Morgunblaðið - 27.03.2021, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2021
Sérfræðingur í umhverfis-,
heilbrigðis- og öryggisteymi
Hæfniskröfur
Háskólamenntun í efnafræði/efnaverkfræði eða
sambærilegmenntun
Færni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum
Sterk öryggisvitund
Góð íslensku- og enskukunnátta
Góð tölvukunnátta
Reynsla af stjórnun er kostur
Alcoa Fjarðaál leitar að jákvæðumog drífandi
einstaklingi ífjölbreytt starf sérfræðings í öflugu
umhverfis-, heilsu- og öryggisteymi. Í starfinu felst
meðal annars sérfræðiráðgjöf á rannsóknastofu þar
sem fram faramælingar sem skipta höfuðmáli í fram-
leiðslustjórnun og gæðakerfi fyrirtækisins. Undir
starfið fellur einnig að tryggja öruggt og heilsusamlegt
starfsumhverfi í samræmi við vinnuverndarlög og
staðla Alcoa. Vinnutími er að jafnaði frá kl. 8 til 16
á virkumdögum, að viðbættumbakvöktum.
Umsóknarfrestur er til ogmeð 6. apríl. Umsóknir eru
trúnaðarmál og er þeim öllum svarað.Við hvetjum fólk
af öllum kynjum til að sækja um starfið.
Frekari upplýsingar veitir Gerður Rún Rúnarsdóttir
á gerdur.runarsdottir@alcoa.comeða í síma 470 7700.
Umsóknum ásamt ferilskrá skal skilað á www.alcoa.is
Ábyrgð og verkefni
Sérfræðiráðgjöf á rannsóknastofu, varðandi greiningar
og þróunmæliaðferða
Samræma vinnuaðferðir og framkvæmdirmælinga
Eftirlit með gagnavinnslu og niðurstöðum
Yfirumsjónmeð efnamálum fyrirtækisins
Umsjónmeð heilsumælingum
Virk þátttaka í umbótastarfi teymisinsmeð áherslu
á vinnuvernd
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
Slökkvilið
höfuðborgarsvæðisins
Skógarhlíð 14
S: 528 3000
www.shs.is
Starf eldvarnaeftirlitsmanns hjá Slökkviliði
höfuðborgarsvæðisins (SHS) er laust til
umsóknar. Um framtíðarstarf er að ræða
við eldvarnaeftirlit og forvarnir á starfs-
svæði slökkviliðsins. Starfið felur í sér
skoðanir á byggingum og lóðum auk
skráningar og gagnavinnu.
Við erum að leita að einstaklingi með góða
færni í mannlegum samskiptum og getu til að
vinnameð öðrum, jafnframt því að geta unnið
sjálfstætt og sýnt frumkvæði í starfi sínu. Góð
tölvufærni er nauðsynleg auk góðrar íslensku-
kunnáttu bæði í tal- og ritmáli.
Upplýsingar um hæfniskröfur er að finna
á heimasíðu SHS og eru þær samkvæmt
reglugerð um eldvarnir og eldvarnaeftirlit
nr. 723/2017.
Nánari upplýsingar veitir Bjarni Kjartans-
son sviðsstjóri, bjarnik@shs.is eða í síma
528-3000.
Umsóknarfrestur er til og með 19. apríl
2021 og sótt er um starfið á heimasíðu
liðsins, shs.is.
ELDVARNAEFTIRLITSMAÐUR