Morgunblaðið - 27.03.2021, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2021
Þrátt fyrir minni notkun á ópíóíðum í
heild á síðasta ári, miðað við af-
greiddar ávísanir, er eftirtektarverð
hin mikla fjölgun sem varð á þeim
fjölda einstaklinga í elstu aldurshóp-
unum sem leysti út lyf sem innihalda
oxýkódón árið 2020, að því er segir í
Talnabrunni, fréttabréfi landlæknis.
„Möguleg skýring á þessari aukn-
ingu gæti verið lengri biðtími eftir
skurðaðgerðum sem tilkominn er
vegna áhrifa heimsfaraldurs af völd-
um Covid-19. Þá virðist hugsanlegt
að fjölgun þeirra sem fá ávísað oxý-
kódóni haldist í hendur við fækkun
þeirra sem fá ávísað tramadóli,“ seg-
ir í Talnabrunni.
Þar er m.a. fjallað um þróun í
notkun ópíóíða. Ópíóíðar eru aðal-
lega notaðir til verkjastillingar við
miklum eða í meðallagi miklum
verkjum. Til ópíóíða teljast meðal
annars kódeín, morfín, fentanýl,
tramadól og oxýkódón. Ópíóíðar falla
í flokk ávana- og fíknilyfja en lang-
tímanotkun þeirra getur valdið því
að notandinn verður háður lyfjunum
vegna vanabindingar eða líkamlegr-
ar fíknar, segir í Talnabrunni.
Segir þar að ljóst sé að breytingar
hafi átt sér stað á ávísanamynstri
ópíóíða á síðastliðnum þremur árum
og að þeim hafi fækkað umtalsvert
sem fái ávísað lyfjum í flestum und-
irflokkum ópíóíða, að oxýkódóni og
oxýkódóni/naloxóni undanskildu.
Nánari greining á ávísuðu magni
ópíóíða eftir undirflokkum sýnir að
lyfjablöndur með kódeíni og para-
setamóli eru mest notaða lyfið eða
um 66% af því heildarmagni ópíóíða
sem ávísað var árið 2020. Þar á eftir
var tramadól (21%), oxýkódón (5,1%)
og morfín (4,1%) árið 2020.
Munur á kynjum
Á milli áranna 2013 og 2016 jókst
fjöldi notenda ópíóíða um 9,2% eða
úr 185 einstaklingum á hverja 1.000
íbúa árið 2013 í 202 á hverja 1.000
íbúa árið 2016. Síðan þá hefur þeim
fækkað sem leysa út a.m.k. eina ávís-
un á ópíóíða á ári hverju, í 157 ein-
staklinga á hverja 1.000 íbúa árið
2020. Þetta samsvarar 22% sam-
drætti.
Greinilegur kynjamunur er á
notkun ópíóíða en konur eru meiri-
hluti notenda slíkra lyfja. Á árinu
2020 fengu 184 af hverjum 1.000 kon-
um ávísað ópíóíðum en 131 af hverj-
um 1.000 körlum. Körlum sem leysa
út ávísun á ópíóíða, hefur fækkað
hlutfallslega meira en konum á und-
anförnum árum eða um 24% frá
árinu 2016. Samsvarandi tala fyrir
konur er 21%.
Dregur úr notkun ópíóíða
- Notkun á oxýkódón hefur aukist í elstu aldurshópunum
- Möguleg skýring gæti verið lengri biðtími eftir aðgerðum
Talnabrunnur Fjallað er um þróun í
notkun ópíóíða hérlendis síðustu ár.
Blaðamannafélag Íslands
Aðalfundur BÍ 2021
Fimmtudaginn 29. apríl kl. 20.00 í Síðumúla 23
Aðalfundur Blaðamannafélags Íslands árið 2021 verður
haldinn fimmtudaginn 29. apríl nk. að Síðumúla 23,
3. hæð, 108 Reykjavík þar sem félagið er til húsa og
hefst fundurinn stundvíslega kl. 20.00.
BÍ-félagar eru hvattir til að mæta
*Framboð til formanns BÍ þarf að berast skrifstofu BÍ ekki
síðar en tveimur vikum fyrir boðaðan aðalfund.
Ath.: Athygli er vakin á að vegna veirunnar, covid-19,
og röskunar af hennar völdum, gæti komið til
frestunar fundarins.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Skýrslur frá starfsnefndum
Kosningar*
Lagabreytingar
Önnur mál
Jóhann Ólafsson
Oddur Þórðarson
Játning liggur fyrir vegna mann-
dráps við Rauðagerði þegar albönsk-
um karlmanni var ráðinn bani rétt
fyrir miðnætti 13. febrúar síðastlið-
inn.
Þetta kom fram í máli Margeirs
Sveinssonar yfirlögregluþjóns á
blaðamannafundi vegna málsins, sem
haldinn var síðdegis í gær. Ásamt
Margeiri voru viðstaddar Halla
Bergþóra Björnsdóttir, lögreglu-
stjóri á höfuðborgarsvæðinu, og
Hulda Elsa Björgvinsdóttir, sviðs-
stjóri ákærusviðs.
Skotinn níu sinnum
Armando Bequiri, albanskur mað-
ur búsettur á Íslandi, var skotinn níu
sinnum fyrir utan heimili sitt við
Rauðagerði. Skotvopnið fann lög-
regla í sjó við höfuðborgina. Maður-
inn neitaði sök í upphafi en játaði þeg-
ar hann var „kominn upp að vegg“,
eins og Margeir orðaði það á fund-
inum.
Margeir sagði játningu passa við
gögn og kenningar lögreglu um
hvernig atburðarásin var en þeir sem
eru taldir eiga mesta aðild að málinu
eru frá Albaníu, líkt og hinn látni. Sá
sem játaði kom hingað til lands frá
Albaníu fyrir sjö eða átta árum.
Málið ekki að fullu upplýst
Margeir tók sérstaklega fram að
fylgst yrði áfram með framvindu
mála varðandi mögulegar hefndar-
aðgerðir eftir að játning liggur fyrir.
Lögregla telur sig vita ástæðu
morðsins en segir ekki tilefni til að
upplýsa um hana á þessari stundu.
Enn fremur er talið að fórnarlamb-
ið í málinu hafi tengst skipulagðri
brotastarfsemi.
Í samtali við mbl.is eftir fundinn í
gær sagði Margeir að málið væri enn
til rannsóknar. Hann lýsti því svo að
málum sem þessu mætti skipta upp í
þrjú stig; skipulagningu verknaðar-
ins, framkvæmd hans og loks eftir-
mál af verknaðinum og framvindu
málsins. Margeir segir að stig tvö,
framkvæmd verknaðarins, sé nú upp-
lýst, en stig eitt og þrjú séu enn til
rannsóknar.
Ljósmynd/lögreglan
Blaðamannafundur Halla Bergþóra Björnsdóttir, Margeir Sveinsson og Hulda Elsa Björgvinsdóttir.
Vatnaskil í rannsókn
Rauðagerðismálsins
- Játning Albana tekin gild - Málið hefur tekið á lögregluna
Af sex innanlandssmitum Covid-19
sem greindust í fyrradag voru fimm
greind í sóttkví. 95 eru nú skráðir í
einangrun með virkt smit þar til nýj-
ar tölur berast klukkan 11 í dag og
1.279 í sóttkví. Enginn liggur inni á
sjúkrahúsi með Covid-19-sjúkdóm-
inn. Öll smitin sem greindust í fyrra-
dag eru í yngri aldurshópunum.
Greint var frá smiti hjá flugfélag-
inu Erni í gær og þurfti allt starfs-
fólk félagsins að fara í sóttkví og
voru allar ferðir þess frá og með
gærdeginum og til og með 30. mars
felldar niður. Smitið reyndist ekki
tengjast útsýnisflugi flugfélagsins
yfir gossvæðið í Geldingadölum.
Fregnir af smitinu kölluðu þó á um-
ræður um smitvarnir á gosstað þar
sem mörg hundruð manns koma
saman utandyra þegar mest lætur.
Almannavarnir hafa tekið upp á að
senda sms-sendingar í alla síma í ná-
grenni við gosstaðinn þar sem fjar-
skiptabúnaði var komið upp á svæð-
inu í fyrradag af öryggisástæðum.
Sms-skilaboðunum er ætlað að
minna göngugarpa og gos-gesti á að
halda sóttvörnum.
Fimm voru greindir með kórónu-
veirusmit á landamærunum á Seyð-
isfirði við komu Norrænu á þriðju-
dag. Tveir greindust smitaðir við
komu um borð í Hirtshals í Dan-
mörku og bættust þrír í hóp smit-
aðra við komu til Íslands.
70 ára og eldri voru boðaðir í bólu-
setningu í Laugardalshöll í gær.
4.400 manns voru bólusettir með
bóluefni frá AstraZeneca, þeirra á
meðal Kári Stefánsson, forstjóri Ís-
lenskrar erfðagreiningar. Tafir urðu
á bólusetningu vegna góðra heimta í
mætingu boðaðra.
Tæplega 1.300
manns í sóttkví
- Sex smit í fyrradag - Varað við smit-
hættu í Geldingadölum - Bólusett í gær
Morgunblaðið/Eggert
Bólusettur Kári Stefánsson fékk
sprautuna langþráðu í gær.
Orri Páll Orm-
arsson, blaða-
maður hjá Morg-
unblaðinu, hlaut
Blaðamannaverð-
laun BÍ fyrir við-
tal ársins. Þetta
var tilkynnt í
beinu streymi
Blaðamanna-
félags Íslands í
gær.
Viðtalið tók Orri Páll við Ingva
Hrafn Jónsson og birtist það í
blaðinu 12. júlí 2020. Þar ræðir Ingvi
Hrafn um andlát bróður síns, Jóns
Arnar Jónssonar, og þá ákvörðun
hans að þiggja dánaraðstoð í Kan-
ada. Í umsögn dómnefndar um við-
talið segir að þar sé „dregin upp ný
hlið á annars þjóðþekktum manni.
Ingvi Hrafn ræðir bróðurmissi á
liðnu ári og þau djúpstæðu áhrif sem
ákvörðun bróður hans um að þiggja
dánaraðstoð hafði á hann. Í fram-
haldinu fjallaði Orri Páll nánar um
dánaraðstoð og dýpkaði með um-
fjöllun sinni umræðu um þetta við-
kvæma mál.“
Þórhildur Þorkelsdóttir hjá RÚV
hlaut blaðamannaverðlaun ársins
fyrir vönduð fréttatengd viðtöl þar
sem sjónum er beint að einstakl-
ingum í erfiðum aðstæðum. Rit-
stjórn Kjarnans var verðlaunuð fyr-
ir umfjöllun ársins um eldsvoðann á
Bræðraborgarstíg 1 og marghátt-
aðar afleiðingar hans. Nadine Guð-
rún Yaghi, Stöð 2, var verðlaunuð
fyrir rannsóknarblaðamennsku árs-
ins fyrir umfjöllun um umfangsmikil
og afdrifarík mistök sem gerð voru
við greiningar á leghálssýnum hjá
Leitarstöð Krabbameinsfélagsins.
Orri Páll verðlaunaður
fyrir viðtal ársins
Orri Páll
Ormarsson
Margeir Sveinsson yfirlög-
regluþjónn segir að Rauða-
gerðismálið hafi tekið mjög á
starfsfólk innan lögreglunnar.
Ekki aðeins vegna þess hve
óhugnanlegur glæpurinn er
heldur einnig vegna aukins
álags undanfarið. Hann segir
að almenningur þurfi ekki að
hafa áhyggjur af skipulagðri
glæpastarfsemi en staðfestir
að lögreglumenn hafi orðið
fyrir aðkasti af hálfu glæpa-
manna. Grípa þurfti til ráðstaf-
ana vegna þess að glæpamenn
voru að elta lögreglu og „láta
vita af sér“, eins og Margeir
orðaði það í samtali við mbl.is
í gær.
Áreittu lög-
reglumenn
RAUÐAGERÐISMÁLIÐ