Morgunblaðið - 31.03.2021, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2021
Hörður Ægisson sem ritstýrirviðskiptaskrifum Frétta-
blaðs skrifaði m.a. þetta á dög-
unum:
- - -
Eitthvað mikið hefur farið úr-skeiðis. Ísland er eitt þróað-
asta ríki í heimi,
efnað land með fáa
íbúa og öfluga inn-
viði, þar sem vilji
til bólusetningar er
ríkur. Þjóðin ætti,
við venjulegar
kringumstæður, að
hafa alla burði til
þess að bera sig
saman við vestræn ríki, sem
standa utan ESB, á borð við Bret-
land og Bandaríkin.
- - -
Í Bretlandi stendur öllum semkomnir eru yfir fimmtugt nú
til boða bólusetning og í Banda-
ríkjunum stendur til að nægt
bóluefni verði til fyrir alla í lok
maí, auk þess sem bæði ríkin
hafa fest eins konar frelsisdaga í
dagatalið í vor og sumar, þegar
öllum hömlum verður aflétt.
Á meðan höfum við horft upp á
tafir og meiri háttar klúður í
bólusetningaráætlun stjórnvalda,
sem var af óskiljanlegum ástæð-
um útvistað til ESB. Enn er ekki
einu sinni búið að bólusetja alla
eldri borgara hér á landi og fyr-
irætlanir um bólusetningar hafa
nú tafist um heilan mánuð, og
ráðamenn yppa bara öxlum við
þeim tíðindum...
- - -
Með öflugri forystu hefði máttbólusetja þjóðina mun fyrr,
opna landið og afnema um leið
þær skerðingar á daglegu lífi,
sem við höfum búið við...
- - -
Bólusetningarklúður stjórn-valda, sem er einkum á
ábyrgð heilbrigðisráðherra, eru
afglöp af áður óþekktri stærð-
argráðu.“
Hörður
Ægisson
Grautfúl staða
STAKSTEINAR
Fyrsta skipið sem komið hefur til
Húsavíkur með hráefni fyrir kísilver
PCC á Bakka í marga mánuði lagðist
að Bökugarði í gærmorgun. Það er
flutningaskipið Wilson Nanjing sem
flytur kol til verksmiðjunnar.
Starfsmenn PCC eru að undirbúa
gangsetningu ofna kísilversins. Rún-
ar Sigurpálsson forstjóri segir að
horft sé til síðari hluta aprílmánaðar
en tekur fram að enn séu lausir endar
sem eftir sé að hnýta.
PCC greip til tímabundinnar stöðv-
unar á ljósbogaofnum kísilversins á
síðasta ári til að gera endurbætur á
reykhreinsivirki þess og var megin-
hluta starfsfólks sagt upp. Nú er verið
að ráða inn fólk að nýju, til viðbótar
þeim sem ekki var sagt upp. Unnið er
að þjálfun þess. helgi@mbl.is
Fyrsti hráefnisfarm-
urinn til kísilversins
- Stefnt að endurræsingu ofna í apríl
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Húsavíkurhöfn Kolum sem notuð eru við framleiðslu PCC mokað á bíl.
Sigurður Ingi Jóhannsson, sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra,
undirritaði í gær samkomulag við
sveitarstjórn Strandabyggðar um að
hefja endurskipulagningu fjármála
sveitarfélagsins svo að unnt verði að
ná jafnvægi í rekstri sveitarfélagsins
og standast fjárhagsleg viðmið sveit-
arstjórnarlaga. Samkomulagið kveð-
ur einnig á um 30 milljóna kr. fram-
lag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef
Stjórnarráðsins
Sigurður Ingi segir í tilkynning-
unni að ljóst sé að sveitarfélögin séu
misjafnlega í stakk búin til að bregð-
ast við áföllum. „Því er mikilvægt að
nýta þau verkfæri sem til eru til að
styðja sveitarfélög við hagræðingu
og stefnumótun til að þau geti staðið
undir lögbundinni þjónustu nær-
samfélagsins,“ segir Sigurður Ingi.
Ráða óháðan ráðgjafa
Markmið samkomulagsins er að
stuðla að markvissri vinnu við fjár-
hagslega endurskipulagningu og
hagræðingu í rekstri Strandabyggð-
ar, skapa grundvöll fyrir fjárhags-
áætlanagerð og aðgerðaáætlun fyrir
árin 2022-2025 og móta verk-
efnaáætlun sveitarstjórnar.
Í samkomulaginu felst að sveit-
arstjórn Strandabyggðar mun ráða
óháðan ráðgjafa sem vinnur með
sveitarstjóra og starfsmönnum
sveitarfélagsins að fjárhagslegri
greiningu og markmiðasetningu. Þá
skuldbindur sveitarstjórnin sig einn-
ig til að vinna að hagræðingu í
rekstri og draga úr rekstrar-
útgjöldum eins og kostur er, jafn-
framt því sem leitast verður við að
auka tekjur. Þá er í samkomulaginu
gert ráð fyrir að unnin verði úttekt á
kostum sameiningar við önnur sveit-
arfélög og fjárhagsleg áhrif samein-
ingar.
Samið um fjármál
Strandabyggðar
- Fá 30 milljóna
kr. framlag úr
Jöfnunarsjóði
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Strandabyggð Sveitarfélagið fær
30 milljónir úr Jöfnunarsjóði.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Skeifan 3 • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is • rafver@rafver.is