Morgunblaðið - 27.03.2021, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 27.03.2021, Qupperneq 46
46 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2021 Fæst í apótekum, heilsuhúsum og heilsuhillum stórverslanna. 50 ára Lára er Reyk- víkingur, ólst upp í Háaleitishverfinu og býr í Norðurmýri. Hún er stærðfræðikennari og íslenskukennari að mennt frá Kennarahá- skóla Íslands. Hún hefur starfað í fjöl- miðlum frá 2005 en er nýtekin við starfi samskiptastjóra hjá fjárfesting- arsjóðnum Aztiq Funds. Lára er í hljóm- sveitinni Smyrlunum. Maki: Haukur Hatlemark Olavsson, f. 1970, verslunarstjóri hjá Pennanum- Eymundssyni í Kringlunni og Hall- armúla. Börn: Lilja Sóley, f. 1990, Iðunn Hulda, f. 1994, Helga Rut, f. 1996, Hekla Sól, f. 1999, og Haukur Lár, f. 2004. Barna- börnin eru orðin þrjú og eitt á leiðinni. Foreldrar: Ómar Ragnarsson, f. 1940, frétta- og dagskrárgerðarmaður, og Helga Jóhannsdóttir, f. 1942, fv. for- stöðumaður og borgarfulltrúi. Þau eru búsett í Reykjavík. Lára Ómarsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Hugur þinn er hjá smáfólkinu þennan mánuðinn. Þú lentir í smá óhappi fyrir stuttu og ert enn að vinna úr því. 20. apríl - 20. maí + Naut Breytingar sem þú ákveður á heim- ilinu munu endast lengi og reynast vel þess virði, þegar upp er staðið. Brettu upp erm- arnar. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þú hefur tekið ýmislegt að þér og verður auðvitað að standa við gefin loforð. Þú ferð í ævintýraferð í sumar sem mun breyta lífssýn þinni. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Valdatafl við yfirboðara er líklegra en ekki í dag. Mundu eftir að taka eftir litlu hlutunum í lífinu og þakka fyrir allt það sem þú hefur áorkað. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Kannski er erfitt fyrir aðra að skilja það sem þú ert að ganga í gegnum í dag, en það þýðir ekki að þú sért skrýtin/n. Ekki er allt gull sem glóir. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Það er þér nauðsyn að hleypa barninu í þér út. Láttu það eftir þér sem oftast. Eitthvert daður er í gangi á vinnu- stað. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þú ert enn að leita að sálufélaganum sem skilur þig í einu og öllu, reyndu samt að njóta lífsins á meðan. Biddu um hjálp ef þú þarft. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Ertu nú aftur að fela tilfinn- ingar þínar? Það er ekki hægt að plata alla. Láttu ekki hugfallast því þú hefur alla burði til að leysa þau vandamál sem þér eru rétt. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Einhver nákominn er að reyna að fela galla sína fyrir þér. Of miklar upp- lýsingar valda þér vanlíðan, þú þarft ekki að vera ofan í hvers manns koppi. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Annríkið verður mikið næstu sex vikurnar. Að sitja á sér er eins og að sitja á eldfjalli. Betra er að segja sína meiningu áður en allt springur. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þú færð fréttir langt að, sem koma þér á óvart. Vertu þú í öllum að- stæðum, til lengdar er það best. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Mundu að allt hefur sinn tíma og það hefur ekkert upp á sig að beita þrýst- ingi. Einhver sem er of háður þér lærir að redda sér um leið og þú sleppir takinu. Margrét byggði sumarbústað við Apavatn sem var vígður á afmæli hennar 1997. Hún teiknaði hann og Margrét elskar að elda góðan mat og er gestrisin með eindæmum og kom sér þá vel dvölin í húsmæðra- skólanum í Kaupmannahöfn þar sem hún lærði bæði að elda danskan hversdags- og veislumat, enda var engin veisla án brúnaðra kartaflna, rauðkáls, rauðbeða og sósu. Köku- bakstur og salatgerð var líka í háveg- um höfð. Henni finnst maturinn smakkast betur ef gestir er til borðs. Margir vinir, ættingjar og vinir barnanna hafa notið gestrisni hennar á Laugalæknum, Laugarásveginum, Þúfu og nú í Sóltúninu. Á árum áður hikaði hún ekki við að slá upp fjöl- mennum veislum sem og árlegum 50 manna jólaboðum. M argrét Kristín Sig- urðardóttir fæddist 27. mars 1931 í Reykjavík og ólst þar upp. Hún lauk prófum frá Verslunarskóla Íslands 1949, einkaritaraprófi frá St. God- rich’s Secretarial College í London 1950, leiðsögumannaprófi 1970, stúd- entsprófi frá Menntaskólanum í Hamrahlíð 1983 og prófi í viðskipta- fræði frá Háskóla Íslands 1991. Margrét var ritari hjá Ríkisspítöl- unum með hléum frá 1949-1966, var leiðsögumaður hjá Kynnisferðum ferðaskrifstofanna, Ferðaskrifstofu Zoega og Ferðaskrifstofu ríkisins 1970-1978, deildarstjóri launadeildar Ríkisspítalanna 1991-1995, deildar- stjóri fjárreiðudeildar frá 1995 og deildarstjóri fjárhagseftirlits Land- spítala-háskólasjúkrahúss 2000- 2002. Margrét er félagslynd og var alltaf treyst fyrir fjármálunum hvar sem hún kom enda glúrin á því sviði. Hún var gjaldkeri í stjórn Inner-Wheel, útbreiðslustjóri, varaforseti og for- seti, var einn af stofnendum og sat í stjórn Félags leiðsögumanna, í stjórn Félags háskólakvenna og Kvenstúdentafélagsins sem varafor- maður og gjaldkeri, sat í atvinnu- og jafnréttismálanefnd Bandalags kvenna í Reykjavík og varafor- maður, sat í stjórn sjálfstæðis- kvennafélagsins Hvatar og formað- ur, sat í stjórn stjórnar Lands- sambands sjálfstæðiskvenna og gjaldkeri í stjórn Hverfafélags sjálf- stæðismanna Langholti. Hún sat í sóknarnefnd Áskirkju og var fjár- málastjóri Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur frá 2003-2017 og fyrir það var hún gerð að heiðursfélaga Félags háskólakvenna 2018. Börn Margrétar segja hana vera heimskonu eftir að hafa dvalið mikið erlendis. „Þegar við bjuggum í Sviss og Austurríki kom mamma fjölskyld- unni í skíðaskóla og höfum við síðan notið þess að vera á skíðum.“ Við dvalirnar erlendis lærði hún ensku, dönsku og þýsku sem kom sér vel þegar hún starfaði sem leiðsögu- maður þar sem hún fór í ófáar ferðir með ferðamenn að skoða Gullna hringinn. skipulagði alla byggingarvinnu, enda með sterkar skoðanir á hvernig hann ætti að vera. Börnin segja Margréti vera vinur vina sinna. „Hún er alltaf tilbúin að verja minni máttar ef á þá er hallað. Hún getur líka ef svo ber undir verið skapmikil ef gengið er á hlut hennar eða hennar nánustu og er staðföst með eindæmum og eru til eru ýmsar sögur því til staðfestingar. Ein er þegar hún bjargaði kofa sem sonur hennar hafði byggt með félögum sín- um. Klagað var undan að kofinn væri til lýta og komu starfsmenn borgar- innar til að fjarlægja hann. Mamma sá á tilburðum þeirra út um eldhús- gluggann hvað væri í aðsigi og hljóp á vettvang, þá kasólétt, og vildi tala þá frá frekari aðgerðum. Þegar það gekk ekki eftir gerði hún sér lítið fyr- ir og klifraði upp á burst kofans þar sem hún settist klofvega og sagði ákveðin: „Rífið hann nú!“ Kofinn fékk að vera í friði og einum borg- arstarfsmanni varð á orði: „Svona kona kostar eitthvað.““ Barnabörnin kunna líka að meta ömmu sína og nýverið skrifaði eitt þeirra henni bréf þar sem það þakk- aði henni fyrir að vera góð fyrirmynd – hjá henni hefðu þau lært að maður er aldrei of gamall til að gera eitt- hvað nýtt. Þeim finnst hún líka vera jákvæð, hress og ákveðin, taki mál í sínar hendur, láti verkin tala og styðji vel við bakið á þeim. „Ég er önnum kafin við að gera ekki neitt,“ segir Margrét aðspurð. „Nú læt ég bara dekra við mig og kannski kominn tími til. Ég fer í Múlabæ þrisvar í viku, þar er yndis- legt fólk og líka í heimaþjónustunni. Ég á yndisleg börn og barnabörn sem hugsa vel um mig, ég er ánægð yfir því að hafa náð þessum aldri og er þakklát fyrir öll árin.“ Fjölskylda Eiginmaður Margrétar í 67 ár var Ragnar Stefán Halldórsson, f. 1.9. 1929, d. 8.8. 2019, verkfræðingur og forstjóri og formaður stjórnar Ís- lenska álfélagsins. Foreldrar Ragn- ars voru hjónin Halldór Stefánsson, f. 26.5. 1877, d. 1.4. 1971, alþingis- maður, fræðimaður og forstjóri Slysatrygginga ríkisins og Bruna- Margrét Kristín Sigurðardóttir viðskiptafræðingur – 90 ára Með börnunum Frá vinstri: Kristín Vala, Halldór Páll, Sigurður og Mar- grét Dóra ásamt Margréti og Ragnari um aldamótin. „Eitthvað kostar svona kona“ Með barnabörnunum Tómas Ragnar og Katrín Margrét (aftast), Margrét Eva, Matthías Ragnar, Bjarki Már og Stefán Jón. Með tveim yngstu Ómar Hugi, Margrét og Þórdís Lára. Ester Ólafsdóttir og Karl Steingrímsson eiga 50 ára brúðkaupsafmæli á morg- un. Þau voru gefin saman 28. mars 1971 í Fríkirkjunni af Þorsteini Björnssyni. Þau eru þekkt athafnafólk, oft kennd við Pelsinn, og hafa byggt fjölda bygginga, m.a. Svörtu perluna í Tryggvagötu, og gert upp margar fasteignir. Árnað heilla Gullbrúðkaup Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.