Morgunblaðið - 27.03.2021, Page 24

Morgunblaðið - 27.03.2021, Page 24
24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2021 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Jean-Yves Le Drian, utanríkisráð- herra Frakklands, sakaði í gær Breta um „fjárkúgun“ vegna stöðunnar í deilu Breta og Evrópusambandsins um dreifingu á bóluefni AstraZeneca og Oxford-háskóla gegn kórónuveir- unni. Ásökunin kom sama dag og Al- þjóðaheilbrigðisstofnunin, WHO, fagnaði því að 500 milljón bólusetning- ar hefðu farið fram vítt og breitt um heiminn. Þar af hafa Bandaríkjamenn gefið 133 milljónir skammta af bóluefni gegn veirunni og Kínverjar um 91 milljón skammta. Hlutfallslega standa Ísraelsmenn best í bólusetningum, en þeir hafa bólusett um 60% þjóðarinn- ar, og meira en helmingur allra Ísr- aelsmanna hefur fengið báða skammta sem þarf til að teljast full- bólusettur gegn kórónuveirunni. Bretar hafa gefið rúmlega helmingi allra fullorðinna einstaklinga að minnsta kosti einn skammt, en aðildarríki Evrópusambandsins hafa framkvæmt um 65 milljónir bólusetn- inga, eða um einn tíunda af íbúafjölda sambandsins. Segir Breta „sjálfselska“ Le Drian sagði að Bretar hefðu far- ið fram úr sér með því að reyna fyrst að bólusetja alla einu sinni, og að nú myndu þeir lenda í vandræðum með að gefa fólki seinni skammtinn. Sagði Le Drian Breta því vilja kúga Evrópu- sambandið til þess að geta haldið áfram bólusetningum sínum og sakaði þá um sjálfselsku. Ummæli hans féllu degi eftir að Emmanuel Macron Frakklandsforseti og Ursula von der Leyen, forseti fram- kvæmdastjórnar ESB, hótuðu að stöðva útflutning AstraZeneca-efnis- ins til ríkja sem stæðu betur að vígi í bólusetningum, þar til fyrirtækið hefði uppfyllt samninga sína við sambandið. Bretar eiga forgang að framleiðslu úr tveimur verksmiðjum AstraZeneca í Bretlandi og telja sig einnig eiga for- gang að skömmtum sem framleiddir eru í Hollandi, en sú verksmiðja fékk fyrst í gær framleiðsluleyfi fyrir evr- ópskan markað. Bresk stjórnvöld kostuðu líka þróun bóluefnisins og sömdu við AstraZeneca á undan Evr- ópusambandinu. Fyrirtækið hefur selt bóluefni sitt á kostnaðarverði, en heimildarmenn breska ríkisútvarpsins BBC innan AstraZeneca sögðu að slíkt yrði ekki endurtekið í næsta heimsfaraldri í ljósi þess vanþakklætis og rógsherferðar sem bóluefni þess hefði mátt þola að undanförnu. „Ný tegund heimsstyrjaldar“ Macron Frakklandsforseti lét sitt ekki eftir liggja í yfirlýsingum, en hann gagnrýndi sérstaklega Rússa og Kínverja, og sagði að nú væri í gangi „ný tegund heimsstyrjaldar“, þar sem keppt væri um völd og ítök með bólu- efnum. Rússar mótmæltu ummælum Mac- rons þegar í stað, en nokkur umræða hefur verið innan sumra aðildarríkja ESB um hvort kaupa eigi einnig Spút- ník 5-bóluefnið, sem bíður enn sam- þykkis evrópsku lyfjastofnunarinnar. Þá sagðist Macron styðja algjört bann á útflutning bóluefna ef viðkom- andi fyrirtæki hefði ekki staðið skil á sínu við Evrópusambandið. Mark Rutte, forsætisráðherra Hol- lands, sagðist hins vegar óttast að birgðakeðjur bóluefnanna væru svo nátengdar og viðkvæmar að það væri ekki sjálfkrafa til bóta ef heimildinni til að banna útflutning yrði beitt. Sagði Rutte þó að hann teldi að Bretar og Evrópusambandið gætu komist að samkomulagi um helgina. „Það yrði hjálplegt, því við erum vinir, Bretar og restin af Evrópu, og við þurfum á hvort öðru að halda.“ Neyðarsjóðurinn í uppnámi Evrópusambandið glímir ekki bara við skort á bóluefni. Stjórnlagadóm- stóll Þýskalands fyrirskipaði í gær að beðið skyldi með staðfestingu nýrra laga um neyðarsjóð Evrópusam- bandsins vegna kórónuveirunnar, þar til búið væri að fjalla um dómsmál sem höfðað var á síðustu stundu gegn frumvarpinu. Báðar deildir þýska þingsins höfðu samþykkt frumvarpið, en það fæli í sér heimild fyrir Þýskaland til að fjár- magna sameiginlegan neyðarsjóð upp á 750 milljarða evra, sem Evrópusam- bandið vill setja upp vegna heimsfar- aldursins. Var þess eins beðið að Frank Walter-Steinmeier, forseti Þýskalands, undirritaði lögin til þess að þau tækju gildi þegar kæran var lögð fram af fimm ónefndum einstak- lingum. Samþykki þingsins þótti sögulegt, þar sem Þjóðverjar hafa til þessa verið tregir til þess að stofna til ábyrgða fyr- ir skuldum annarra aðildarríkja Evr- ópusambandsins, en ríkisstjórnin hafði sagt það nauðsynlegt til þess að aðildarríki ESB gætu náð sér aftur á strik eftir kórónuveirufaraldurinn. „Þessi atkvæðagreiðsla sendir skýrt merki um evrópskan samhug og styrk,“ sagði Olaf Scholz, fjármálaráð- herra Þýskalands, þegar niðurstaða þingsins lá fyrir, en Scholz lagði áherslu á að öflug endurreisn annarra Evrópuríkja væri forsenda fyrir upp- gangi í Þýskalandi. Rufu nokkur „rauð strik“ Neyðarsjóðurinn var samþykktur í desember síðastliðnum eftir að ríki Evrópusambandsins höfðu deilt mest- allt árið um með hvaða ráðum væri best að styðja ríki eins og Ítalíu og Spán, sem þá höfðu fengið mest að kenna á kórónuveirunni. Nokkur ríki í norðurhluta sam- bandsins, með Hollendinga og Dani í fararbroddi, streittust gegn hugmynd- inni um sjóð sem myndi veita styrki, þar sem óttast var að ríkin í suðri, sem ekki hafa farið jafnsparlega í ríkisfjár- málum sínum og ríkin í norðri, myndu útvega sér styrki fyrir hallarekstur sinn, sem önnur ríki þyrftu að standa skil á. Til að fá sjóðinn í gegn þurftu Þjóð- verjar að rjúfa nokkur „rauð strik“ í hagstjórn sinni. Þá þurfti að fá sér- staka undanþágu fyrir lántöku fyrir árin 2020 og 2021, þar sem hún var ekki talin standast stjórnarskrá Þýskalands ella. Hyggjast Þjóðverjar taka um 240 milljarða evra að láni á þessu ári, og vilja þýsk stjórnvöld einnig fá undanþágu fyrir árið 2022. AFP Útflutningsbann Emmanuel Macron Frakklandsforseti ræddi við fjölmiðla í fyrradag um útflutningshömlur. Sakar Breta um fjárkúgun - 500 milljón bólusetningar hafa farið fram - Andar köldu milli Breta og Frakka - Macron styður útflutningsbann - Stjórnlagadómstóll stöðvar neyðarsjóð ESB Abiy Ahmed, forsætisráðherra Eþí- ópíu, lýsti því yfir í gær að landið myndi draga hersveitir sínar til baka frá Tigray-héraði Eþíópíu, en þar hafa þær verið frá 4. nóvember síð- astliðnum. Yfirlýsingin er talin marka vendi- punkt í landamæraskærum sem stað- ið hafa um lengri tíma milli ríkjanna og aðskilnaðarsinna í héraðinu, en hermenn beggja þjóða eru sakaðir um alvarlega stríðsglæpi í þeim. Stjórnvöld í Eritreu og Eþíópíu höfðu neitað því að nokkrir erítreskir hermenn væru í héraðinu, þar til á þriðjudaginn að Abiy viðurkenndi til- vist hersveitanna. Hélt hann svo í gær í heimsókn til Asmara, höfuðborgar Erítreu, og ræddi þar við Isaias Af- werki Erítreuforseta um leiðir til þess að binda endi á átökin. ERITREA AFP Sættir Abiy og Afwerki funduðu í gær. Hyggjast draga her- sveitir sínar til baka Alex Salmond, fyrrverandi for- sætisráðherra skosku heima- stjórnarinnar og formaður skoska þjóðarflokksins SNP, stofnaði í gær nýjan flokk, Alba-flokkinn. Flokkurinn styð- ur sjálfstæði Skotlands líkt og SNP, en Salmond sagði Alba-flokknum ekki stefnt til höfuðs sínum gamla flokki. Deilur Salmonds og Nicolu Sturgeon, eftirmanns Salmonds, hafa verið áberandi á síðustu vik- um, þar sem skoska þingið hefur rannsakað hvaða þátt Sturgeon átti í að hafin var rannsókn á Salmond fyrir meinta kynferðislega áreitni. Salmond segir að helsta markmið Alba-flokksins sé að vinna að sjálf- stæði Skotlands sem fyrst og sam- þykkt nýrrar stjórnarskrá fyrir hið nýstofnaða ríki. SKOTLAND Salmond stofnar sinn eigin flokk Alex Salmond BÍLABÚÐ BENNA KOLEFNISJAFNAR SSANGYONG benni.is Bílasala Suðurnesja Reykjanesbæ Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330 Ib bílar Selfoss Fossnes A Sími: 480 8080 Bílaríkið Akureyri Lónsbakka Sími: 461 3636 Bílabúð Benna Reykjavík Krókháls 9 Sími: 590 2020 B ir t m e ð fy ri rv a ra u m t e x t a - o g m y n d a b re n g l. Elskar íslenskar aðstæður Komdu og sjáðu Korando. Hér er á ferðinni ótrúlega vel heppnaður sportjeppi sem er eins og sérhannaður fyrir Ísland. + 163 hestöfl / 280 Nm + 2WD eða 4WD + Hægt að læsa millikassa í 4WD Verð frá: 4.390.000 kr. Fimm ára ábyrgð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.