Morgunblaðið - 27.03.2021, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 27.03.2021, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2021 Samkeppniseftirlitið er stofnunsem telur sig eiga að standa í stappi við fyrir- tækin í landinu og stunda pólitík þess á milli. Þetta sést til dæmis vel af því að sl. viku hefur eft- irlitið birt fjórar yf- irlýsingar um mál sem eru í um- ræðunni og þar sem það er að munnhöggvast við fyrir- tækin sem það á að hafa eftirlit með. - - - Og þegar Alþingi fjallar um sam-keppnismál þá getur Sam- keppniseftirlitið ekki stillt sig um að skipta sér af þeirri umræðu, enda vill það ekki aðeins framfylgja settum lögum, það vill líka hafa áhrif á hvaða lög eru sett. - - - Samkeppniseftirlitið reynir íyfirlýsingum sínum að verja þá staðreynd að „óháður kunnáttu- maður“ sé búinn að rukka 55 millj- ónir króna fyrir vinnu sem einkum snýr að sölu einnar verslunar á Hellu. - - - Þetta er líklega hæsta söluþókn-un sem um getur fyrir að hindra sölu en Samkeppniseftirlitið telur þetta bæði sjálfsagt og eðli- legt. - - - Og þegar forstjóri Brims benti áþað að stofnunin væri að veikja samkeppnishæfni íslenskra útflutningsfyrirtækja sem ættu í harðri alþjóðlegri samkeppni sá Samkeppniseftirlitið ástæðu til að birta yfirlýsingu um málið. - - - Augljóst er að eins og starfsemiSamkeppniseftirlitsins er hátt- að hér á landi er hún til þess fallin að skaða atvinnulíf og þar með kjör almennings. Það getur ekki verið tilgangurinn með rekstri slíkrar stofnunar. Skaðleg starfsemi STAKSTEINAR Átaki og vitundarvakningu Neyðar- línunnar sem ber yfirskriftina „Segðu frá“ var ýtt úr vör í gær. Átakið kemur í kjölfar nýrrar skýrslu greiningardeilar ríkis- lögreglustjóra um ofbeldi gegn öldr- uðum hér á landi. Verkefnið er unnið í samstarfi við Félag eldri borgara, Soroptimista, Zonta á Íslandi og Oddfellow. Fram kemur í skýrslunni að aldr- að fólk er síður líklegt til að tilkynna ofbeldi sem það verður fyrir og skil- greinir það stundum á annan hátt en yngra fólk. „Þetta gerir það að verk- um að mjög erfitt er að meta hvert umfang vandans er. Alþjóðaheil- brigðisstofnunin (WHO) hefur gefið út að tæp 16% fólks sem er 60 ára og eldra verði fyrir ofbeldi af einhverju tagi á heimilum sínum eða á dvalar- og hjúkrunarstofnunum. Jafnframt áætlar stofnunin að talan sé mun hærri þar sem aldrei er tilkynnt um fjölda brota,“ segir í tilkynningu Neyðarlínunnar. Algengast er að aldraðir séu beitt- ir andlegu ofbeldi og þar á eftir kem- ur fjárhagsleg og efnisleg misnotk- un, þá vanræksla, líkamlegt ofbeldi og loks kynferðislegt ofbeldi, að því er fram kemur í skýrslunni. Fjallað var ítarlega um niðurstöður hennar í Morgunblaðinu á dögunum. Hvetja aldraða til að segja frá ofbeldi - Neyðarlínan setur af stað átak gegn ofbeldi - Ekki eru öll brot tilkynnt Ofbeldi Ekki eru öll tilvik um of- beldi gegn öldruðum tilkynnt. Siðanefnd Ríkisútvarpsins (Rúv.) hefur komist að þeirri niðurstöðu að ýmis ummæli Helga Seljans, eins umsjónarmanna fréttaskýringar- þáttarins Kveiks, sem hann viðhafði á félagsmiðlum um málefni Sam- herja og stjórnendur fyrirtækisins, hafi falið í sér alvarleg brot á siða- reglum Rúv. Það greindi þegar frá því að úrskurðurinn myndi engar af- leiðingar hafa fyrir Helga í starfi. Samherji kærði 11 starfsmenn Rúv. fyrir margvísleg ummæli um Samherja, sem ekki færu saman við siðareglur ríkisfjölmiðilsins og hlut- leysiskröfur til starfsmanna. Siða- nefndin vísaði ýmist frá kærum eða komst að því að siðareglur hefðu ekki verið brotnar í málum annarra starfsmanna en Helga. Helgi gerðist hlutdrægur Kæran laut að 4. mgr. 3. gr. siða- reglna Rúv., þar sem segir að starfs- fólk það sem fjallar um fréttir, frétta- tengt efni og sinnir dagskrárgerð skuli ekki taka afstöðu í umræðu um pólítísk mál og umdeild, þar á meðal á félagsmiðlum. Í ljós kom að ekki var siðanefnd að störfum við mið- ilinn, svo Stefán Eiríksson útvarps- stjóri kvaddi til nýja siðanefnd, sem í sátu Gunnar Þór Pétursson, Páll Rafnar Þor- steinsson og Sig- rún Stefánsdóttir. Í úrskurðinum segir að „Helgi Seljan hafi gerst hlutdrægur og gengið lengra en það svigrúm sem hann hafi annars til þess að deila fréttum og fylgja þeim eftir með gagnrýnum spurningum eða um- mælum, sambærilegum þeim sem hann myndi viðhafa sem fréttamað- ur, jafnvel þó slíkt væri gert í eigin nafni“. Í ummælunum felist „skýr og per- sónuleg afstaða“, sem umræddri grein siðareglnanna sé sérstaklega ætlað að taka til, og því sé þar um brot á siðareglum að ræða. Þau brot hafi verið ítrekuð og náð til langs tíma og því teljist brotið alvarlegt. Af hálfu Rúv. er á það bent að samkvæmt reglum um siðanefnd beri henni að vekja athygli á því ef um brot í starf í skilningi laga sé að ræða. Það hafi hún ekki gert og því hafi niðurstaðan ekki áhrif á störf Helga hjá Ríkisútvarpinu. Alvarleg siðabrot hjá Helga Seljan Helgi Seljan - Aðrir starfsmenn Rúv. ekki brotlegir Réttar aðgerðir skiluðu árangri Ráðstöfunartekjur heimila hækkuðu á árinu 2020 - þrátt fyrir Covid. Sjá nánar á xd.is Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.