Morgunblaðið - 27.03.2021, Page 37

Morgunblaðið - 27.03.2021, Page 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2021 ✝ Sigríður Guðný Kristjáns- dóttir, húsfreyja og bóndi á Snart- arstöðum, fæddist 12. desember 1934. Hún lést á sjúkra- húsinu á Akureyri 15. mars 2021. Foreldrar Sig- ríðar voru María Ólöf Sigfúsdóttir, f. 29.5. 1902, d. 6.4. 1939, og Kristján Guðmundsson, f. 18.12. 1891, d. 2.3. 1943, frá Raufarhöfn. Hún var eina barn foreldra sinna. Sigríður giftist 12.12. 1957, Sigurði Ingimundarsyni, bónda á Snartarstöðum, f. 10.5. 1913, d. 25.2. 2008. Börn Sigríðar og Sigurðar eru: 1) Guðný María, bóndi á fellsbæ, f. 21.7. 1971, gift Sól- mundi Oddssyni kjötiðn- aðarmeistara og eru börn þeirra Lýdía Hrönn, f. 29.4. 1998, og Katrín Huld, f. 17.2. 2000. 4) Halldóra, lögg. sjúkraþjálf- ari í Hveragerði, f. 5.8. 1973, gift Einari Michael Guðjónssyni og eru börn þeirra Natalía Rut, f. 7.2. 2001, Camilla Rós, f. 12.7. 2004, og Victoría Rán, f. 13.4. 2008. Sigríður fæddist á Rauf- arhöfn en um 8 ára aldur hafði hún misst báða foreldra sína úr berklum. Í Skinnalóni á Mel- rakkasléttu dvaldist hún til nokkurra ára hjá föðursystur sinni en sótti barnaskóla í Núpa- sveit. Um fermingaraldur kom- hún sem barnapía til Didda og Lólóar á Hvoli. Hún fór svo í Húsmæðraskólann á Laugum og upp úr tvítugu byrjuðu þau Sig- urður að reisa sér hús á landi Snartarstaða, þar sem hún hef- ur alla tíð búið. Sigríður verður jarðsungin frá Snartarstaðakirkju í dag, 27. mars 2021, kl. 14. Ærlæk, f. 21.4. 1961, gift Jóni Hall- dóri Guðmunds- syni, f. 1.9. 1958, d. 8.2. 2016, og eru börn þeirra Sig- urður Ægir, f. 18.9. 1984, kvæntur Lín- eyju Höllu Krist- insdóttur og eiga þau tvo drengi, Jón Sölva og Elías Dór; Sigríður Harpa, f. 9.9. 1988, í sambúð með Magnúsi Gunnlaugssyni; og Sylvía Dröfn, f. 4.8. 1994. 2) Kristjana Ólöf, lögg. end- urskoðandi í Reykjavík, f. 31.1. 1964, í sambúð með Gunnari Braga Ólasyni, doktor í efna- fræði, og er dóttir þeirra Gunn- hildur Diljá, f. 24.11. 2000. 3) Inga Friðný, bókari í Mos- Elsku móðir mín er látin, hún féll frá mánudaginn 15. mars eftir stutta legu á sjúkrahúsinu á Ak- ureyri. Alltaf fannst mér jafn notalegt og gaman að koma til mömmu sem bjó á Snartarstöðum í Núpasveit. Þangað var langt að fara til hennar frá Reykjavík en alltaf fannst mér það bestu fríin og mesta hvíldin í því að fara þangað í fríum. Það var oft spilað en það fannst henni gaman og far- ið í bíltúra og heimsóknir til Rauf- arhrafnar þaðan sem hún var og bjó sem krakki. Einnig fannst henni gaman að allri handavinnu og oft sátum við og saumuðum saman yfir sjónvarpi eða útvarpi á kvöldin, þeirra stunda mun ég sakna mikið og verunnar með þér. Hvíldu í friði elsku mamma. Kristjana Ólöf. Elsku mamma mín, þá er kallið komið og pabbi kominn að sækja þig. Ég veit hann hefur tekið vel á móti þér og vafið þig örmum sín- um. Mér er þakklæti efst í hug fyrir þann tíma sem ég fékk með þér og allt sem þú kenndir mér, að elda, baka, prjóna, hekla og sauma út. Þó að heklið hafi ekki gengið nógu vel hjá mér, alla vega ekki á unglingsárum, fannst mér svo gaman að því að eftir að ég fór á námskeið í taumálun vildir þú læra það. Og það gekk svo vel hjá þér, handklæði, dúkar, svuntur og fjölnota pokar, allt svo vel gert því þú varst einstaklega vandvirk. Já, allt lék í höndunum á þér hvort sem það var handavinna, saumaskapur, matargerð, bakst- ur, að mála glugga eða smíða blómaborð. Þú kenndir mér að gera heimsins bestu fiskibollur og vona ég svo sannarlega að ég geti haldið því áfram. Hagsýni, skyn- semi og nægjusemi hafðir þú að leiðarljósi og hugsaðir þig alltaf tvisvar um áður en hlutum var hent. Nú, það gæti verið hægt að nýta í eitthvert annað hlutverk. Ég man þegar ég var krakki að við fórum með þér út í Núpsvík að tína bobba (það sem heitir víst kuðungar) sem sátu utan á stein- um í fjörunni, svo fórum við heim með þá og hreinsuðum innan úr og þurrkuðum. Límdum svo utan á krukkur og hólka til að búa til box og vasa. Veit ekki hvar þú fékkst hugmynd að þessu en þetta var gaman. Minnisstæðir eru mér sunnu- dagsbíltúrar inn í Ásbyrgi með rjómapönnukökur í boxi og kakó á brúsa. Útilegur austur á Vopna- fjörð og Egilsstaði. Eða bara að sitja í sólinni á stéttinni vestan við húsið. Allt eru þetta góðar minn- ingar af góðum stöðum. Og þú vildir alls ekki heyra minnst á elliheimili, sagðist hafa byggt þetta hús á Snartarstöðum og hér ætlaðir þú að vera eins lengi og mögulegt væri. Enda tókst þér það alveg til 86 ára ald- urs. Ég vona svo sannarlega að þú njótir hins nýja verkefnis sem nú tekur við á nýjum stað, elsku móð- ir góð. Hversvegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Þín dóttir, Inga Friðný Sig. Mig langar að skrifa nokkur minningarorð um hana Siggu á Snartarstöðum, hún var tengda- móðir mín. Okkar fyrstu kynni voru á frek- ar á lágstemmdum nótum, hafði ég frétt af því að hún hefði fengið kunningja úr sveitinni til að hringja í vin sinn austur á landi til að spyrja hann hvers konar maður ég væri. Það var vegna þess að hún hafði áhyggjur af ungri dóttur sinni, Ingu, sem var farin að leita ásta og í framhaldi féll ég í þann ástarvef. Söguna fékk hún og var hún á þá leið að ég væri frekar fyr- irferðarmikill og afar mikill gleði- bolti, en þá ætti ég ágætiskafla. Og til að toppa þetta þá var ég bú- inn að eignast barn fyrir tvítugt. Sigga, sem unni sínum vel, vildi nú hafa mig í svolítilli fjarlægð til að byrja með enda kannski var hún að vona að þetta skot okkar Ingu myndi fjara út. En svo var ekki og við Sigga sættumst og kann ég henni mjög góða sögu. Mér var líka ljóst að barnæska hennar hafði tekið í, því hún missti móður sína þegar hún var um tveggja ára og föður sinn um átta ára aldur- inn. Hún gerði allt til að ég fengi uppáhaldsmatinn minn hjá henni, já í hvert sinn sem ég kom í Snart- arstaði, silungasúpa, fiskibollur, brúna súkkulaðikakan og ég tala nú ekki um randalínurnar sem voru alltaf til staðar fram til síð- asta dags. Sigga var mikil fyrir- mynd, hæglát og undi sér vel heima við. Eitt sinn þegar við Inga vorum að fara keyrandi til Reykjavíkur þá sagði hún frekar hvöss við mig: „Það er eins gott að þú farir hægt svo þú komist fljótt.“ Ég var talsverðan tíma að átta mig á hvað þetta þýddi en þetta er auðvitað svo satt. Eitt af því fyrsta sem ég tók eftir og fannst skrítið var að hún var oft að þvo plastpoka og hengja þá upp á snúru til þerris. Ég spurði hana (sennilega um 1990) hvers vegna í ósköpunum hún gerði þetta. Svar- ið kom fljótt, nú þetta er plast og það á ekki að henda því og auðvit- að á að nota það eins oft og hægt er sem í dag er svo satt, hún var svo hagsýn og nægjusöm og í þeim efnum svo langt á undan sinni samtíð. Sigga, ég vil þakka fyrir mig þú munt eiga stað í hjarta mínu. Og ef þú og Siggi getið þá vona ég að þið lítið nú eftir okkur. Ég vona að nýja heimilið þitt verði hlýtt og notalegt eins og það gamla. Elsku mágkonur, makar og börn, hér var góð kona á ferð og ég vona að við öll getum hlýjað okkur við góðar minningar um góða og elskulega konu. Að lokum langar mig að segja frá einu hugarangri sem hún olli mér þegar ég var í heimsókn. Fyrsta kvöldið sem við sátum í stofunni hjá henni þá segir hún upp úr þurru, viltu heyra gátu? Ég játti því. Þetta var skilið eftir svona rétt fyrir svefninn og ekki var sofið mikið þá nótt, en á endanum kom svarið daginn eftir svona með minni rökfærslu í sambland við rétta svarið. Jæja, hún er svona: Ég og granni minn, konan mín og konan hans fórum að tína egg. Við fundum eitt hreiður, í því voru fimm egg, hvert okkar tók eitt egg en samt var eitt egg eftir. Hvernig er þetta mögulegt? Þinn tengdasonur, Sólmundur Oddsson. Elsku amma. Það er sárt að þurfa að kveðja þig og mun ég sakna þín. Ég kveð með hlýjar minningar í hjarta og er þakklát fyrir allar þær góðu stundir sem við höfum átt saman. Það var alltaf gaman og notalegt að koma til þín og dvelja hjá þér í nokkra daga, mun alltaf muna það þegar þú kenndir mér spilið marías þegar ég var yngri, við spiluðum það oft á dag en á hverju ári þurftir þú að rifja það upp fyrir mér og þú varst alltaf tilbúin að gera það. Ég mun minnast allra þeirra yndislegu kvölda sem við spiluðum saman, drukkum kakó og borðuðum kruð- ur. Þú varst alltaf dugleg að baka, þú bakaðir besta bakkelsið og bauðst alltaf upp á gómsæti þegar þú fékkst heimsóknir. Ég mun aldrei gleyma góðmennsku þinni og hlýju, er mjög þakklát fyrir þann tíma sem ég fékk að vera með þér. Hvíldu í friði. Gunnhildur Diljá. Sigríður Guðný Kristjánsdóttir Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGUNN EYJÓLFSDÓTTIR, lést á Hjúkrunarheimilinu Mörk 13. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð og sérstakar þakkir fær starfsfólk Markar fyrir nærgætna og góða umönnun. Elísabet Valtýsdóttir Gísli Skúlason Kristín Valtýsdóttir Þórður D. Bergmann Margrét V. Zachariassen Henrik Zachariassen Anna María Valtýsdóttir barnabörn og langömmubörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR OLSEN, Undirhlíð 3, Akureyri, lést 17. mars. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 31. mars klukkan 13. Vegna aðstæðna í samfélaginu verða einungis nánustu ættingjar viðstaddir en athöfninni verður streymt á facebooksíðunni Jarðarfarir í Akureyrarkirkju – beinar útsendingar. Vigdís María Jónsdóttir Ingvar Árni Olsen Hólmfríður Sigurðardóttir Jóhann Pétur Olsen Hjördís Stefánsdóttir Guðm. Þór Guðmundsson Helena Supee Jaimon Díana Björk Olsen Valur Rafn Valgeirsson afa- og langafabörn HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Óli Pétur Útfararstjóri s. 892 8947 Hinrik Valsson Útfararstjóri s. 760 2300 Dalsbyggð 15, Garðabæ Sími 551 3485 osvaldutfor@gmail.com Hjartans þakkir til allra þeirra sem sendu okkur hlýjar kveðjur, falleg orð og faðmlög við andlát og útför okkar ástkæra sonar, föður, tengdaföður og afa, GARÐARS JÓNSSONAR, öryggisstjóra Icelandair, Akranesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks lyflæknisdeildar HVE Akranesi og til samstarfsfólks hans hjá Icelandair. Minningin lifir. Alma Garðarsdóttir Jón Gunnar Garðarsson Lilja Guðmundsdóttir Hafþór Ingi Garðarsson Melika Sule Lilja Bjarklind Garðarsdóttir Oliver Darri Bergmann Stefán Kaprasíus Garðarss. og barnabörnin Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS SIGURÐSSON múrarameistari frá Vestmannaeyjum, Stórakrika 1, Mosfellsbæ, lést í faðmi fjölskyldunnar á Landspítala 15. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Dóróthea Einarsdóttir Kristín Magnúsdóttir Sigurgeir K. Ársælsson Sigurður Magnússon Sigríður Hálfdánardóttir Einar Sveinn Magnússon Hrafnhildur Sveinbjörnsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIGERÐUR KARLSDÓTTIR, lést fimmtudaginn 4. mars á Sólvangi í Hafnarfirði. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að hennar ósk. Þökkum auðsýnda samúð, sérstakar þakkir til starfsfólks Sólvangs fyrir mikinn hlýhug og frábæra umönnun. Tinna Rut Njálsdóttir Haraldur Njálsson Þórunn Njálsdóttir og fjölskyldur Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.