Morgunblaðið - 27.03.2021, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2021
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Við skoðun á því hvar heppilegast sé
að vera með höfuðstöðvar Rarik hef-
ur niðurstaðan alltaf verið sú að það
henti starfsemi fyrirtækisins sem
heild best að vera með sameiginlega
skrifstofu í Reykjavík. Í umsögn for-
stjórans við tillögu nokkurra þing-
manna um að flytja höfuðstöðvarnar
út á land kemur fram það álit að
telja verði mjög ólíklegt að margir
starfsmenn skrifstofunnar í Reykja-
vík flyttu með höfuðstöðvunum.
Atvinnuveganefnd Alþingis hefur
til umfjöllunar þingsályktunartil-
lögu Höllu Signýjar Kristjánsdóttur
og tveggja annarra þingmanna
Framsóknarflokksins um að stefna
skuli að flutningi höfuðstöðva Rarik
á landsbyggðina og kannað verði á
grundvelli hagsmuna félagsins hvar
hentugast væri að byggja upp höf-
uðstöðvar og efla starfsstöðvar um
landið. Fram kemur í greinargerð
að meginhluti starfsemi Rarik sé ut-
an Suðvesturlands og Vestfjarða en
60 af 200 starfsmönnum fyrirtækis-
ins séu á skrifstofum á höfuðborg-
arsvæðinu.
Tilbúin að taka við Rarik
Málið var sent til umsagnar. Vest-
fjarðastofa og Samtök sveitarfélaga
á Norðurlandi vestra (SSNV) styðja
markmið þingsályktunartillögunnar
í umsögnum, telja það styðja mark-
mið ríkisstjórnar og byggðaáætlun-
ar um að stuðla að fjölbreyttum
störfum um allt land. SSNV telur
tilvalið að flytja höfuðstöðvarnar á
Norðurland vestra.
Rarik telur að það henti starfsemi
fyrirtækisins í heild að vera með
sameiginlega skrifstofu í Reykjavík.
Þangað séu samgöngur bestar frá
öllum starfssvæðum. Auk þess séu
ýmsir hagaðilar fyrirtækisins, meðal
annars stjórnsýslan, staðsettir í
Reykjavík.
Fram kemur sú skoðun í umsögn-
inni að telja verði mjög ólíklegt að
margir starfsmenn skrifstofunnar í
Reykjavík flyttu með höfuðstöðvum
þess. Því þyrfti að gefa eðlilegri
endurnýjun starfsfólks sem þar
starfar nokkuð mörg ár og fyrir-
tækið að ganga í gegnum verulega
endurskipulagningu. Flutningur
höfuðstöðvanna í heilu lagi yrði
fyrirtækinu mjög erfiður í fram-
kvæmd.
Ólíklegt að starfsmenn
flytji með höfuðstöðvum
- Rarik finnur að tillögu þingmanna um að flytja skrifstofur
Starfsemi um landið
» Dreifikerfi Rarik nær til
Vesturlands, Norðurlands,
Austurlands og Suðurlands og
43 þéttbýliskjarna víðs vegar
um landið.
» Meginstarfsemi Rarik fer því
fram á landsbyggðinni auk
þess sem allar virkjanir félags-
ins eru þar.
Morgunblaðið/RAX
Viðgerð Rarik er búið að setja stóran hluta dreifinets síns í jarðstrengi. Þingmenn vilja flytja skrifstofur Rarik.
Skipholti 29b • S. 551 4422
VORYFIR-
HAFNIRNAR
KOMNAR
Skoðið laxdal.is
Skoðið // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Ný sending af
JÖKKUM
&VESTUM
fyrir útivistina
Grensásvegur 11 I Sími 588 9090 I www.eignamidlun.is
FÁÐU RÁÐGJÖF SEM
BYGGIR Á REYNSLU
Landsréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í svokölluðu
Sjanghæ-máli sem höfðað var gegn Sunnu Valgerðardóttur fréttamanni,
Magnúsi Geir Þórðarsyni, fyrrverandi útvarpsstjóra, og RÚV til réttar-
gæslu. Málið var höfðað af eiganda Sjanghæ-veitingastaðarins, Rositu
YuFan Zhang, vegna umfjöllunar fréttastofu RÚV um ætlað vinnumansal á
veitingastaðnum. Grunur um brotin reyndist haldlaus.
Krafist var ómerkingar á fimm ummælum í fréttum RÚV og miskabóta
að fjárhæð þrjár milljónir króna. Í dómi Landsréttar kom fram að ekki
færi milli mála að ummælin hefðu falið í sér aðdróttanir um alvarleg brot
og siðferðislega ámælisverða háttsemi. Hins vegar var ekki hjá því litið að
fyrir lá grunur um brotið sem byggður var á ábendingu.
Það yrði að líta til þess að í krafti hins rúma tjáningarfrelsis sem fjöl-
miðlar njóta hafi Sunna haft svigrúm til að ákveða framsetningu fréttanna
svo framarlega sem ekki væri farið með rangt mál. Var hún því ekki talin
hafa farið út fyrir mörk tjáningarfrelsis síns með ummælum sínum.
Sýknudómur í Sjanghæ-máli staðfestur