Morgunblaðið - 20.02.2021, Síða 49
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Báðar þessar plötur komu útseint á síðasta ári og erutengdar, m.a. í gegnum
trymbilinn Magnús en einnig hljóð-
rænt séð. Á nokkurs konar djassrófi
gætum við sagt, önnur úr spunaskól-
anum en hin af formlegra tagi.
Byrjum á „eðlilegheitunum“,
hinni stórgóðu hits of sem er önnur
plata hist og.
Fyrsta platan,
Days of Tundra,
kom út 2019 (og
með eðlilegheit-
um, þá er það í
sjálfsögðu í
samanburði við
hina plötuna. Ró-
legir strákar!).
Sveitin var stofn-
uð árið 2017 í
tengslum við
Norður og niður-
hátíð Sigur Rósar
og er skipuð þeim Magnúsi Trygva-
syni Eliassen, Eiríki Orra Ólafssyni
og Róberti Reynissyni. Þeir félagar
hafa m.a. komið fram með múm,
amiinu og Sin Fang en eiga líka allir
rætur í djassi. Þessi plata, líkt og sú
fyrri, er nokkurs konar leikur að
þessu tvennu; framsækin og til-
raunakennd tónlist af popp/rokkkyni
en með þéttan djassvöndul í rassvas-
anum að auki. Auk þess er raf- og
sveimtónlist hent í hræruna. Albert
Finnbogason hljóðritaði og -bland-
aði en Ívar Ragnarsson hljómjafn-
aði. Platan rúllar frábærlega og
þetta er hörkustöff, svo ég sletti. Og
Þráðinn þeir spunnu
Áfram Magnús Trygvason Eliassen, Eiríkur Orri Ólafsson og Róbert Reynisson skipa hist og.
víða er komið við. Stundum eru
menn slakir, stundum brjálaðir. Sjá
t.d. „tardigrade“, rúmlega tveggja
mínútna ofsi hvar rafgítar Róberts
hljómar eins og hann sé að bráðna.
Trommurnar koma svo inn á harða-
hlaupum og trompet Eiríks verður
dýrvitlaus um leið. Í öðrum lögum
má heyra blæ frá Tortoise og þýsku
súrkálsrokki og í „þíða“ er mjög flott
ECM-stemning, sveimbundinn
túndrudjass sem nikkar höfði til átt-
unda áratugarins. Alls konar í gangi
en stimpill þessa ofurtríós kirfilega á
öllum smíðum.
Hin platan, sem heitir einfald-
lega eftir hljóðfæraleikurunum,
þeim Sölva Kolbeinssyni og Magnúsi
Trygvasyni Eliassen, inniheldur
spuna sem tekinn var upp 5. janúar á
síðasta ári (Sundlaugin) þó að platan
sjálf hafi svo ekki komið út fyrr en í
október á síðasta ári (Albert aftur á
tökkunum). Þeir félagar taka lög á
borð við „The Sphinx“ eftir Ornette
Coleman, „In Walked Bud“ eftir
Thelonious Monk og „Celia“ eftir
Bud Powell og túlka þau dæmalaust
frjálslega. Sjá t.d. „Mandeville“ eftir
Paul Motian sem er fallega skælt, á
því hægt og melódían tekin glæsi-
lega úr upprunalega rammanum.
Þeir félagar vanda sig svo við að
setja sitt einkenni, sína túlkun á
framvinduna sem og í verkinu öllu.
Eða eins og Sölvi sagði í samtali við
Helga Snæ Sigurðsson, kollega
minn á Morgunblaðinu: „Þetta er
mikið flæði, við erum að spinna inn
og út úr þessu þannig að fyrir mörg-
um mun þetta hljóma mikið sem
frjáls spunatónlist ef þeir þekkja
ekki lögin og jafnvel þótt þeir þekki
þau. Við notum þessi lög mikið sem
stökkpall út í spuna og reynum að
halda þessu eins opnu og við getum.“
Báðar plöturnar tilheyra á ein-
hvern hátt spennandi og alíslenskri
djass/spunasenu sem hverfist m.a.
um hinn glæsilega tónleikastað
Mengi. Það er svo Reykjavík Record
Shop sem gefur báðar plöturnar út
en búðin hefur og gefið út plötur
með Ingibjörgu Elsu Turchi og
Tuma Árnasyni (ásamt Magnúsi
Trygvasyni Eliassen) sem koma úr
líkum ranni. Búðin hefur þannig
styrkt vel við þessa senu, ef senu
mætti kalla, og hefur reyndar verið
að gefa út fjöldann allan af plötum
síðustu misseri af hinum marg-
víslegasta toga.
» Sjá til dæmis„tardigrade“, rúm-
lega tveggja mínútna
ofsi hvar rafgítar Ró-
berts hljómar eins og
hann sé að bráðna.
Hljómsveitin hist og og
þeir Sölvi Kolbeinsson
og Magnús Trygvason
Eliassen gáfu út merk-
ar plötur á síðasta ári
sem verða gerðar að
umtalsefni hér.
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2021
Sýningin Sköp-
un bernskunnar
2021 verður
opnuð í Lista-
safninu á Akur-
eyri í dag og er
það áttunda sýn-
ingin sem sett er
upp undir heit-
inu Sköpun
bernskunnar.
Sýningin er sett
upp sem hluti af safnfræðslu með
það markmið að gera sýnilegt og
örva skapandi starf barna á aldr-
inum fimm til sextán ára, eins og
segir á vef safnsins. Þátttakendur
hverju sinni eru skólabörn og
starfandi myndlistarmenn og
vinna þátttakendur verk sem falla
að þema sýningarinnar sem er
Gróður jarðar.
Myndlistarmennirnir sem boðin
var þátttaka í ár eru Eggert Pét-
ursson og Guðbjörg Ringsted en
bæði eru þau þekkt af málverkum
sínum af blómum og jurtum. Skól-
arnir sem eru með að þessu sinni
eru leikskólinn Iðavellir og grunn-
skólarnir Glerárskóli, Síðuskóli og
Giljaskóli en einnig koma að sýn-
ingunni Minjasafnið á Akureyri og
Leikfangahúsið. Leikskólabörnin
vinna sín verk á listasafninu undir
handleiðslu Guðbjargar og Guð-
rúnar Pálínu Guðmundsdóttur,
fræðslufulltrúa og sýningarstjóra.
Myndmenntakennarar grunnskól-
anna sem taka þátt í sýningunni
stýra þeirri vinnu sem unnin er
sérstaklega fyrir hana, í samstarfi
við nemendur.
Sköpun bernsk-
unnar 2021 opnuð
Guðrún Pálína
Guðmundsdóttir
Aron Leví Beck opnar myndlistar-
sýningu í Hannesarholti í dag kl.
15. Aron hefur frá unga aldri
heillast af litum, formum, list og
sköpun og sækir hann innblástur í
verk sín í nærumhverfi sitt, en
borgin, húsin og skipulagið eru
honum afar kær. Listamaðurinn
hefur fleiri en eina tengingu við
viðfangsefnið, allt frá því að mála
hús yfir í að starfa við skipulag
borgarinnar. Hallgrímskirkja er
einkennandi í mörgum verkanna,
segir m.a. í tilkynningu.
Aron Leví sýnir
í Hannesarholti