Morgunblaðið - 27.03.2021, Qupperneq 12
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
É
g var mjög ung þegar ég
ákvað að starfa í framtíð-
inni við eitthvað tengt dýr-
um. Ég var alveg sjúk í
dýr þegar ég var krakki og er það
enn. Ég hef átt ófá gæludýr um æv-
ina, ég kynntist líka snemma dýrum í
sveitinni þar sem foreldrar mínir eiga
sumarbústað,“ segir Kristín Sara
Georgsdóttir, en hún útskrifaðist í
gær sem dýrahjúkrunarfræðingur frá
Hansenberg í Danmörku.
„Ég komst að því um haustið fyr-
ir fjórum árum að þetta nám væri yfir
höfuð til og ég var komin út til Dan-
merkur um áramótin og byrjuð í skól-
anum. Þetta er þriggja og hálfs árs
nám og skólinn er staðsettur í Kold-
ing á Jótlandi. Ég fór alltaf út í tíu vik-
ur í einu, sem var í raun ein önn, en á
milli þess kom ég til Íslands til að
vinna á dýraspítala hér heima, það var
er hluti af náminu. Það var líka verk-
legt nám úti, þar eru hundar í skól-
anum, lítill dýragarður, rannsókn-
arstofa og alls konar tæki og tól fyrir
verklegt nám. Námið er eðli málsins
samkvæmt á dönsku og var fyrir vikið
strembið fyrir mig til að byrja með.
Ég skildi eiginlega ekkert á fyrstu
önninni, en ég átti góðar vinkonur úti
sem þýddu fyrir mig og systir mín hér
heima hjálpaði mér líka, svo þetta
kom fljótt.“
Bæði krefjandi og gefandi
Þegar Kristín Sara er spurð í
hverju starf dýrahjúkrunarfræðings
felst, segir hún það felast í hinum ólík-
ustu störfum.
„Við erum hægri hönd dýra-
lækna, þeir sjá um sjúkdómsgrein-
ingar og fyrirskipa meðhöndlanir en
við gerum svo oft það sem þarf að
gera í framhaldi og þá eftir þeirra fyr-
irmælum. Við sjáum til dæmis um
mikið af sáravinnu og að setja umbúð-
ir á þau, aðstoðum við röntgenmynda-
tökur og sjáum um alla umönnun eftir
aðgerðir og í vöknun. Við vinnum
einnig mikið af rannsóknarvinnunni
sem svo dýralækn-
arnir lesa úr. Einnig
sinnum við tann-
hreinsunum, sjáum
um vöktun á svæfingu
á dýrum í aðgerðum,
gefum lyf og ótal-
margt fleira. Dýra-
hjúkrunarfræðingar
geta sérhæft sig á
ýmsum sviðum, til
dæmis í endur-
hæfingu dýra eftir að-
gerðir eða almenna
sjúkraþjálfun, við get-
um farið í sérnám í
svæfingum dýra eða tannheilsu þeirra
og fleiri sérsvið eru möguleg. Starfið
er mjög fjölbreytt, bæði krefjandi og
gefandi,“ segir Kristín Sara sem
starfar hjá Dýraspítalanum í Garða-
bæ.
„Við erum fimm dýrahjúkrunar-
fræðingar sem störfum þar.“
Eflandi að sigrast á öllu
Kristín Sara segir að það hafi
verið mjög stórt skref fyrir hana að
fara ein út til Danmerkur í nám, því
hún hefur glímt við bæði þunglyndi og
kvíða.
„Þar fyrir utan er ég greind með
ADHD, en núna er ég að mestu laus
Gaman Í Danmörku sinnti Kristín Sara ólíkustu skepnum, líka póníhestum.
Að störfum Kristín Sara skoðar
hest sem kom til lækninga.
Snýst ekki um að knúsa hvolpa
Starf dýrahjúkrunarfræð-
inga er fjölbreytt og getur
reynt á. Kristín Sara
Georgsdóttir útskrifaðist
sem slíkur í gær og hún
hlakkar til að takast á
við nýja starfið á Dýra-
spítalanum í Garðabæ.
Björt framtíð Kristín Sara hefur alltaf elskað öll dýr og er því á réttri hillu.
Hér með hundi systur sinnar, hinum 12 ára Æsi, sem er Siberian husky.
við bæði þunglyndið og kvíðann og ég
hef lært að lifa með mínu ADHD.
Vissulega var erfitt í byrjun að fara
frá öllum í fjölskyldunni, kærastanum
mínum og hundinum mínum, og að
vera ein í landi þar
sem ég talaði ekki
tungumálið. Ég bjó á
heimavist og í þessum
bæ var ekki Metro eða
lest innanbæjar, en ég
lærði bara að njóta
þess. Mér tókst þetta
allt saman og ég hef
styrkst mjög mikið
andlega, það var mjög
eflandi fyrir mig að
sigrast á þessu öllu.“
Þegar hún er
spurð hvort eitthvað
hafi komið henni á
óvart í náminu, segir hún að í raun
hafi allt komið á óvart.
„Dýrahjúkrun snýst ekki um það
eitt að knúsa hvolpa, eins og sumir
halda, heldur getur það verið erfitt og
skítugt starf. Það getur alveg tekið á
að vera að sinna mjög veikum dýr-
um,“ segir Kristín Sara sem vegna
Covid komst ekki út til Danmerkur á
lokaönninni í náminu og hefur námið
frá því í janúar á þessu verið fjarnámi
á netinu.
„Auðvitað er líka leiðinlegt að
missa af útskriftinni og því að fagna
með öllum vinum mínum sem ég hef
eignast úti í Danmörku, en við fögn-
um saman seinna.“
„Við erum hægri
hönd dýralækna,
þeir sjá um sjúk-
dómsgreiningar
og fyrirskipa með-
höndlanir en við
gerum svo oft það
sem þarf að gera í
framhaldi.“
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2021
Skipholti 50b • 105 Reykjavík • Sími 569 0900
lifbank@lifbank.is • www.lifbank.is
Ársfundur 2021
Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna verður
haldinn miðvikudaginn 28. apríl næstkomandi
kl. 17:00. Fundurinn verður haldinn á Hilton
Reykjavík Nordica.
Dagskrá:
1. Venjuleg störf ársfundar skv. 6. gr.
samþykkta sjóðsins
2. Tillögur til breytinga á samþykktum
sjóðsins
3.Önnur mál
Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna
Tillögur til breytinga á samþykktum Lífeyrissjóðs bankamanna
munu liggja frammi á skrifstofu sjóðsins að Skipholti 50b eigi síðar
en viku fyrir ársfund. Einnig verður hægt að nálgast tillögurnar og
allar nánari upplýsingar á vef sjóðsins www.lifbank.is