Fréttablaðið - 04.09.2021, Síða 4
Við leggjum áherslu á
velferð og viljum starfa
í sátt við umhverfið.
Jens Garðar Helgason, fram-
kvæmdastjóri Laxa fiskeldis.
Ragnhildur Helgadóttir
prófessor við
lagadeild
var fyrr í vikunni
ráðin rektor
Háskólans í
Reykjavík. Ragn
hildur sem hefur
verið sviðsforseti
samfélagssviðs
og prófessor við lagadeild, tekur
við stöðunni af doktor Ara Kristni
Jónssyni, sem gegnt hefur stöð
unni undanfarin ellefu ár. Eftir
ráðningu Ragnhildar sem rektors
HR gegna konur rektorsstöðu við
fimm af sjö háskólum hér á landi,
það er við Landbúnaðarháskóla
Íslands, Háskólann á Bifröst,
Háskólann á Hólum, Listaháskóla
Íslands og Háskólann í Reykjavík.
Hörður Birgir Haf steins son
stangveiðimaður
landaði höfðingj
anum svo kallaða
í Elliðaánum í
vikunni. Hörður
Birgir veiddi
höfðingjann
með Mun roe
Killer #16 flugu.
Fiskurinn var mældur 95 senti
metrar að lengd og klár lega fiskur
í yfir stærð, sé miðað við meðal
stærð í Elliða ánum.
Klara Bjartmarz
framkvæmdastjóri
KSÍ
fór í leyfi frá
störfum hjá
sambandinu
um miðja viku.
Knattspyrnu
sambandið hefur
farið í gegnum
mikinn storm, þar sem sambandið
fékk gagnrýni fyrir viðbrögð sín
við ásökunum um kynferðisof
beldi leikmanna íslenska karla
landsliðsins. n
n Þrjú í fréttum
59
sinnum í sumar
hefur hitinn
farið yfir 20
gráður á land-
inu. Meðalhiti
á Akureyri í júlí
og ágúst var sá
hæsti frá upp-
hafi mælinga.
n Tölur vikunnar
68
tilkynningar hafa borist vegna
blóðtappa og hjartatruflana sem
auka verkun vegna bólu setningar.
44.000
ferðagjafir eru ónýttar þegar einn
mánuður er eftir af ferðagjafar-
tímabili íslenskra stjórnvalda og
rúmlega fjórtán þúsund sem eru
ekki fullnýttar.
10-11%
Bæjarstjór-
inn í Árborg
reiknar með
10 til 11 pró-
senta íbúa-
fjölgun sem
er algjörlega
fordæmalaus.
Könnun Gallup mælir mikla
andstöðu við laxeldi í sjókví.
Hefur gríðarlega eyðilegg
ingu í för með sér, að sögn
verndarsinna. Viðhorfin
sýna að við þurfum að upp
lýsa landsmenn betur, segir
framkvæmdastjóri laxeldis
fyrirtækis.
gar@frettabladid.is
FISKELDI Meirihluti landsmanna,
eða 55,6 prósent, er neikvæður
gagnvart laxeldi í opinni sjókví
samkvæmt könnun sem North
atlantic salmonfund lét Gallup gera
í ágúst. 23,3 prósent segjast hlutlaus,
21,1 prósent er jákvætt.
Elfar Friðriksson, framkvæmda
stjóri Northatlanticsalmonfund,
Verndarsjóðs villtra laxastofna,
segir það mjög sterk skilaboð að
meirihluti landsmanna sé gegn sjó
eldinu.
„Iðnaðurinn hefur stækkað gríð
arlega hratt og Ísland er að vakna
upp við vondan draum. Umræðan
hefur að mestu snúist um peninga,
en fólk er farið að sjá að þetta mál er
risastórt náttúru og dýraverndar
mál,“ segir hann.
Elfar segir enga tilviljun að
náttúru verndarsamtök um allan
heim berjist af alefli gegn þessum
iðnaði. „Eldið hefur gríðarlega
eyðileggingu í för með sér. Það er
ekki ásættanlegt að við séum enn
að stækka úreltan og stórskaðlegan
iðnað.“
Samkvæmt könnuninni nefna
jákvæðir gagnvart sjóeldinu at
vinnusköpun og gjaldeyristekjur
sem höfuðkosti. Helstu mótrök eru
neikvæð umhverfisáhrif, hætta á
blöndun við villtan lax og dýraníð.
„Það er ekki bara hægt að tala um
atvinnusköpun og láta svo náttúr
una greiða allan kostnaðinn,“ segir
Elfar.
Gallup spurði f leiri spurninga.
Önnur niðurstaða er að sögn Elfars
sú að 30 prósent svarenda segja að ef
stjórnmálaflokkur myndi beita sér
gegn laxeldi í sjókví myndi það hafa
áhrif á ráðstöfun atkvæðis þeirra.
„Pólitíkin þarf að taka þessi skila
boð alvarlega. Ráðamenn þurfa að
stíga fram. Þessi mál eru ekki einka
mál Vestfirðinga og Austfirðinga,“
segir Elfar.
Jens Garðar Helgason, fram
kvæmdastjóri Laxa fiskeldis, segir
vegna þeirrar niðurstöðu könnunar
innar að meirihluti landsmanna sé
gegn sjókvíaeldi:
„Við finnum jákvæð viðbrögð í
þeim samfélögum sem við störfum
í. Þar fólk sem sér starfsemi greinar
innar á hverjum degi er það mjög
jákvætt. Nú er það hlutverk okkar
að spýta í lófana til að upplýsa lands
menn um hve frábæra atvinnugrein
við erum að byggja upp í sátt við
náttúru og umhverfi,“ segir Jens.
Að sögn Jens er þó ekki hægt að
blása með öllu á þau mótrök gegn
eldinu sem nefnd eru í könnuninni.
Fyrirtækin séu samt sem áður mjög
meðvituð um ábyrgð sína. Innan
laxeldisfyrirtækjanna og utan, sem
dæmi hjá eftirlitsstofnunum, séu
strangar vöktunaráætlanir.
„Við leggjum áherslu á velferð og
viljum starfa í sátt við umhverfið,
enda eigum við hvað mestra hags
muna að gæta í þeim efnum.“
Könnunin var netkönnun. 1.641
nafn var valið í handahófskenndu
úrtaki, 48,9 prósent svöruðu. n
Meirihluti andvígur laxeldi í sjókví
og nefnir umhverfisáhrif og dýraníð
Mjög umdeilt
mál sem ekki
er einkamál
Vestfírðinga og
Austfirðinga,
segir talsmaður
verndar villtra
laxastofna.
FRÉTTABLAÐIÐ/
PJETUR
Afstaða gagnvart sjókvíaeldi
Spurt var: Hversu jákvæð(ur) eða
neikvæð(ur) ertu gagnvart laxeldi í
opnum sjókvíum?
n Neikvæð(ur) 56,6%
n Jákvæð(ur) 21,1%
n Hvorki né 23,3%
HEIMILD: GALLUP
K Y N N U M N ÝJ A N J E E P®
A L V Ö R U J E P P I – A L V Ö R U FJ Ó R H J Ó L A D R I F
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
VERÐ HLAÐINN AUKABÚNAÐI FRÁ
6.699.000 KR.*
N Á N A R I U P P LÝ S I N G A R Á J E E P. I S
• STÆRRI VÉL 240 HÖ
• 360° MYNDAVÉL
• LÁGT DRIF
• LEÐURSÆTI OG MÆLABORÐ
• SNERTILAUS OPNUN AFTURHLERA
• FJARLÆGÐARSTILLTUR HRAÐASTILLIR
N Ý H Ö N N U N
N Ý I N N R É T T I N G
N Ý TÆ K N I
N Ý R Ö R Y G G I S B Ú N A Ð U R
* S V A R T U R L I M I T E D. A Ð R I R L I T I R 6 . 8 6 2 . 0 0 0
ÁRA ÁBYRGÐ 8 ÁRA ÁBYRGÐ ÁDRIFRAFHLÖÐU PLUG-IN HYBRID
NÚ FÁANLEGUR Í TRAILHA WK ÚTFÆRSLU
4 Fréttir 4. september 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ