Morgunblaðið - 27.03.2021, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 27.03.2021, Qupperneq 56
Sýningin Berskjölduð verður opnuð á morgun, sunnudag, í Listasafni Reykja- nesbæjar og stendur hún yfir til 25. apríl. Á sýningunni má sjá verk ellefu listamanna sem fanga á ólíkan hátt áskoranir og viðfangsefni í lífinu, eins og því er lýst á vef safnsins, og nota listamennirnir eigin sjálfsímynd og reynsluheim sem efnivið og af því spretta opinská og djörf verk sem allir geta tengt við eða dregið lærdóm af. Sum verkanna miðla úthaldi og seiglu en önnur fagna mannslíkamanum með húmor og næmi, eins og því er lýst. Sýnendur eru Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Berglind Ágústsdóttir, Dýrfinna Benita, Egill Sæbjörnsson, Freyja Reynisdóttir, Hildur Ása Henrýsdóttir, Maria Sideleva, Melanie Ubaldo, Michael Richardt, Róska, Sara Björns- dóttir og sýningarstjórar Amanda Poorvu, Ari Alexander Ergis Magnússon, Björk Hrafnsdóttir, Emilie Dalum og Vala Pálsdóttir. Berskjölduð er fyrsta sameiginlega sýningarverkefni þeirra í nýju meistaranámi í sýninga- gerð í myndlistardeild Listaháskóla Íslands. Berskjölduð í Reykjanesbæ LAUGARDAGUR 27. MARS 86. DAGUR ÁRSINS 2021 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.268 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is „Það hefur verið markmiðið hjá mér að spila fyrir ís- lenska landsliðið alveg frá því ég var lítil stelpa og þetta kom mjög skemmtilega á óvart. Ég vissi í raun ekki að ég yrði í hópnum fyrr en hann var opinberaður á heimasíðu KSÍ þannig að þetta kom mér alveg jafn mik- ið á óvart og öðrum,“ segir Hafrún Rakel Halldórsdóttir, átján ára nýliði í íslenska kvennalandsliðinu í knatt- spyrnu. »48 Markmið frá því ég var lítil stelpa ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Síðasti þátturinn í seríunni „Það er komin Helgi“ í Sjónvarpi Símans verður í kvöld en liðlega ár er síðan Helgi Björns og Reiðmenn vindanna hófu að létta landsmönnum lund með vikulegum skemmtiþáttum. „Ferlið hefur verið mjög lærdóms- ríkt og það er gefandi að fara svona í gegnum íslenska tónlist,“ segir Ingi Björn Ingason, bassaleikari bands- ins. Fótboltagenið er ríkt í fjölskyld- unni og Ingi Björn fetaði í fótspor föður síns og nafna sem og afans Al- berts Guðmundssonar, en sneri sér síðan alfarið að tónlistinni á ung- lingsárunum. „Ætli það hafi ekki verið miðjubarnssyndrómið, einhver uppreisn,“ segir Ingi um valið. Hljóðupptökur og tónlistar- myndbönd með tónlistarfólki eins og Bítlunum og Led Zeppelin hafi kveikt elda sem og vinsælustu rokk- böndin á umræddum tíma. „Bassa- gítarinn heillaði mig strax, spila- gleðin í bassaleikurum eins og Cliff Burton heitnum í Metallica, Paul McCartney í Bítlunum og Glen Hughes í Deep Purple höfðaði til mín enda allt mjög líflegir menn.“ Hann hafi hlustað á alla tónlist og ýmsar öfgar hrifið sig en rokkið á sjöunda og áttunda áratugnum hafi alltaf togað mest í. Í góðum félagsskap Ingi fór ekki í stíft tónlistarnám fyrr en hann var 24 ára en fram að því hafði hann fikrað sig áfram sjálf- ur og farið á eitt og eitt námskeið. Eftir fjögurra ára háskólanám í skóla sem Paul McCartney stofnaði í Liverpool á Englandi útskrifaðist hann með BA-gráðu 2006. Hann gerðist samt hvorki stuðningsmaður Liverpool né Everton í boltanum. „Til að forðast áflog fannst mér öruggast að segja að ég héldi með litla liðinu Tranmere og fékk þá létt klapp á öxlina.“ Eftir að Ingi flutti aftur heim hef- ur hann spilað í ýmsum böndum. Hann byrjaði að leika með Bjarna Sigurðssyni í B.Sig/Monotown og í kjölfarið datt hann inn í alls konar blönduð verkefni og spilaði víða, til dæmis í nokkrum söngleikjum og í leikhúsum. Hann hefur verið með Reiðmönnunum í tæpan áratug, spilaði með Ritvélum framtíðarinnar í um átta ár og lék meðal annars inn á tvær plötur með hljómsveitinni, var með Baggalúti í fimm til sex ár, túraði með Bang Gang um Kína og fór í tónleikaför ytra með Ásgeiri Trausta. Þá hefur hann spilað víða með Bubba Morthens og Sólskugg- unum, m.a. inn á tvær plötur. „Nýliðnir tólf mánuðir hafa verið mjög sérstakir,“ segir Ingi um beinu útsendingarnar, sem hafa fengið marga til þess að gleyma veiru- faraldrinum á meðan. „Ég hef hugs- að um þetta verkefni og komandi helgarverkefni daglega, því það hef- ur nánast tekið yfir allt annað. Þetta hefur enda verið mjög skemmtilegt. Okkur hefur tekist að halda vissum léttleika, það hefur verið mikil og góð vinátta og stemning í hópnum, mikill „brómans“, sem hefur bara eflst við hverja raun, og hljóm- sveitin er orðin eins og vel smurð vél.“ Hann segir viðtökurnar líka hafa haft mikið að segja. „Ég er rosalega meyr af þakklæti fyrir hvað fólk er jákvætt og finnst þættirnir hafa ver- ið skemmtilegir.“ Eins hafi verið mjög gefandi að spila með góðum gestum, þekktu tónlistarfólki sem og efnilegu. „Hver heiðurinn hefur rekið annan og svo hefur verið sér- lega gaman að vera hluti af þessari góðu skipulagningu Helga. Hann hefur lagt gífurlega mikla vinnu í verkefnið, sinnt því af miklum metn- aði, lagt áherslu á að öllum líði vel og það er mikill heiður að vera í hópnum. Við höfum flutt um 340 lög á þessum tíma, öll íslensk, og erfitt verður að toppa þetta langa ferða- lag.“ Gleðin leynir sér ekki - „Það er komin Helgi“ gefandi verkefni, segir Ingi Björn Ljósmynd/Mummi Lú Gaman Ingi Björn Ingason hefur notið þess í botn að spila með Helga og Reiðmönnum vindanna í beinni útsendingu í Sjónvarpi Símans í rúmt ár. Útskrift Paul McCartney og Ingi Björn kampakátir í Liverpool.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.