Morgunblaðið - 27.03.2021, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 27.03.2021, Blaðsíða 10
Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2021 Útfærsla á styttingu vaktavinnu fólks sem starfar hjá ríki, Reykjavíkurborg og sveitarfélög- unum er stóra viðfangsefnið þessa dagana á vettvangi Sameykis – stétt- arfélags í almannaþjónustu, að sögn Þórarins Eyfjörð sem var kjörinn formaður félagsins nú í vikunni. Þór- arinn tekur við keflinu af Árna Stef- áni Jónssyni, sem lét af formennsku, rétt eins og Garðar Hilmarsson, starfandi varaformaður, sem sömu- leiðis er hættur. Þórarinn Eyfjörð hefur starfað að verkalýðsmálum í 15 ár, fyrst sem framkvæmdastjóri hjá SFR stéttar- félagi í almannaþjónustu og síðast sem framkvæmdastjóri kjara- og reksturs hjá Sameyki. Árið 2001 til 2006 var Þórarinn framkvæmdastjóri hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt. Í janúar sl. lauk Þórarinn meistara- námi við Háskóla Íslands í opinberri stjórnsýslu og fjallaði um kynbund- inn launamun og hve hægt gangi að uppræta hann. „Stytting á vinnutíma dag- vinnufólks tók gildi um síðustu áramót,“ segir Þórarinn. „Vinn- an sem því fylgdi gekk nokkuð vel og allir voru að reyna að ganga í sama takti. Út- færsla á styttingu vaktavinnutíma er flóknara mál sem tekur langan tíma að koma í gegn. Álitaefnin eru mörg og á vinnu- stöðum þarf að útfæra vakta- vinnukerfin að nýjum vinnutíma og markmiðum. Allir eru þó sammála um meginmarkmiðið sem er að skapa betra jafnvægi milli starfs og fjöl- skyldulífs – og bæta skilyrði starfs- fólks og skjólstæðinga hvað varðar öryggi og heilsu. Fleiri stór verkefni eru í farvatn- inu og þá helst jöfnun launa milli markaða og launaþróunartrygging. „Með haustinu, segir Þórarinn, verð- ur að setja í gang vinnu við stofn- anasamninga hjá ríkisstofnunum, en hjá Reykjavíkurborg og sveitarfélög- unum þarf að taka betur utan um starfsmatskerfið þar sem horft er til eðlisþátta í störfum hvers og eins og þeir metir til launa.“ 12.000 félagsmenn Alls eru um 12.000 félagsmenn í Sameyki, sem varð til fyrir tveimur árum með sameiningu SFR og Starfsmannafélags Reykjavíkur- borgar. Þórarinn segir félagið ætla að fylgjast vel með stöðu og lífi fé- lagsmanna á tímum kórónaveir- unnar. Almennt virðist sem vel hafi verið hlúð að fólki við þessar erfiðu aðstæður og nú standi til að safna upplýsingum með könnun. Ljóst sé að störf margra hafi breyst mikið með fjarvinnu, það er þegar fólk hef- ur vegna sóttvarna flutt skrifstofuna á eldhúsborðið heima og rækt sín störf þaðan. Ekki sé sjálfgefið að slíkt sé gert til lengri framtíðar nema fólk fái eitthvað á móti, svo sem vegna tölvu, síma, fæðispeninga og fleira. Stytting vaktavinnu flókin - Starfsmat og stofnanasamningar - Nýr formaður Sameykis Þórarinn Eyfjörð Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur gefið út lokaskýrslu um rann- sókn á alvarlegu flugatviki í aðflugi Boeing 757-200-farþegaþotu Ice- landair að flugvellinum í Manchester á Englandi, sem átti sér stað í febr- úar árið 2017. Flugáhöfn vélarinnar lýsti yfir neyðarástandi vegna elds- neytis sem var orðið af skornum skammti, vonskuveður var og mikil ókyrrð í lofti og þurfti vélin tvisvar frá að hverfa, fyrst frá flugvellinum í Manchester og því næst flugvellin- um í Liverpool áður en lending tókst án vandræða í þriðju tilraun í Man- chester eftir að vélin var sett í for- gang. 168 farþegar um borð 168 farþegar og sex manna áhöfn voru um borð í vélinni. Flugvélin var á leið frá Keflavík til Manchester að morgni 23. febrúar 2017. Fram kem- ur í rannsóknarskýrslunni að flug- stjórinn óskaði eftir því við undir- búning flugsins að einu tonni yrði bætt við eldsneyti vélarinnar þar sem veðurupplýsingar sýndu að bú- ast mætti við hvössum vindhviðum í Manchester. Í skýrslunni kemur hins vegar fram að gefnar höfðu ver- ið út þrjár veðurviðvaranir (SIG- MET) fyrir flug þennan morgun á Englandi sem flugmennirnir höfðu ekki upplýsingar um. Var flugvöll- urinn í Liverpool áætlaður varaflug- völlur fyrir flugið. Þegar þotan hóf aðflug um klukk- an hálfellefu að flugvellinum í Man- chester var of mikið hvassviðri til að unnt væri að lenda og hringsólaði hún um tíma í biðflugi þar til stefnan var tekin á Liverpool en þar var enn meiri ókyrrð í lofti og þurfti vélin enn á ný að fara í fráflug. Voru þá kannaðir möguleikar á lendingu á öðrum flugvöllum og var stefnan tekin á Leeds. Klukkan 11:13 til- kynnti flugstjórinn að eldsneytis- staðan væri orðin svo lág að hann þyrfti að lenda en þá voru 3,4 tonn af eldsneyti eftir á vélinni. Mínútu síðar lýsti flugstjórinn yfir neyðarástandi vegna eldsneytis og var vélinni á ný beint til Manchester þar sem henni var lent heilu og höldnu klukkan 11.27. Liðu 36 mínútur frá því að vél- in hóf fyrsta fráflugið frá Manchest- er og þar til hún lenti. Voru þá 2,7 tonn eftir af eldsneyti í tönkum vél- arinnar eða til 20 mínútna flugs og aðeins 986 kíló umfram neyðar- eldsneyti vélarinnar. Kaupaukakerfi flugmanna hafði engin áhrif á atvikið Í skýrslunni er nokkuð fjallað um ákvæði sem var á þessum tíma í kjarasamningum flugmanna um kaupauka sem þeim voru greiddir vegna stundvísi og lágmörkun á notkun eldsneytis en það var fellt úr gildi á síðasta ári. Nefndin kemst að þeirri niðurstöðu að kaupaukakerfið hafi engin áhrif haft á þetta flugatvik eða eldsneytisstöðu vélarinnar við upphaf flugsins og flugstjórinn hafi einnig ákveðið að fá eitt tonn af við- bótareldsneyti á vélina um morgun- inn í Keflavík. Nefndin setur fram tillögur í öryggisátt um meðferð veð- urviðvarana við undirbúning flugs. Í mikilli ókyrrð og neyð- arástand vegna eldsneytis - RNS birtir skýrslu um alvarlegt flugatvik í Manchester Morgunblaðið/Ernir Farþegaþota Íslensk og bresk yfir- völd komu að rannsókn atviksins. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Alls höfðu 112 skráð sig í bak- varðasveit heilbrigðisþjónustu um hádegið í gær. Flestir eru sjúkralið- ar, læknar, hjúkrunarfræðingar eða sjúkraflutningamenn. Margir hafa komið áður til starfa sem bakverðir. Heilbrigðisráðuneytið hóf fyrr í vikunni að skrá að nýju fólk sem tilbúið er að koma tímabundið til starfa í heilbrigðisþjónustu og með skömmum fyrirvara. Skráning í bakvarðasveitina hófst á ný 24. mars, eftir að fjórða bylgja kór- ónuveirufaraldursins fór að gera vart við sig. Þeir sem áður höfðu skráð sig, til dæmis í bylgjunum á síðasta ári, þurfa að skrá sig á nýjan leik. Hægt er að skrá sig rafrænt á vef heilbrigðisráðuneytisins. Treysta sér til að sinna Covid Samkvæmt upplýsingum frá heil- brigðisráðuneytinu höfðu 112 skráð sig í bakvarðasveitina á hádegi í gær. Þar af hafa 94 gild starfsleyfi en 18 eru nemar á ýmsum stigum. Í faglærða hópnum eru 26 sjúkraliðar, 16 læknar, 15 hjúkrunarfræðingar og 15 sjúkraflutningamenn. Færri eru úr öðrum starfsstéttum. Mikill meirihluti fólksins treystir sér til að sinna sjúklingum veikum af Covid-19 og flestir vilja helst vinna á Landspítala og Heilsugæslu höfuð- borgarsvæðisins. Sjúkraliðar eru nú fjöl- mennastir í bakvarðasveit Morgunblaðið/Eggert Skimun Flestir bakverðir treysta sér til að sinna Covid-veiku fólki. - 112 tilbúnir að koma til starfa í kórónuveirufaraldri Rafmagnaðir Audi með reynslu Klettháls 13 · hnb.is · 590 5040 www.audi.is Nokkrir rafmagnaðir gullmolar hjá HEKLU notuðum bílum. Audi e-tron 55 er með allt að 300 kW afli (408 hö) og drægni skv. WLTP allt að 441 kílómetrum. Fylgdu okkur! @audi Fleiri bílar og myndir á netinu: hnb.is Bifreiðunum fylgir skilyrt framlengd ábyrgð Gildir til 60 mánaða aldurs frá skráningardegi, eða 150.000 km aksturs. Ábyrgð á aðalrafhlöðu er til 8 ára eða 160.000 km aksturs. Tilboð 10.390.000 kr. Ekinn 22.000 km. Upprunalegt verð 10.990.000 kr. Afsláttur 600.000 kr. AUDI E-TRON 55 QUATTRO Aukahlutir: Aksturstölva, Bakkmyndavél, Bluetooth, Dráttarbeisli, Fjarlægðarskynjarar aftan, Hiti í aftursætum, Hiti í stýri, Hraðastillir, ISOFIX festingar í aftursætum, LED dagljós, Leðuráklæði, Leiðsögukerfi, Litað gler, Loftkæling, Lykillaust aðgengi, Rafdrifnir hliðarspeglar, Spólvörn, Stafrænt mælaborð, Stöðugleikakerfi, Xenon aðalljós, 21" Álfelgur, Volcano leðuráklæði, Sportsæti að framan, Lyklalaust aðgengi, Head-up display, Varadekk, Svartur útlitspakki o.fl. 2019 Tilboð 10.990.000 kr. Ekinn 17.900 km. Upprunalegt verð 11.890.000 kr. Afsláttur 900.000 kr. AUDI E-TRON 55 QUATTRO Aukahlutir: Aksturstölva, Bakkmyndavél, Bluetooth, Dráttarbeisli, Fjarlægðarskynjarar aftan, Glerþak, Hiti í aftursætum, Hiti í stýri, Hraðastillir, ISOFIX festingar í aftursætum, LED dagljós, Leðuráklæði, Leiðsögukerfi, Litað gler, Loftpúðafjöðrun, Lykillaust aðgengi, Minni í framsætum, Rafdrifnir hliðarspeglar, Regnskynjari, Stafrænt mælaborð, Stöðugleikakerfi, Xenon aðalljós, Akreinavari, Audi pre-sense, MMI navigation plus, Audi virtual mælabroð, Bang & Olufsen, 21" álfelgur, ljúflokun, Head-up displey, Valcona leðuráklæði, 360°myndavél, comfort sæti með Valcona leðuráklæði, lyklalaust aðgengi, Matrix ökuljós o.fl. 2019 Upprunalegt verð 11.890.000 kr. Ekinn 23.500 km. AUDI E-TRON 55 QUATTRO DESIGN PLUS Aukahlutir: Dráttarbeisli, hiti og rafmagnsfærsla á stýrishjóli, rafmagnsopun & lokun á afturhlera, akgreinaviðvörun, Audi pre sense að framan, efri hluti mælaborðs í leðri, MMI Navigation plus, fjögurra svæða tölvustýrð loftkæling, Audi virtual mælaborð Plus, Bang & Olufsen hljómkerfi, Audi phone box, 21” álfelgur, aðgerðatakkar með gleráferð, ljúflokun, auka hleðsluport á bíl farþegamegin, Valcona leðuráklæði, aðstoðarpakki ‘city’, 360° myndavél, lyklalaust aðgengi, ISOFIX bílstólsfestingar, rafdrifin framsæti, Matrix LED ökuljós, dökkar rúður að aftan, LED inniljósapakki, les umferðaskilti, tvöfalt einangrandi gler o.fl. 2019 Afsláttur 600.000 kr. Tilboð 10.990.000 Tilboð 9.890.000 kr. Ekinn 17.000 km. AUDI E-TRON 55 QUATTRO 2019 Upprunalegt verð 10.790.000 kr. Afsláttur 900.000 kr. Tilboð 9.890.000 kr. Ekinn 17.900 km. AUDI E-TRON 55 QUATTRO 2019 Upprunalegt verð 10.490.000 kr. Afsláttur 600.000 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.