Morgunblaðið - 27.03.2021, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 27.03.2021, Qupperneq 1
Líf mitt er í lit Búdda- munkur selur söl Klæðskerameistarinn, fata-hönnuðurinn, leikmynda- ogbúningahöfundurinn og hatta-daman Helga Rún Pálsdóttirhefur lifað litríku lífi. Hún sá umbúninga fyrir leikhús og sjónvarpum árabil en vinnur í dag hjáÖssuri. Vinnuna fékk hún eftirað hafa kvartað yfir útliti spelknasem hún þurfti að nota. 12 28. MARS 2021 SUNNUDAGUR Borg úr hrauni Eyjólfur Frið-geirsson er zen-búddamunkursem rekur fyrirtækið Íslensk hollusta. 8 Eitthvað alveg nýtt Lilja Nótt Þórarins-dóttir hefur óbifanditrú á sjónvarps-þáttunum Systra-böndum. 28 Er hægt að nota hraunrennslitil að mynda burðargrindfyrir borgir og mannvirki? 18 ELDGOS Christine G ísla Notar íbúð í vesturbæn um sem sumar bústað. Laugardag ur 27. mar s 2021 mbl.is/fast eignirFasteignir BLAÐIÐ BARNA- 13. tbl. • 28. mars 2021 HELGARÚTGÁFAN Allt um eldgosið, sérblað um fasteignir, Barnablaðið og sunnudagsblað Morgunblaðsins L A U G A R D A G U R 2 7. M A R S 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 73. tölublað . 109. árgangur . Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Kvikan sem kom upp í byrjun var 1.220-1.240°C heit. Við höfum aldrei áð- ur séð jafn heitt efni koma upp í eld- gosum á Íslandi,“ sagði Ármann Hös- kuldsson, eldfjallafræðingur og rannsóknaprófessor við Háskóla Ís- lands um eldgosið í Geldingadölum. Hann sagði að stöðugt og jafnt flæði kviku í eldgosinu kæmi mest á óvart. „Gosið hefur haldið áfram meira og minna á sama róli frá því það hófst. Kvikan er mjög heit og hún er farin að bræða innan úr gosrásinni. Þá kemst upp meiri kvika en þetta veldur því líka að gosrásin verður stöðugri. Það er engin spenna í jarðskorpunni sem ýtir á að loka henni,“ sagði Ármann. Hann telur að héðan af þurfi að verða einhver breyting efst í jarðskorpunni, t.d. vegna jarðskjálfta, til að loka gosrás- inni. Áætlað er að hún sé 1-2 metrar í þvermál efst en víkki eftir því sem neð- ar dregur. Betra aðgengi ferðafólks Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ferða- málaráðherra hefur ákveðið að fram- kvæmdasjóður ferðamála leggi allt að tíu milljónir í að bæta aðgengi fyrir þá sem vilja skoða jarðeldana á Reykja- nesi. Grindavíkurbær fær styrkinn og mun halda utan um framkvæmdirnar. Búið er að stika gönguleið en einnig á að setja upp salernisaðstöðu, bílastæði, skilti og merkingar og ganga frá slóð- um utan Suðurstrandarvegar. FETAR, landssamtök fyrirtækja sem eru í ferðaþjónustu allt árið jafnt á hálendi og láglendi, eru reiðubúin til að sinna farþegaflutningum að og frá Geldingadölum á sérútbúnum bílum og með reyndum ökumönnum. FETAR hefur óskað eftir samtali við skipulags- yfirvöld, landeigendur og ferðaþjón- ustuna á Reykjanesi um slíka þjón- ustu. Jafnt flæði heitustu kviku - Kvikan bræðir gosrásina að innan - Tíu milljónir í að bæta aðgengi ferðamanna að gosinu - Félög í FETAR reiðubúin að flytja ferðamenn á sérútbúnum jeppum Eldgos í Geldingadölum » Gosið hófst föstudags- kvöldið 19. mars kl. 20.45. » Gosrásin liggur niður í gegn- um jarðskorpuna alla leið að möttlinum þaðan sem kvikan streymir upp. » Sextán síðna sérblað um eldgosið fylgir Morgunblaðinu í dag, með ítarlegri umfjöllun í máli og myndum, auk yfir- gripsmikilla korta. MEldgos á Reykjanesskaga »2 _ Helgu Rún Pálsdóttur hönnuði varð ekki um sel þegar hún þurfti að vera með spelkur frá Össuri á hnjám því þær voru ljótar og fyrir- ferðarmiklar. Hún kvartaði sáran og stoðtækjafyrirtækið brást við með því að bjóða henni vinnu sem hún tók. „Í dag eru þessar spelkur orðnar fyrirferðarlitlar og hægt að vera í þeim undir leggings og það sést ekki að þú sért í þeim undir,“ segir Helga Rún í viðtali í Sunnu- dagsblaðinu um litríkan feril sinn. Morgunblaðið/Ásdís Fjölhæf Helga Rún Pálsdóttir hönnuður. Kvartaði sáran og var boðin vinna Hótelstjórar lýsa því í samtali við Morgunblaðið að hertar samkomu- reglur séu mikið högg fyrir við- skiptin. Á sama tíma segjast þeir styðja aðgerðirnar og vona að þær skili tilætluðum árangri. Aron Páls- son, hótelstjóri á Hótel KEA á Akureyri, segir að upplifunin nú sé svipuð og í upphafi faraldursins fyrir ári. „Helgin núna var fullbókuð en er dottin út. Við áttum von á hátt í 200 gestum.“ Kristbjörg Edda Jóhanns- dóttir, hótelstjóri á Sigló hóteli, seg- ir að samkomubannið sé gríðarlegt áfall fyrir hótelið. „Við sáum fram á góða tíð. Það var fullbókað allar helgar út maí og vel bókað á virkum dögum einnig.“ Á Ísafirði voru 60 konur afboð- aðar á skíðagöngunámskeið. »6 Morgunblaðið/Eggert Skíði Margir þurfa að endurskoða ferðaáætlanir í páskavikunni. Mikið högg fyrir við- skiptin Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, mætir á blaðamannafund, sem haldinn var í gær í tengslum við morðið í Rauðagerði 13. febrúar. Játning í málinu liggur fyrir og er hún tekin gild, þar sem hún kemur heim og saman við gögn og kenningar lögreglu. Morðvopnið fann lögregla í sjó úti fyrir Reykja- vík. Margeir Sveinsson yfirlögregluþjónn segir málið hafa tekið á starfsfólk sitt. »4 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Játningin tekin gild en málið ekki enn upplýst að fullu hekla.is/skodasalur · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · HEKLA ENYAQ iV Ermættur! RAFMAGNAÐUR 412 til 536 km drægni skv. WLTPVerð frá 5.790.000 kr. KOMDU OG SKOÐAÐU

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.