Morgunblaðið - 27.03.2021, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2021
Um er að ræða trausta kaupendur og í sumum tilvikum
staðgreiðslu. Hér er sýnishorn úr kaupendaskrá okkar.
Vegnamikillar sölu undanfarið
vantar okkur ýmsar gerðir og
stærðir af íbúðarhúsnæði fyrir
viðskiptavini okkar
GRENSÁSVEGUR 11 I SÍMI 588 9090 I WWW.EIGNAMIDLUN.IS
SALA FASTEIGNA SÍÐAN 1957
Kaupendaskrá – sýnishorn
SÉRBÝLI Á SELTJARNARNESIÓSKAST
Höfum verið beðin að útvega viðskiptavini okkar 220-350 fm einbýlishús, parhús
eða raðhús á Seltjarnarnesi.
EINBÝLISHÚS Á SVÆÐI 108ÓSKAST
Traustur kaupandi óskar eftir 230-400 fm einbýlishúsi á svæði 108. Æskileg
staðsetning: Fossvogur eða Gerði.
EINBÝLISHÚS Í VESTURBORGINNIÓSKAST
Viðskiptavinur okkar leitar að 250-350 fm einbýlishúsi í Vesturborginni. Æskileg
staðsetning er póstnúmer 107.
EINBÝLISHÚS Í GRAFARVOGIÓSKAST
Traustur kaupandi óskar eftir 200-250 fm einbýlishúsi í Grafarvogi. Húsið
þyrfti helst að vera á einni hæð.
SÉRBÝLI Á SVÆÐI 104ÓSKAST
Traustur kaupandi óskar eftir 250-400 fm einbýlis eða parhúsi. Æskileg
staðsetning: Selvogsgrunn, Sporðagrunn, Teigar eða Laugarásvegur.
HÆÐ Í VESTURBORGINNIÓSKAST
Traustur kaupandi óskar eftir sérhæð í Vesturborginni. Æskileg staðsetning
er póstnúmer 107. Afhendingartími er samkomulag.
SKUGGAHVERFI – ÍBÚÐÓSKAST
Viðskiptavinur okkar leitar að 130-150 fm íbúð í lyftuhúsi við Vatnsstíg.
2JA-4RA HERB. ÍBÚÐIRÓSKAST
Einnig höfum við fjölda kaupenda að 2ja-4ra herb. íbúðum í ýmsum hverfum.
SverrirKristinsson
Löggiltur fasteignasali
Sími 8618514
sverrir@eignamidlun.is
MagneaSverrisdóttir
MBAog löggiltur fasteignasali
Sími 8618511
magnea@eignamidlun.is
FREKARI UPPLÝSINGAR
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Nokkur vakning er á Fljótsdalshér-
aði í að taka upp viðarkyndingu, að
kynda hús með afurðum skóganna í
stað rafmagns eða olíu. Fljótsdals-
hreppur kyndir nú félagsheimili
sveitarinnar, Végarð, með þeim
hætti. Félagsheimilið er steinsnar
frá stærstu aflstöð landsins, Fljóts-
dalsstöð.
„Rafmagn kostar dálítið mikið til
sveita. Við erum að bregðast við
því,“ segir Helgi Gíslason, sveit-
arstjóri Fljótsdalshrepps, um þá
ákvörðun að skipta yfir í viðarkynd-
ingu í félagsheimilinu.
Keyptur var gámur frá Grikklandi
með uppsettri kyndistöð. Honum
var komið fyrir í nágrenni félags-
heimilisins og stöðin tengd við
vatnskerfi hússins. Vatnið fer á ofna,
í gólfhitakerfi og neysluvatnslagnir.
Stöðin er sjálfvirk og kveikir á sér
og slekkur eftir notkun og hitastigi á
vatninu.
10-15% ódýrara en rafmagn
Kyndistöðin brennir viðarperlum
sem framleiddar eru hjá Tandra-
bergi á Eskifirði úr afgangsbrettum
og umbúðum frá álverinu á Reyð-
arfirði og stóru frystihúsunum í ná-
grenninu og einnig úr grisjunarviði
úr skógunum á Héraði.
Spurður hvort það skjóti ekki
skökku við að nota ekki rafmagn til
húshitunar þegar stærsta aflstöð
landsins er í túnfætinum segir Helgi
að ákvörðunin sé lýsandi fyrir stöð-
una í rafmagnsmálum sveitanna.
„Við teljum að þessi orkugjafi verði
10-15% ódýrari en rafmagnið. Svo er
Fljótsdalur eitt helsta skógræktar-
hérað landsins og þar eru mögu-
leikar á að nýta afurðir til orkufram-
leiðslu,“ segir Helgi.
Stofnkostnaðurinn er ekki inni í
þessum útreikningum en Helgi segir
að kyndistöðin kosti um 10 milljónir
kr. Orkusjóður veitti styrk til að
koma viðarkyndingunni upp.
Enginn reykur kemur frá við-
arbrennslunni og kom það sveit-
arstjóranum þægilega á óvart.
Fljótsdalshreppur er að vinna að
umhverfisstefnu um þessar mundir.
Þar kemur fram, að sögn Helga, að í
Fljótsdalshreppi er meiri binding en
losun á gróðurhúsalofttegundinni
koldíoxíð. Efnið í viðarkyndingu sé
grisjunarefni úr skógunum. Við
grisjun verði eftir betri tré sem bæti
hraðar á sig rúmmáli. Grisjunar-
viður úr plöntuðum skógi sé því við-
urkenndur sem endurnýjanlegur
orkugjafi og falli vel að umhverfis-
stefnu hreppsins.
Hitaveita á Hallormsstað í sveit-
arfélaginu Múlaþingi er kynt með
trjáviði, viðarperlum frá Tandra-
bergi. Helgi segir að einstaklingar
séu að koma upp viðarkyndingu við
ný og eldri íbúðarhús á nokkrum
stöðum í hreppnum.
Viðarkynding tekin upp í
félagsheimili og fleiri húsum
- Hætta að kynda með rafmagni þótt stærsta aflstöð landsins sé í túnfætinum
Morgunblaðið/Ómar
Skógarhögg Mikill eldiviður liggur í skógunum en tíma þarf til að grisja og koma efninu í verð.
Verktakafyrirtækið Tandraberg
framleiðir viðarperlur í húsnæði
sínu á Eskifirði. Einar Birgir
Kristjánsson framkvæmdastjóri
segir að unnið hafi verið að þró-
unarvinnu í rólegheitum í fimm
ár og nú sé framleiðslan komin í
allgott horf. Aðalmarkaðurinn
er hjá hestamönnum sem nota
perlurnar sem undirburð undir
hross en vaxandi áhugi er á við-
arkyndingu.
„Við önnum ekki eftirspurn.
Nánast allt er rifið jafnóðum út
úr höndum okkar,“ segir Einar
og getur þess að markaðurinn
sé allnokkur því flutt séu inn
4-5 þúsund tonn af þessari vöru
á ári. Sem betur fer vilji margir
frekar íslenskt efni.
Aðgangur að hráefni tak-
markar framleiðsluna. Að-
alhráefnið er úrgangstimbur frá
álveri Alcoa og stóru frystihús-
unum. Vill Einar gjarnan fá
meira af grisjunarvið úr skógum
Fljótsdalshéraðs og reiknar
með að meira verði grisjað þar á
næstu árum.
Allt selst
jafnóðum
TANDRABERG
Orka Sigurður Ingi Friðleifsson og
Hörður Guðmundsson með perlur.