Morgunblaðið - 27.03.2021, Síða 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2021
ENGINN
ÐBÆTTUR SYKUR
ENGIN
ROTVARNAREFNI
85%
TÓMATPÚRRA
VI
Þ
egar sóttvarnaaðgerðir
stjórnvalda flugu fyrir var
keppni í landsliðsflokki á
Skákþingi Íslands blásin
af, öll innanfélagsmót Taflfélags
Reykjavíkur og fleiri viðburðir.
Vignir Vatnar Stefánsson var
„krýndur“ sigurvegari Yrðlinga-
móts TR en hann hafði unnið allar
fimm skákir sínar en átti að tefla við
helsta keppinaut sinn, Guðmund
Kjartansson, í sjöttu umferð. Á
skákmóti öðlinga voru Magnús
Pálmi Örnólfsson og Helgi Áss
Grétarsson efstir með 4½ vinning af
fimm mögulegum. Þeir áttu að tefla
saman í sjöttu umferð.
En það var sem betur fer búið að
ljúka nokkrum skákkeppnum, t.d.
Íslandsmóti grunnskólasveita sem
fram fór um síðustu helgi en 38
sveitir tefldu í eldri og yngri flokki.
Þá lauk Skákþingi Akureyrar á
dögunum með sigri Rúnars Sig-
urpálssonar sem vann allar skákir
sínar, sjö talsins.
Skákþing Vestmannaeyja hafði
þá sérstöðu að „gestur“ var á meðal
keppenda. Guðmundur Kjartansson
sigldi fjórum sinnum á milli lands
og Eyja, tefldi 2-3 skákir í hverri
ferð. Eyjamenn tóku vel á móti
Guðmundi en veittu honum jafn-
framt harðvítuga mótspyrnu. Til
þess að Guðmundur næði markmiði
sínu um stigahækkun varð hann að
vinna hverja einustu skák og það
gerði hann – en ekki átakalaust.
Stigahækkunin fleytti honum áleiðis
að 2.500 elo-stiga-markinu. Mér lék
nokkur forvitni á að vita hvernig
Sigurjóni Þorkelssyni, sem oftast
allra hefur orðið Vestmanna-
eyjameistari, myndi ganga í skák-
inni við Guðmund. Þeir mættust í
níundu umferð:
Skákþing Vestmannaeyja 2021
Sigurjón Þorkelsson –
Guðmundur Kjartansson
Þessi staða kom eftir 26. leik Guð-
mundar, Bh7-g8. Sigurjón gat nú
leikið 27. Bxe4! Hxe4 28. Rg6+ Kh7
29. f3 og eftir 29. … Hxe3 á hann
gangandi þráskák. Í raun og veru
getur hann líka teflt til vinnings
með 29. Rf4 sem hótar 30. f3. En í
stað þess valdi hann að leika 27.
Hab1 og eftir 27. … Rd6 var hann
með ágæta stöðu sem tapaðist þó
eftir 61 leik.
Sigurjón varð efstur heima-
manna, hlaut 8½ vinning af 11 og
varð Vestmannaeyjameistari í 15
sinn. Í 3.-4. sæti komu Hallgrímur
Steinsson og Benedikt Baldursson,
báðir með átta vinninga.
Giri efstur á
boðsmóti Magnúsar
Magnús hefur enn ekki unnið í
mótaröð sem kennd er við hann og
um síðustu helgi náði hann að vísu
að leggja Wesley So að velli en það
var í keppni um 3. sætið. Á sama
tíma vann Hollendingurinn Anisyh
Giri sigur í úrslitaeinvíginu við
Rússann Nepomniachtchi. Norð-
maðurinn féll úr keppni þegar hann
tapaði fyrir Nepo í undanúrslitum
en á lokasprettinum kom þessi
staða upp í einni af skákum þeirra:
Magnús Carlsen – Jan Nepomni-
achtchi
Staða hvíta kóngsins er ótrygg en
ekki er svo að auðvelt að notfæra
sér það, t.d. 43. … Hxe3 44. Hxg7+!
o.s.frv. En Nepo fann lausnina:
43. … Kh6! 44. Kxf5 Hxe3! 45.
Hc5 g6+ 46. Kg4 Hfxf3
- og við hótuninni 47. … f5+ er
ekkert svar. Hvítur gafst upp.
Skákdæmi Horts
Á ágætri vefsíðu Chessbase birt-
ast stundum skemmtilegar frásagn-
ir Vlastimils Horts. Þessi tékkneski
stórmeistari hefur rifjað upp kynni
sín af ýmsum stórum persónu-
leikum skáksögunnar og í einum
pistli birti hann tvö skákdæmi. Ann-
að þeirra er svona:
Hvítur leikur og mátar.
Birti lausnina í næsta pistli.
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Ríkisstjórnin hefur
lagt fram sína síðustu
fjármálaáætlun og er
hún hvorki fugl né
fiskur. Áætlunin er
ekki að blása þeim
þúsundum Íslendinga
sem eru atvinnulausir
von í brjóst. Það er
ekki verið að nota
ríkisjármálin nægi-
lega til þess að fjölga
störfum í gegnum
einkaframtakið. Hið
mikla atvinnuleysi
sem við glímum nú
við er þjóðinni mjög
dýrt svo ekki sé talað
um andlega þáttinn. Í
Bandaríkjunum er
búið að setja 1,8
milljónir króna á
hvern mann í aðgerð-
ir til að fjölga störf-
um. Hér er búið að
setja 540 þúsund á
hvern Íslending. Við
erum eftirbátar ann-
arra þjóða í efnahags-
aðgerðum vegna veirufaraldursins.
Eina sem er skýrt í þessari fjár-
málaáætlun og greinilega mik-
ilvægast í augum ríkisstjórn-
arinnar er stefnulaus hækkun á
framlögum til loftslagsmála.
Hækkun sem við vitum ekki
hverju skilar. Hækkun sem ekki
er árangursmæld. Hækkunin nem-
ur einum milljarði á ári næstu ár-
in. Nær væri að setja þessa pen-
inga í að búa til störf í samstarfi
við einkageirann. Hækkun til
loftslagsmála getur ekki verið for-
gangsmál þegar þúsundir Íslend-
inga eru atvinnulausir. Ráðherrar
ríkisstjórnarinnar hafa greinilega
ekki staðið í þeim sporum á sínu
æviskeiði að vera atvinnulausir.
Áætlunin er full af óraunhæfum
væntingum, meðal annars er gert
ráð fyrir að hingað komi tvær
milljónir ferðamanna
á næstu tveimur ár-
um. Það er óraunhæft
og sömuleiðis vænt-
ingar um að hér verði
áfram lágt vaxtastig
þegar verðbólga fer
hækkandi. Hagvaxtar-
forsendur áætlunar-
innar voru brostnar
sama dag og hún var
kynnt.
Innihaldslaus
fjármálaáætlun
Fjármálaráðherra
sagði í umræðunni á
Alþingi um áætlunina
að staðan væri að
batna mjög hratt.
Ráðherrann virðist í
eigin heimi hvað það
varðar. Það er fyrst
og fremst einkaneysl-
an og íbúðafjárfest-
ingin sem gerir stöð-
una betri en menn
gerðu ráð fyrir.
Eyðsla almennings er
lykillinn að því að
þetta fór ekki eins illa
og stefndi í. Heimilin
eru að eyða sínum sparnaði. Það
geta þau ekki endalaust. Það er
ekki ríkisstjórninni að þakka að
staðan er ekki eins slæm og spáð
hafði verið. Fjármálaáætlunin er
uppfull af innihaldslausum yfirlýs-
ingum. Gefin eru vilyrði fyrir fjár-
festingum sem hvergi eru sýni-
legar. Ekki ein króna verður sett í
nýjan þjóðarleikvang svo dæmi sé
tekið. Mikilvæg innviðaverkefni
bíða.
Kjarni málsins er þessi: Hér er
ríkisstjórn sem er að fara inn í
kosningar með þúsundir Íslend-
inga atvinnulausa og fjármála-
áætlun sem leysir engan vanda.
Þannig ríkisstjórn á ekki að
styðja.
Hækkun til lofts-
lagsmála framar
atvinnulausum
Eftir Birgi
Þórarinsson
»Ríkisstjórnin
fer inn í
kosningar með
þúsundir Ís-
lendinga at-
vinnulausa og
fjármálaáætlun
sem leysir eng-
an vanda. Þann-
ig ríkisstjórn á
ekki að styðja.
Birgir Þórarinsson
Höfundur er þingmaður Miðflokksins
og situr í fjárlaganefnd Alþingis.
Sigurður Stefánsson fæddist 27.
mars 1744 á Höskuldsstöðum á
Skagaströnd. Foreldrar hans
voru Stefán Ólafsson og seinni
kona hans, Sigríður Sigurð-
ardóttir. Sigurður var hálf-
bróðir Ólafs Stefánssonar stift-
amtmanns, sem Stephensens--
ættin er kennd við.
Sigurður varð stúdent frá
Hólaskóla 1765 og tók guðfræði-
próf frá Kaupmannahafnarhá-
skóla 1767. Hann varð kon-
rektor Hólaskóla 1768, fékk
Möðruvallaklaustursprestakall í
Hörgárdal 1773, Helgafell 1781
og var prófastur á Snæfellsnesi.
Hann var biskup á Hólum frá
1789 til dauðadags, en Hólastóll
var lagður niður 1801 og var
Sigurður síðasti biskupinn þar.
Sigurður var góður kennari
og ástsæll, enda góðviljaður
maður. Árið 1797 út komu fjórar
bækur á Hólum, m.a. barna-
spurningar í þýðingu Sigurðar.
Árið eftir kom 10. útgáfa Vídal-
ínspostillu, og loks minning-
arritið Verdung Sigurðar Stef-
ánssonar (1799) eftir Þorkel
Ólafsson dómkirkjuprest. Var
það síðasta bók sem prentuð var
á Hólum.
Kona Sigurðar var Guðríður
Halldórsdóttir, f. 1740, d. 1820.
Þau voru barnlaus.
Sigurður lést 24. maí 1798.
Merkir Íslendingar
Sigurður
Stefánsson
Sigurður biskup Málverkið er
líklega eftir Jón Hallgrímsson.
Morgunblaðið/SÍ
Íslandsmeistarar Skáksveit Landakotsskóla sigraði glæsilega á Íslands-
móti grunnskóla, 1.-10. bekkjar. Sigursveitin frá vinstri: Iðunn Helgadóttir,
Leifur Þorsteinsson liðsstjóri, Adam Omarsson, Jósef Omarsson, Jón Louie
Thoroddsen og Guðmundur Kjartansson sem afhenti verðlaun
Guðmundur komst í
hann krappan á Skák-
þingi Vestmannaeyja