Morgunblaðið - 27.03.2021, Síða 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2021
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
hefur verið um í Morgunblaðinu á
undanförnum mánuðum hafa um-
svif lífeyrissjóða á húsnæðis-
lánamarkaði minnkað til muna sam-
fara auknum lánveitingum
bankanna. Þrátt fyrir það má
greina sömu þróun þar á bæ, sé litið
til áhuga fólks á verðtryggðum og
óverðtryggðum lánum. Allt frá því í
júní í fyrra hafa upp- og umfram-
greiðslur verðtryggðra sjóð-
félagalána verið mun meiri en ný
lán af sama toga. Þannig virðist
langstærstur hluti þeirra sem eru
að fjárfesta í húsnæði eða endur-
fjármagna eldri lán leita í mjög hag-
stæða óverðtryggða vexti sem nú
bjóðast. ses@mbl.is
Á síðustu tólf mánuðum hafa ís-
lensku bankarnir lánað íslenskum
heimilum 410 milljarða króna í
formi óverðtryggðra fasteignalána.
Þetta má lesa úr tölum Seðlabanka
Íslands. Tólf mánuði þar á undan
námu útlán af sama tagi aðeins 84,8
milljörðum. Nemur vöxturinn því
380% milli ára.
Á síðustu tólf mánuðum hafa
heimilin hins vegar greitt mikið upp
af verðtryggðum húsnæðislánum
sínum hjá bönkunum og nema upp-
og umframgreiðslur umfram ný lán
67,4 milljörðum króna. Tólf mán-
uðina þar á undan uxu lánveitingar
í þessum flokki um 24,1 milljarð
króna hjá bönkunum. Líkt og fjallað
Ævintýralegur vöxtur í óverðtryggðu
- Bankarnir lána af miklum móð
Bankar Ný óverðtryggð útlán bankanna til heimilanna nema meira en 400
milljörðum síðustu 12 mánuði. Verðtryggð lán eru á hröðu undanhaldi.
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Embætti ríkislögreglustjóra hefur
nú sent frá sér þriðja áhættumat sitt
á peningaþvætti og fjármögnun
hryðjuverka. Áður hefur embættið
birt sambærtilegt mat 2017 og 2019.
Áhættumatið er liður í því að upp-
fylla þær skyldur sem hvíla á Íslandi
til þess að geta uppfyllt staðla FATF
(Financial Action Task Force) en
það er alþjóðlegi aðgerðahópurinn
sem setti Ísland á gráan lista í októ-
ber 2019 þar sem talið var að varnir
landsins gegn peningavþætti og fjár-
mögnun hryðjuverka væru ófull-
nægjandi.
Fá ef nokkur svið undanskilin
Í mati sínu segist Ríkislögreglu-
stjóri hafa komist að þeirri niður-
stöðu að greind áhætta vegna pen-
ingaþvættis væri mikil þegar kæmi
að skattsvikum sem frumbrotum
peningaþvættis, flutningi reiðufjár
til og frá landinu, reiðufjárviðskipt-
um, einkahlutafélögum, peninga-
sendingum og söfnunarkössum og
happdrættisvélum.
„Þá taldist greind áhætta vera
veruleg þegar kom að háum pen-
ingaseðlum í umferð, almennum fé-
lögum og félagasamtökum, trú- og
lífsskoðunarfélögum, sjóðum og
stofnunum sem starfa samkvæmt
staðfestri skipulagsskrá, innlána-
starfsemi, greiðsluþjónustu, útgáfu
rafeyris, gjadleyrisskiptum, starf-
semi lögmanna, starfsemi endur-
skoðenda, starfsemi fasteignasala,
starfsemi bifreiðaumboða og bif-
reiðasala og vörum og þjónustu,“
segir enn fremur í matinu. Hins veg-
ar sé áhættan aðeins talin „miðl-
ungs“ í starfsemi hlutafélaga, sjálfs-
eignarstofnana og samlagsfélaga,
starfsemi annarra almannaheilla-
félaga, raunverulegs eiganda, út-
lánastarfsemi, sýndarfjár, rekstri
sjóða, viðskiptum og þjónustu með
fjármálagerninga, starfsemi bókara,
starfsemi getrauna, eðalmálma og
-steina og kerfiskennitölu. Hins veg-
ar var áhætta af starfsemi annarra
félaga, lífeyrissjóða, líftryggingar-
starfsemi, skipasala, happdrætti, lot-
tós og fjárhættuspils á netinu.
Skattsvik alvarlegt vandamál
Í skýrslunni er fjallað ítarlega um
hvert svið þar sem áhætta af pen-
ingaþvætti er talin til staðar. Er m.a.
bent á að skattsvik séu alvarlegt
vandamál hér á landi og hafi verið
um langt skeið. Segir í matinu að
margt ýti undir eða auðveldi að unnt
sé að drýgja slík brot, það komi m.a.
til af því að aðgengi að ýmsum teg-
undum félaga sé auðvelt og hversu
auðvelt sé að misnota félög. Þá er
bent á að það auki áhættu á brotum
hversu auðvelt það sé að koma
reiðufé í umferð hér á landi.
„Fremur lítið er vitað um raun-
verulega notkun reiðufjár hjá ein-
staklingum og fyrirtækjum og litlar
hömlur eru á notkun þess,“ segir í
áhættumatinu og sérstaklega bent á
að það að „hætta útgáfu 10.000 og
5.000 króna seðla myndi gera svarta
hagkerfinu erfitt uppdráttar ásamt
því að draga úr peningaþvætti og
skattundanskotum“. Segir í skýrsl-
unni að lítið magn reiðufjár sé hald-
lagt hjá lögreglu við rannsóknir við
rannsóknir hennar á liðnum árum.
Þá sé lítið um tilkynningar um
reiðufé yfir tilkynningaskyldum
mörkum við komu til lands eða brott-
för frá landi. „Eftirlit með flutningi
fjármuna yfir landamæri er lítið og
endurspeglast það í afar fáum mál-
um hjá tollyfirvöldum þar sem upp
kemst um smygl með reiðufé með
farþegum, í farangri og vörusend-
ingum, þótt sjá megi fjölgun mála af
þessum toga.“ Hins vegar er bent á
að tolleftirlit muni eflast í þessu tilliti
þar sem hundar tollgæslunnar séu
nú til þjálfunar í því skyni að þefa
uppi peninga.
Víða hætta á peningaþvætti
Morgunblaðið/Golli
Lykt Innan tíðar munu sérþjálfaðir hundar renna á peningalyktina.
- Ríkislögreglustjóri hefur gefið út uppfært áhættumat vegna peningaþvættis og
fjármögnunar hryðjuverka - Tollurinn þjálfar hunda til að þefa uppi peninga
27. mars 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 126.92
Sterlingspund 174.05
Kanadadalur 100.85
Dönsk króna 20.145
Norsk króna 14.735
Sænsk króna 14.695
Svissn. franki 135.64
Japanskt jen 1.1634
SDR 180.41
Evra 149.8
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 185.6648
Hrávöruverð
Gull 1729.2 ($/únsa)
Ál 2220.5 ($/tonn) LME
Hráolía 63.99 ($/fatið) Brent
Brynjólfur Stef-
ánsson, sjóðstjóri
hjá Íslands-
sjóðum, segir
ganginn í bólu-
setningum hafa
haft áhrif á þróun
olíuverðs að und-
anförnu. „Þetta
bakslag í Evrópu
hefur neikvæð
áhrif á olíuverð.
Menn sjá fram á auknar birgðir og
að eftirspurnin verði ekki jafn sterk
og menn bjuggust við,“ segir Brynj-
ólfur og bendir á að olían hafi hækk-
að mikið og hratt í verði. Því megi
hins vegar velta fyrir sér hvort
markaðurinn „hafi aðeins farið fram
úr sér“ í þessu efni. Þegar fram líða
stundir séu meiri líkur en minni á að
olían hækki í verði.
Gæti haldist á þessu bili
„Ef eftirspurnin kemst á flug og
vel gengur að bólusetja þá gæti olíu-
verðið haldist á þessu bili og jafnvel
hækkað frekar. Þó veltur það tölu-
vert á OPEC+-fundinum sem hald-
inn verður í lok mánaðarins. Ríkin
hafa aukið framleiðslu í kjölfarið á
verðhækkunum,“ segir Brynjólfur.
Eftirspurnin hafi aukist í Asíu að
undanförnu og í Bandaríkjunum
vegna meiri umsvifa í kjölfar bólu-
setningar. Svo hafi OPEC-ríkjunum
gengið betur en oft áður að halda aft-
ur af framboðinu. Verðið hafi lækkað
mikið í maí í fyrra vegna verðstríðs
og faraldursins. baldura@mbl.is
Hægagangur í Evrópu
hefur áhrif á olíuna
Brynjólfur
Stefánsson
- Hæg bólusetning hefur áhrif á væntingar
« Bandaríski flug-
risinn Delta Air
Lines hefur ákveð-
ið að hefja daglegt
flug milli Íslands
og þriggja borga í
Bandaríkjunum.
Munu umsvifin
hefjast í maí næst-
komandi. Borg-
irnar sem um ræð-
ir eru New York,
Boston og Minneapolis í Minnesota.
Fyrsta flugið til fyrstnefndu borg-
arinnar verður 1. maí, til Boston 20.
maí og til Minneapolis hinn 27. maí.
Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að
ákvörðun um flugið hafi verið tekin
vegna þess að Ísland sé fyrsta landið í
Evrópu sem heimili komu bandarískra
ferðamanna sem hafa fengið fulla bólu-
setningu án þess að þeir þurfi að sæta
sóttkví við komuna til landsins. „Við
vitum að viðskiptavinir okkar eru
spenntir fyrir því að komast með
öruggum hætti aftur út í heim. Eftir því
sem traust á ferðalögum eykst von-
umst við til að fleiri lönd opni fyrir
bólusettum ferðamönnum og skapi
þannig aukin tækifæri fyrir fólk til að
tengja og upplifa,“ segir Joe Esposito,
framkvæmdastjóri leiðakerfisstýringar
Delta Air Lines.
Velur Ísland sem
áfangastað
vegna opnunar
Flug Delta hyggur
á flug til Íslands.
STUTT