Morgunblaðið - 20.02.2021, Síða 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2021
Rauðarárstígur 12-14, sími 551 0400 · www.uppbod.is
Vefuppboð nr. 528
Karl Kvaran
á uppboð.is til 3. mars
Kristján Davíðsson
Forsýning á verkunum hjá
Fold uppboðshúsi og á vefnum uppbod.is
PERLUR
í íslenskri myndlist
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Þessi sýning er um stúlku sem trúir
á kraftaverk. Þetta er myndræn upp-
lifun af innra ferðalagi stúlku sem
hefur svolitlar áhyggjur, því það er
margt að breytast í hennar lífi. Hún
hefur líka heyrt ýmislegt um um-
hverfismál sem hún hefur áhyggjur
af,“ segir Helga Arnalds, einn af höf-
undum og leikstjóri sýningarinnar
Stúlkan sem stöðvaði heiminn, sem
frumsýnd verður í Borgarleikhúsinu
í dag, laugardag.
Í kynningu kemur fram að á þess-
ari sýningu verði áhorfendur leiddir
úr einni veröld í aðra sem sé hver
annarri forvitnilegri, furðulegri og
fallegri. Þar er
líka fullyrt að allt
sé úr sama efninu,
ég og þú, hunda-
skítur og geim-
ryk. Einnig er
spurt hvort töfr-
andi ævintýra-
heimur geti orðið
til úr ruslinu sem
við hendum.
„Söguþráð-
urinn er einfaldur
en myndheimurinn þeim mun stór-
brotnari. Við upplifum einn dag í lífi
stúlku sem er að flytja og byrja í nýj-
um skóla. Fyrir vikið er ýmislegt að
angra hana, smá spenna og áhyggjur.
Hún hefur lengi verið heilluð af alls
konar dóti sem flestir aðrir myndu
kalla rusl. Hún býr til sinn eigin full-
komna heim úr þessu dóti. Þar fá ís-
birnir nóg að éta og þar er nægur
snjór, nóg pláss fyrir alla og allir eru
vinir. Þetta er hennar staður, en for-
eldrar hennar vilja að hún losi sig við
þennan heim, því þau vilja hafa allt
nýtt og smart í nýja húsinu. Sú krafa
slær stúlkuna þó nokkuð út af laginu
og áhorfendur fá að fylgjast með
hennar innra ferðalagi. Við sjáum til
skiptis inn í stelpuna, hennar tilfinn-
ingalíf, og það sem gerist fyrir utan,
með foreldrum hennar.“
Spinnum út frá ákveðnu efni
Sýningin um Stúlkuna sem stöðv-
aði heiminn er sett upp í samstarfi við
Leikhópinn 10 fingur, en þar er
Helga prímus mótor.
„Rétt eins og við hjá 10 fingrum
höfum oft gert í okkar sýningum, þá
spinnum við sýninguna með ákveðnu
efni. Sýningar okkar eru ekki unnar
út frá sögu eða handriti heldur tökum
við okkur margar vikur í að leika
okkur með ákveðið áþreifanlegt efni.
Í þessari sýningu leikum við okkur
með plast, en í sýningunni Skrímslið
litla systir mín notuðum við pappír og
í sýningunni Lífið, stórskemmtilegt
drullumall, spunnum við með mold.
Hvert efni segir okkur sína sögu, því
allt efni hefur einhverja merkingu í
huga okkar. Til dæmis er líklegt að
mold segi allt aðra sögu en plast.
Plastið tengjum við oft við mengun
og vandamál í nútímanum sem tengj-
ast umhverfismálum,“ segir Helga en
bætir við að í sýningunni sé samt á
vissan hátt farið gegn því.
„Sagan um stúlkuna fjallar ekki
beinlínis um umhverfismál eða um-
hverfiskvíða, en um leið og fólk horfir
á allt plastið í sýningunni þá óneitan-
lega gætu vaknað slíkar hugsanir.
Við segjum þetta allt saman með
plasti, en í sýningunni táknar plastið
samt fyrst og fremst tilfinningar
súlkunnar. Við erum inni í stúlkunni
og leikararnir eru þar starfsmenn á
plani. Þetta er einhvers konar flokk-
unar- og úrvinnslustöð þar sem unnið
er úr tilfinningum stúlkunnar á
myndrænan hátt. Ég myndi segja að
sýningin væri meira um það hvernig
við tökumst á við stórar tilfinningar
og óyfirstíganleg vandamál.“
Ekki síður fyrir fullorðna
Stúlkan sem stöðvaði heiminn er
titluð sem barnasýning, en hún er
fyrir alla fjölskylduna.
„Mér finnst allt of mikið gert af því
að setja sýningar í hólf, að flokka list-
sýningar annaðhvort fyrir börn eða
fullorðna. Við í 10 fingrum höfum lagt
áherslu á að gera sýningar sem höfða
alveg jafn sterkt til barna og fullorð-
inna. Við reynum ekki að setja okkur
í einhverjar stellingar til að búa til
leiksýningu fyrir börn, en samt tök-
um við auðvitað tillit til þess að börn
hafa stundum áhuga á ólíkum hlutum
en fullorðnir og eru oft með annan
vinkil. Við hugsum þessa sýningu
fyrir tíu til fjórtán ára, en við höfum
fengið til okkar yngri börn á æfingar
sem hafa notið hennar mjög vel, enda
er hún mjög sjónræn. Yngri börnin
lesa eitthvað annað úr sýningunni en
þau eldri og skemmta sér rosalega
vel.“
Mörk leikhúss og myndlistar
Helga stofnaði Leikhópinn 10 fing-
ur fyrir tæpum þrjátíu árum og
fyrstu árin má segja að það hafi verið
einnar konu leikhús.
„Ég stofnaði 10 fingur eftir að ég
kom heim úr námi í brúðuleikhúsi.
Ég bjó til sýningar sem ég fór með í
leikskóla og grunnskóla og ferðaðist
líka með þær út fyrir landsteinana.
Þetta voru sýningar þar sem ég gerði
allt, skrifaði handrit, hannaði leik-
mynd og lék öll hlutverkin. Þegar ég
var búin að vera í því í fimmtán ár
langaði mig að breyta til og skellti
mér í myndlistarnám í Listaháskól-
anum. Eftir námið breyttust sýning-
arnar mínar og fóru að verða enn
sjónrænni. Þá fór ég líka að rannsaka
þessa aðferð að spinna með efni þar
sem myndheimurinn er upphafs-
punkturinn. Leikhópurinn fór líka
stækkandi og sýningarnar urðu
stærri. Fyrsta sýningin sem ég gerði
með þessari aðferð var Skrímslið litla
systir mín sem ég vann með Char-
lotte Bøving og Eivöru Pálsdóttur.
Þá var ég ennþá á sviðinu sjálf en í
Lífinu steig ég út af sviðinu var í hlut-
verki leikmyndahönnuðar og með-
leikstjóra. Í Stúlkunni sem stöðvaði
heiminn leikstýri ég og Eva Signý
Berger, sem er ein af okkar fremstu
leikmyndahönnuðum, sér um leik-
myndina með mér. Við erum með frá-
bæran hóp af listamönnum bæði á
sviðinu og utan þess. Sólveig Guð-
mundsdóttir sem lék líka í Lífinu
leikur stúlkuna en með henni eru
Benedikt Karl Gröndal og Kjartan
Darri Kristjánsson. Valgeir Sigurðs-
son semur tónlistina, sem er alger-
lega samofin myndinni eins og hon-
um einum er lagið. Hljóðmyndin er
búin til úr hljóðinu í plastinu sem
hann svo töfrar fram tónlist úr. Dans-
höfundurinn Katrín Gunnarsdóttir
setur svo sterkan svip á sýninguna
með öguðum sviðshreyfingum og
Sigríður Sunna Reynisdóttir hefur
verið mín hægri hönd sem aðstoðar-
leikstjóri,“ segir Helga og bætir við
að í leikhópnum 10 fingur sé leikið
með mörk leikhúss og myndlistar.
„Markmiðið er ekki endilega að all-
ir áhorfendur sjái það sama, okkur
finnst gaman ef fólk sér mismunandi
hluti úr sömu sýningu. Krakkar eru
rosalega flinkir að lesa í myndmál og
myndlíkingar, þau eru í raun betri í
því en við fullorðna fólkið, þau hugsa
oft meira abstrakt en við.“
Passa að valta ekki yfir lífið
Helga segir að það sem hafi m.a.
verið nýtt í ferlinu í vinnslu þessarar
sýningar sé tækni sem hún hafi verið
að læra og kallast „focusing“.
„Heimspekingurinn Eugene
Gendlin hefur þróað þessa aðferð í
fimmtíu ár, en þetta er leið sem
hjálpar manni að nálgast það sem
líkaminn veit en getur verið erfitt að
koma í orð, að fara ekki inn í hugann
heldur gefa sér næði og vera opin
fyrir því hvað við skynjum í líkam-
anum. Hvaða mynd kemur til dæmis
upp í hugann þegar tveir leikara tog-
ast á með plast? Þegar maður hefur
verið að spinna og fengið alls konar
opnar hugmyndir og ætlar svo að
matreiða það yfir í leikhús, handrit
og sögu, þá þarf að passa að valta
ekki yfir lífið sem við höfum fundið í
efninu, þess vegna fannst mér svo
frábært að læra þessa nýju aðferð.
Þetta fer síðan inn í söguþráðinn, því
stúlkan í sýningunni er í raun að fara
í gegnum ferli þar sem hún er að átta
sig á tilfinningum sínum, hvað er að
gerast inni í henni, hvernig hún nær
að vinna úr þessum hnút sem hún
finnur fyrir. Þetta finnst mér rosa-
lega spennandi núna.“
Ljósmynd/Leifur Wilberg
Myndræn upplifun af innra ferðalagi
„Í þessari sýningu leikum við okkur með plast,“ segir Helga Arnalds um Stúlkuna sem stöðvaði heiminn
Plast Benedikt Karl Gröndal,
Kjartan Darri Kristjánsson og
Sólveig Guðmundsdóttir í hlut-
verkum sínum í sýningunni
Stúlkan sem stöðvaði heiminn.
Helga Arnalds
Ljósmynd/Saga Sig.