Morgunblaðið - 27.03.2021, Side 52
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2021
Tilnefningar til Eddunnar 2021,
verðlauna Íslensku kvikmynda- og
sjónvarpsakademíunnar (ÍKSA)
voru kunngjörðar í gær og hlýtur
sjónvarpsþáttaröðin Brot flestar eða
15 alls. Næstflestar tilnefningar
hlýtur kvikmyndin Gullregn eða 12
talsins. Alls voru 146 verk send inn í
keppnina, auk þess sem 319 inn-
sendingar voru í fagverðlaun Edd-
unnar. Gjaldgeng voru sjónvarps- og
kvikmyndaverk sem voru sýnd opin-
berlega á tímabilinu 1. janúar 2020
til 31. desember 2020. Af innsendum
verkum eru sjónvarpsverk alls 99,
innsendar kvikmyndir 7, stutt-
myndir 11, heimildamyndir 19 og 17
verk eru barna- og unglingaefni.
Kvikmynd
Gullregn
Last and First Men
Between Heaven and Earth
Leikstjórn
Þórður Pálsson, Davíð Óskar Ólafs-
son og Þóra Hilmarsdóttir fyrir Brot
Ragnar Bragason fyrir Gullregn
Jóhann Jóhannsson fyrir Last and
First Men
Anní Ólafsdóttir og Andri Snær
Magnason fyrir Þriðji póllinn
Örn Marinó Arnarson og Þorkell S.
Harðarson fyrir Síðasta veiðiferðin
Handrit
Óttar M. Norðfjörð, Mikael Torfa-
son og Ottó Geir Borg fyrir Brot
Ragnar Bragason fyrir Gullregn
Andri Snær Magnason og Anní
Ólafsdóttir fyrir Þriðji póllinn
Sunna Karen Sigurþórsdóttir fyrir
Ummerki
Gunnar Björn Guðmundsson fyrir
Amma Hófí
Leikkona í aðalhlutverki
Sigrún Edda Björnsdóttir fyrir Gull-
regn
Aníta Briem fyrir Ráðherrann
Vala Kristín Eiríksdóttir fyrir
Venjulegt fólk 3
Nína Dögg Filippusdóttir fyrir Brot
Edda Björgvinsd. fyrir Amma Hófí
Leikkona í aukahlutverki
Halldóra Geirharðsd. fyrir Gullregn
Þuríður Blær Jóhannsdóttir fyrir
Ráðherrann
Halldóra Geirharðsdóttir fyrir
Venjulegt fólk 3
Kristín Þóra Haraldsdóttir fyrir
Brot
Tinna Hrafnsdóttir fyrir Brot
Leikari í aðalhlutverki
Björn Thors fyrir Brot
Ólafur Darri Ólafsson fyrir Ráð-
herrann
Angunnguaq Larsen fyrir Ísalög
Þorsteinn Bachmann fyrir Síðasta
veiðiferðin
Arnmundur Ernst Björnsson fyrir
Venjulegt fólk 3
Leikari í aukahlutverki
Gunnar Jónsson fyrir Brot
Hallgrímur Ólafsson fyrir Gullregn
Þorvaldur Davíð Kristjánsson fyrir
Ráðherrann
Nicolas Bro fyrir Ísalög
Ævar Þór Benediktsson fyrir
Jarðarförin mín
Kvikmyndataka
Árni Filippusson fyrir Brot
Árni Filippusson fyrir Gullregn
Sturla Brandth Grovlen fyrir Last
and First Men
Anní Ólafsdóttir og Eiríkur Ingi
Böðvarsson fyrir Þriðji póllinn
Ásgrímur Guðbjartsson fyrir Ráð-
herrann
Klipping
Valdís Óskarsdóttir og Sigurður
Eyþórsson fyrir Brot
Michael Czarnecki fyrir Gullregn
Anní Ólafsdóttir, Eva Lind Hös-
kuldsdóttir og Davíð Alexander
Corno fyrir Þriðji póllinn
Sighvatur Ómar Kristinsson fyrir
Er ást
Sigvaldi J. Kárason fyrir Síðasta
veiðiferðin
Hljóð
Jeremy Fong, Keith Elliott og Jón
Einarsson Gústafsson fyrir Skugga-
hverfið
Huldar Freyr Arnarson fyrir Brot
Jacek Hamela fyrir Gullregn
Jana Irmert fyrir Last and First
Men
Gunnar Árnason fyrir Á móti
straumnum
Tónlist
Tomas Valent fyrir Skuggahverfið
Pétur Ben fyrir Brot
Jóhann Jóhannsson og Yair Elazar
Glotman fyrir Last and First Men
Högni Egilsson fyrir Þriðji póllinn
Margrét Rán fyrir A Song Called
Hate
Brellur
Pétur Karlsson fyrir Brot
Sigurgeir Arinbjarnarson fyrir Ráð-
herrann
Filmgate, Guðjón Jónsson og Árni
Gestur Sigfússon fyrir Ísalög
Leikmynd
Heimir Sverrisson fyrir Brot
Heimir Sverrisson fyrir Gullregn
Eggert Ketilsson fyrir Ísalög
Gervi
Áslaug Dröfn Sigurðard. fyrir Brot
Áslaug Dröfn Sigurðardóttir fyrir
Gullregn
Guðbjörg Huldís Kristinsdóttir fyrir
Ísalög
Búningar
Helga Rós V. Hannam fyrir Brot
Helga Rós V. Hannam fyrir Gull-
regn
Helga I. Stefánsdóttir fyrir Ísalög
Heimildamynd
Á móti straumnum
Er ást
Góði hirðirinn
Hálfur álfur
A Song Called Hate
Stuttmynd
Óskin
Selshamurinn
Já-fólkið
Frétta- eða viðtalsþáttur
Ummerki
Kveikur
Kompás
Fósturbörn
Trans börn
Mannlífsþáttur
Lifum lengur 2
Steinda Con
Áttavillt
Nýjasta tækni og vísindi
BBQ kóngurinn
Menningarþáttur
Sóttbarnalögin
Menningarnótt heima
RAX Augnablik
Framkoma 2
Spegill spegill
Skemmtiþáttur
Ari Eldjárn „Pardon My Icelandic“
Áramótaskaup 2020
Heima með Helga
Kappsmál
Vikan með Gísla Marteini
Sjónvarpsmaður
Gísli Marteinn Baldursson
Guðrún Sóley Gestsdóttir
Helgi Seljan
Kristjana Arnarsdóttir
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir
Upptöku- eða útsendingastjóri
Ágúst Jakobsson fyrir Ari Eldjárn
„Pardon My Icelandic“
Egill Eðvarðsson fyrir Við bjóðum
góða nótt – Raggi Bjarna – Minning
Gísli Berg og Samúel Bjarki Péturs-
son fyrir Kappsmál
Guðni Hilmar Halldórsson fyrir Í
kvöld er gigg
Salóme Þorkelsdóttir fyrir Live
from Reykjavík - Iceland Airwaves
Barna- og unglingaefni
Fjársjóðs flakkarar
Skrímslabaninn
Söguspilið
Heimavist
Stundin okkar
Leikið sjónvarpsefni
Ráðherrann
Ísalög
Venjulegt fólk 3
Íþróttaefni
Domino’s Körfuboltakvöld
Landsleikir Íslands í fótbolta 2020 -
Karla & Kvenna
Áskorun
Íþróttamaður ársins
Ólympíukvöld
Tilþrif Sigrún Edda Björnsdóttir er
tilnefnd fyrir leik sinn í Gullregni.Drama Nína Dögg og Björn Thors eru bæði tilnefnd fyrir leik í Brotum.
Brot með 15 Eddutilnefningar
- Kvikmyndin Gullregn með 12 tilnefningar - Sjónvarpsserían Ráðherrann með sjö tilnefningar
- Alls voru 146 verk send inn í keppnina, auk þess sem 319 innsendingar voru í fagverðlaun Eddunnar
Íslensku hljóðbókaverðlaunin, Story-
tel Awards, voru afhent í Norður-
ljósasal Hörpu fyrr í vikunni, en
verðlaunahátíðin var með öðru sniði
en var lagt upp með því það þurfti að
afboða alla gesti með stuttum fyrir-
vara vegna breytinga á samkomu-
takmörkunum. Veitt voru verðlaun
fyrir bestu hljóðbókina í flokkum
barna- og ungmennabóka, glæpa-
sagna, skáldsagna og óskáldaðs efnis.
Í flokki barna- og ungmennabóka
hlaut bókin Eyðieyjan eftir Hildi
Loftsdóttur í lestri Álfrúnar Helgu
Örnólfsdóttur verðlaunin í ár. Í flokki
glæpasagna bar Illvirki eftir Emelie
Schepp sigur úr býtum, í lestri Krist-
jáns Franklíns Magnús. Kristján H.
Kristjánsson þýddi söguna. Verðlaun
fyrir bestu skáldsöguna hlaut Sextíu
kíló af sólskini eftir Hallgrím Helga-
son í hans eigin lestri. Óstýriláta
mamma mín eftir Sæunni Kjartans-
dóttur hlaut loks verðlaunin sem
besta bókin í flokki óskáldaðs efnis en
hún las bókina einnig sjálf.
Sérstök heiðursverðlaun afhenti
Eliza Reid forsetafrú Íslands Gunn-
ari Helgasyni fyrir framlag hans til
íslenskra barnabókmennta.
Einstakt listaverk
Dómnefnd Íslensku hljóðbóka-
verðlaunanna skipuðu að þessu sinni
Sverrir Norland, Guðrún Sóley
Gestsdóttir og Elva Ósk Ólafsdóttir.
Sævar Helgi Bragason hélt utan um
verðlaunin fyrir barna- og ung-
mennabækurnar.
Um bestu skáldsöguna, Sextíu
kíló af sólskini eftir Hallgrím Helga-
son, segir dómnefnd: „Stór og mikil
skáldsaga, í anda mestu verka
Nóbelsskáldsins, og hátindur á ferli
höfundar fram til þessa. Dómnefnd
var sammála um að hér væri spilað á
stærri skala en í öðrum tilnefndum
skáldsögum. Tilþrif í stíl og frá-
sagnarlist eru mikil – og sama gildir
um lestur höfundar, sem er innlif-
aður og þróttmikill. Skáldsaga sem
nær þeim sjaldgæfu hæðum að vera
í senn framúrskarandi afþreying og
einstakt listaverk, engu lík en þó
kunnugleg og aðgengileg.“
Einnig voru tilnefndar Húðflúr-
arinn í Auschwitz eftir Heather
Morris, Ólöf Pétursdóttir þýddi og
Hjálmar Hjálmarsson les; Hann
kallar á mig eftir Guðrúnu Sigríði
Sæmundsen, Selma Björnsdóttir
les; Kokkáll eftir Halldór Hall-
dórsson sem einnig les; og Einfald-
lega Emma eftir Unni Lilju Ara-
dóttur, Þórdís Björk Þorfinnsdóttir
les.
Saga sem rígheldur
Í umsögn dómnefndar um bestu
glæpasöguna, Illvirki eftir Emelie
Schepp, segir að um sé að ræða
hörkuspennandi glæpasögu sem ríg-
haldi hlustanda allt frá fyrstu línu til
þeirrar síðustu. Schepp sé „flink í að
byggja upp spennu og óhugnað,
flétta saman örlögum vel mótaðs per-
sónugallerís og bregða birtu á ýmis
áleitin samfélagsmálefni. Það sem
lyftir Illvirki í verðlaunasæti er þó
óumdeilanlega hinn framúrskarandi
lestur Kristjáns Franklíns Magnúsar
sem dómnefnd var sammála um að
væri í algjörum sérflokki.“ Um sé að
ræða flutning „á heimsmælikvarða“.
Í flokki glæpasagna voru einnig til-
nefndar Hvítidauði eftir Ragnar Jón-
asson, Íris Tanja Flygenring og Har-
aldur Ari Stefánsson lesa; Stelpur
sem ljúga eftir Evu Björgu Ægis-
dóttur, Þórdís Björk Þorfinnsdóttir
les; Fjötrar eftir Sólveigu Pálsdóttur
sem einnig les; og Fimmta barnið eft-
ir Eyrúnu Ýri Tryggvadóttur, María
Lovísa Guðjónsdóttir les.
Skrifað af sterkri þörf
Óstýriláta mamma mín eftir Sæ-
unni Kjartansdóttur var valin best í
flokki óskáldaðs efnis. Er þetta sögð
einstaklega hjartnæm og áhrifamikil
saga sem hreyfi við hlustandanum og
lifi með honum lengi á eftir. „Höf-
undur dregur á ljóslifandi hátt upp
myndir úr bæði fortíð og samtíð,
fléttar tímasviðin saman af miklu
öryggi og sýnir aðstæður margra
íslenskra fjölskyldna aftur í kyn-
slóðir. Verkið er skrifað af sterkri
þörf höfundar til að reyna að skilja
bæði eigið líf og annarra, einkum
móður sinnar, og vinna úr flóknum
tilfinningum.“
Einnig voru tilnefndar hljóðbæk-
urnar Björgvin Páll Gústavsson án
filters eftir Sölva Tryggvason og
Björgvin Pál Gústavsson, Rúnar
Freyr Gíslason les; Ljósið í Djúpinu
eftir Reyni Traustason, Berglind
Björk Jónasdóttir les; Útkall –
Tifandi tímasprengja eftir Óttar
Sveinsson sem les; og Manneskju-
saga eftir Steinunni Ásmundsdóttur,
Margrét Örnólfsdóttir les.
Mælt með fyrir alla
Eyðieyjan eftir Hildi Loftsdóttur í
lestri Álfrúnar Helgu Örnólfsdóttur
var valin af Sævari Helga best í flokki
barna- og ungmennabóka. Í umsögn
segir: „Geðveik saga og mjög spenn-
andi. Söguþráðurinn er blandaður við
gamlar sögur og daginn í dag og
kemur vel út. Lesið rosalega vel og
ekki alltaf bara með sömu rödd held-
ur með mismunandi röddum fyrir
persónur. Mæli með fyrir alla.“
Einnig voru tilnefndar Orri óstöðv-
andi – Hefnd glæponanna eftir
Bjarna Fritzson, Vignir Rafn Val-
þórsson les; Traustur og Tryggur –
Allt á hreinu í Rakkavík eftir Gunnar
Helgason og Felix Bergsson sem
einnig lesa; Langelstur að eilífu eftir
Bergrúni Írisi Sævarsdóttur, Sigríð-
ur Láretta Jónsdóttir les; og Langafi
minn Súpermann eftir Ólíver Þor-
steinsson, Sigríður Láretta Jóns-
dóttir les.
Verðlaun veitt fyrir bestu hljóðbækurnar
- Bækur Hildar,
Schepp, Sæunnar
og Hallgríms bestar
Hallgrímur Helgason Sæunn Kjartansdóttir Hildur Loftsdóttir Gunnar Helgason