í vikunni
þegar landsliðið kom loks saman til
æfinga á höfuðborgarsvæðinu og
hóf undirbúning fyrir undankeppn-
ina í næsta mánuði, en æfingar liðs-
ins standa yfir frá 17. til 21. febrúar.
Allt kemur fyrir ekki
„Það er mjög mikil tilhlökkun í
hópnum. Það hefur verið mjög
skemmtilegt að hitta allar stelp-
urnar aftur og fá loksins að æfa
saman. Við erum búnar að vera
nokkuð oft í startholunum, þ.e. ná-
lægt því að fara að æfa en allt kem-
ur fyrir ekki. Það er ótrúlega gaman
að fá þessa daga og mjög mikilvægt
að fá að spila okkur saman og aðeins
fá að rifja þetta allt saman upp,“
sagði Helena Rut Örvarsdóttir,
vinstri skytta í liði Stjörnunnar, í
samtali við Morgunblaðið rétt fyrir
æfingu landsliðsins í Víkinni í gær.
Þar sem ekki er um alþjóðlega
landsliðsviku er að ræða var ekki
mögulegt að fá þá leikmenn sem
spila erlendis til æfinga þessa vik-
una. Allir leikmennirnir 19 sem voru
valdir til æfinga spila því í Olísdeild-
inni hér á landi. Af þessum 19 leik-
mönnum eru fimm nýliðar, auk
tveggja leikmanna sem hafa leikið
tvo og einn landsleik.
Spurð um hvernig nýliðarnir og
reynsluminni leikmenn hafi litið út á
æfingunum sagði Helena Rut:
„Mjög vel. Æfingarnar hafa verið
mjög góðar og gott tempó á þeim.
Mér finnst þær hafa komið mjög
sterkar inn, bæði hvað varðar fé-
lagslega þáttinn og æfingarnar.“
Mjög góðir möguleikar
Henni líst vel á verkefnið sem bíð-
ur liðsins í mars í Norður-Makedón-
íu, en bendir á að óvissan í kringum
æfingar og leiki hafi verið óhentug.
„Mér líst bara vel á það. Þetta með
undankeppnina hefur einmitt verið
svona eins og með æfingarnar. Hún
átti að vera á vissum tíma og svo var
henni frestað. Þá veit maður aldrei
almennilega hvort maður eigi að
gera ráð fyrir því að hún fari fram
eður ei. En við erum mjög spenntar
og hlökkum til þess að fara loksins
að spila einhverja leiki saman.“
Aðspurð hvernig Helena Rut
mæti möguleika íslenska landsliðs-
ins í undankeppninni sagði hún: „Ég
tel þá bara góða. Við erum búnar að
vera að vinna í vörninni og erum
núna með tvær varnir í gangi sem
mér finnst mjög jákvætt. Við getum
þá notað þær báðar eða aðra þeirra
á móti öllum liðum. Ef við náum að
spila okkur vel saman og nýta okkar
styrkleika þá tel ég að við eigum
mjög góða möguleika.“
Erum búnar
að vera oft í
startholunum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Æfing Helena Rut Örvarsdóttir á landsliðsæfingu í Víkinni í gær.
Kvennalandsliðið í handknattleik æf-
ir saman í fyrsta sinn í átta mánuði
Breiðablik, Stjarnan og Valur eru öll
með fullt hús stiga í Lengjubikar
karla í fótbolta eftir sigra í gær-
kvöldi.
Valsmenn kjöldrógu 1. deildarlið
Grindavíkur á Origo-vellinum á
Hlíðarenda, 8:1. Tryggvi Hrafn Har-
aldsson og Sigurður Egill Lárusson
skoruðu tvö mörk hvor fyrir Val og
þeir Patrick Pedersen, Kristófer
Jónsson, Kristinn Freyr Sigurðsson
og Arnór Smárason komust einnig á
blað. Valur vann KA í fyrsta leik og
er með sex stig en Grindavík er án
stiga eftir tap fyrir HK í fyrsta leik.
Annar stórsigur Blika
Breiðablik fagnaði sínum öðrum
stórsigri í keppninni í ár en Kópa-
vogsliðið vann auðveldan 5:0-sigur á
1. deildarliði Þróttar á útivelli.
Thomas Mikkelsen og Gísli Eyjólfs-
son skoruðu í fyrri hálfleik og þeir
Brynjólfur Willumsson, Róbert Orri
Þorkelsson og Damir Muminovic
bættu við mörkum í seinni hálfleik.
Breiðablik er á toppi 4. riðils með tvo
sigra í tveimur leikjum og markatöl-
una 9:0. Þróttur er með þrjú stig eft-
ir sigur á Fjölni í fyrsta leik.
Í Garðabænum vann Stjarnan 2:0-
sigur á ÍA. Tristan Freyr Ingólfsson
kom Stjörnunni yfir á 10. mínútu og
Hilmar Árni Halldórsson bætti við
marki á 27. mínútu. Fleiri urðu
mörkin ekki, þrátt fyrir að Skaga-
maðurinn Ingi Sigurðsson hafi feng-
ið beint rautt spjald á 41. mínútu.
Stjarnan vann 3:2-sigur á Vestra í 1.
umferð og er því með sex stig eftir
tvo leiki. ÍA er með þrjú stig eftir
sigur á Selfossi í fyrsta leik.
Íslandsmeistararnir skoruðu átta mörk
Morgunblaðið/Eggert
Tvenna Sigurður Egill Lárusson skoraði tvö mörk í risasigri í gærkvöldi.
Handknattleikur
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Vestmannaeyjar: ÍBV – FH.............. S13.30
Höllin: Þór Ak. – KA............................... S16
Framhús: Fram – Stjarnan.................... S16
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Dalhús: Vængir Júpíters – Hörður....... L16
Körfuknattleikur
Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin:
DHL-höllin: KR – Snæfell ..................... S16
Borgarnes: Skallagrímur – Valur.......... S16
Ásvellir: Haukar – Fjölnir...................... S18
Knattspyrna
Deildabikar karla, Lengjubikarinn:
Skessan: FH – Víkingur R..................... L11
KR-völlur: KR – Fram........................... L11
Kórinn: HK – Afturelding ................ L11.30
Reykjaneshöllin: Keflavík – Vestri ....... L12
Breiðholt: Leiknir R. – ÍBV................... L13
Jáverk-völlurinn: Selfoss – Grótta........ L14
Akraneshöllin: Víkingur Ó. – KA.......... L16
Boginn: Þór – Kórdrengir................. L18.45
Egilshöll: Fjölnir – Fylkir...................... S15
UM HELGINA!
Evrópudeildin
Valencia - Real Madrid ....................... 89:78
Martin Hermannsson skoraði 9 stig, tók
4 fráköst og gaf 2 stoðsendingar á 18 mín-
útum með Valencia.
Valencia er í 10. sæti af 18 liðum með 13
sigra í 25 leikjum.
NBA-deildin
Milwaukee – Toronto ......................... 96:110
LA Lakers – Brooklyn....................... 98:109
Sacramento– Miami ......................... 110:118