Fréttablaðið - 17.07.2021, Page 16

Fréttablaðið - 17.07.2021, Page 16
Hvernig gátu yfir- völd rekið skaðlega starfsemi sem stríðir gegn mannlegu eðli, heil- brigðri skynsemi og fyrir- liggjandi rannsókn- um? Árni H. Krist- jánsson. Árni H. Kristjánsson er einn fimmmenninganna sem skorað hafa á borgarstjórn að rannsaka mál vöggustofa. Árni, sem er sagnfræðingur að mennt, er fæddur 1961 og elstur fimm systkina, sem ólust öll að miklu leyti upp á stofnunum, þar á meðal vöggustofum. Vegferðin í leit að rétt-læti fyrir börn vöggu-stofanna hófst formlega þegar þeir Árni, Fjölnir Geir Bragason, Hrafn Jökulsson, Tómas V. Albertsson og Viðar Eggertsson gengu á fund borg- arstjóra þann 7. júlí síðastliðinn, en hún á sér þó langan og persónulegan aðdraganda fyrir Árna. „Þetta mál hófst á svolítið undar- legum stað en það var á Barnaspítala Hringsins. Þetta hófst þannig að eld- huginn Hrafn Jökulsson, fornvinur minn, hafði árum saman komið á barnaspítalann og teflt við börnin einu sinni í viku. Svo hittist þann- ig á að ég var þarna með yngsta son minn, Óla, sem var í tvö ár á barna- spítalanum vegna alvarlegra veik- inda. Svo kemur Hrafn einu sinni sem oftar, en í þetta sinn tókum við ekki skák heldur fórum að ræða við Óla, sem var þá sextán ára, um aðbúnað á sjúkrahúsum og hvernig þetta var í gamla daga þegar foreldr- ar máttu ekki einu sinni heimsækja börn sín. Þá upplýsti Hrafn mig um það sem ég vissi ekki, að hann hafði verið vistaður á Vöggustofu Thor- valdsensfélagsins. Þar byrjaði þetta, því að ég og systkini mín vorum öll meira og minna á vöggustofum og síðan í kjölfarið á fleiri opinberum stofnunum,“ segir Árni. „Á þessum degi 3. janúar 2019 þegar þetta allt hófst, þá bundumst við Hrafn fastmælum um að koma þessu máli á einhvern rekspöl þannig að það myndi kannski leiða til rannsóknar, af því þetta var sví- virðileg starfsemi og brotið bein- línis á börnum og mæðrum þeirra. Síðan líður og bíður og ég var mjög upptekinn vegna veikinda sonar míns, meðal annars af því við for- eldrarnir bjuggum á spítalanum, bæði hér heima og erlendis. Síðasta vor þá tökum við upp þráðinn aftur og úr verður að Hrafn biður mig um að rannsaka starfsemi vöggustofa borgarinnar en ég kom víða að lok- uðum dyrum því heimildirnar eru ekki aðgengilegar.“ Margt óhuggulegt kom í ljós Árni tók saman greinargerð um starfsemi vöggustofa sem varð að bréfi sem þeir fimmmenningar sendu borgarstjórn 13. júní síðast- liðinn og setti allt af stað. Í bréfinu er farið yfir sögu Vöggustofunnar að Hlíðarenda, sem starfrækt var 1949–1963, og Vöggustofu Thor- valdsensfélagsins, sem starfrækt var 1963–1973. Árni segir að f leiri vöggustofur hafi verið starfræktar á 20. öld, en þær voru þá yfirleitt reknar af ein- hvers konar félagasamtökum á meðan borgin bar alfarið ábyrgð á Vöggustofunni að Hlíðarenda og Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins. „Það er ekki hægt að gera löngu látið fólk ábyrgt, í borgarstjórn kemur fólk og fer en ábyrgðin stendur alltaf eftir. Því er miðað við starfsemi þessara tveggja stofnana, enda var þetta sama starfsemin sem fluttist á milli húsa. Það kom margt mjög óhuggulegt í ljós sem ég hafði ekki gert mér grein fyrir,“ segir Árni. Gróðrarstía andlegrar veiklunar Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem reynt hefur verið að opna á umræð- una um vöggustofur. Um miðjan sjötta áratuginn reyndu borgarfull- trúarnir dr. Sigurjón Björnsson sál- fræðingur og Adda Bára Sigfúsdóttir veðurfræðingur að vekja athygli á málinu í borgarstjórn en það féll í grýttan jarðveg. „Þetta hefur haft svo skelfilegar af leiðingar fyrir f lest börnin sem Krefjast réttlætis fyrir vöggustofubörnin Sum þeirra, eins og Viðar Eggerts- son og tvíburasystir hans, sem voru vistuð á Hlíðarenda til tveggja og hálfs árs aldurs, þróuðu með sér sitt eigið tungumál af því enginn talaði við þau. Alls voru 510 börn vistuð á Hlíðarenda á starfstíma vöggu- stofunnar og á Vöggustofu Thor- valdsensfélagsins voru um það bil 100 börn vistuð árlega fram undir lok sjöunda áratugarins. Mæðurnar beittar þrýstingi Í greinargerð Árna kemur fram að „í langf lestum tilvikum var um að ræða börn ungra, fátækra, ein- hleypra eða veikra mæðra, sem talið var að gætu ekki alið önn fyrir börnum sínum“. Mæðurnar fengu ekki að snerta börn sín í heim- sóknum heldur þurftu þær að horfa á börnin í gegnum glervegg. Þá voru vöggustofurnar eins konar óform- legar ættleiðingarmiðstöðvar, þar sem barnlaus hjón völdu sér börn. „Um þræði héldu Barnavernd Reykjavíkur og forstöðukonan hverju sinni. Forstöðukonan hafði alveg ótrúleg völd, hún gat gert úttekt á heimilum, komið til leiðar að foreldrar yrðu sviptir forræði og skikkað börn í vist. En á sama tíma var gífurlegur þrýstingur barn- lausra hjóna, því þetta var löngu fyrir daga ættleiðinga erlendis frá,“ segir Árni. Hann segir að finna megi skýr- ingu á þessari ættleiðingarstefnu í ársskýrslum Barnaverndar Reykja- víkur á árunum 1967–1969, þar sem tekið er fram hversu hagkvæmt það sé að koma börnum á sjálfbær einkaheimili í fóstur. „Það eru til skjalfestar frásagnir af því að mæður í veikri stöðu hafi verið beittar svo miklum þrýstingi að þær gáfu eftir og afsöluðu sér börnum sínum. Sláandi dæmi er um konu sem lá á sjúkrahúsi, alvar- lega veik eftir barnsburð, og full- trúar Barnaverndarnefndar komu ítrekað á sjúkrahúsið til að reyna að fá konuna til að afsala sér barninu. Þarna er valdaójafnvægið gífur- legt. Þetta er eitthvað sem þarf að skoða, en málefnið er hálfgert tabú meðal mæðranna og þess fólks sem ættleiddi börnin. Til að gæta sann- mælis þá efast ég ekkert um að öll þessi börn hafi lent á góðum heimil- um hjá ástríkum foreldrum og þetta orðið þeim til heilla. En eftir stendur samt sem áður að þetta var stund- um gert á vafasömum forsendum og eftir sátu mæður og fjölskyldur í sárum,“ segir Árni. Gert ráð fyrir dauðsföllum Samkvæmt heimildum Árna var nokkuð um að börn kæmu á vöggu- stofurnar beint af fæðingardeild. Þetta voru stundum börn sem voru mikið fötluð og jafnvel ekki hugað líf, en í stað þess að dvelja á sjúkra- húsi, þar sem þau hefðu getað fengið viðeigandi aðstoð, voru þau flutt á vöggustofu. Einnig eru heimildir um að börn hafi veikst alvarlega, svo sem af lungnabólgu, en ekki verið flutt á sjúkrahús. „Svo er náttúrlega þetta óhuggu- lega dæmi um að það hafi verið gert ráð fyrir dauðsföllum á Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins. Þarna var skírnarfontur til að skíra dauðvona börn og líkherbergi. Það sem er ótrúlegast í þessu er að það virðist sem sumar konur hafi verið sviptar forræði barna sinna áður en þær ólu börnin, því þau voru tekin strax við fæðingu og flutt á vöggustofuna. Af hverju var þessum börnum ekki sinnt á sjúkrahúsi? Þetta er bara óskiljanlegt!“ segir Árni. Aðspurður um hvort slíkt hafi hreinlega staðist lög, segir Árni að lagastoð virðist hafa verið fyrir hendi í þeim tilvikum þar sem móð- irin var í óreglu um eða fyrir með- göngu. „Þetta var vafalaust hugsað barn- inu til heilla. Það verður að koma skýrt fram, þetta voru þau úrræði sem þá voru í boði og stundum var auðvitað nauðsynlegt að grípa til þeirra. Bara alveg eins og í dag voru þarna, en það sem er óskiljan- legt er að eftir að þetta var afhjúpað 1967 af dr. Sigurjóni og Öddu Báru, þá var málið gert f lokkspólitískt. Þau voru bara einhverjir kommar, hægrimenn voru með borgina, og þetta var afgreitt eins og þau vildu koma höggi á íhaldið,“ segir Árni. Dr. Sigurjón hélt ræðu á borgar- stjórnarfundi í mars 1967 þar sem hann lýsti vöggustofunum sem „gróðrarstíu andlegrar veiklunar“. Þá skrifaði hann greinina „Vist- heimili fyrir ung börn“ sama ár, þar sem hann sýndi fram á skað- semi þess að vanrækja börn til- finningalega til lengri tíma, með vísun í rannsóknir í barnasálfræði og geðlæknisfræði. Næst var hreyft við málinu árið 1993 þegar útvarps- þáttur Viðars Eggertssonar, „Eins og dýr í búri“, var frumfluttur. Þar var fjallað um baráttu móður hans til að endurheimta tvíbura sína, sem hún varð viðskila við frá fæðingu vegna fátæktar. „Það sem enginn skilur er, hvernig gátu yfirvöld rekið skaðlega starf- semi sem stríðir gegn mannlegu eðli, heilbrigðri skynsemi og fyrir- liggjandi rannsóknum? Það er gjör- samlega óskiljanlegt hvernig hægt var að hunsa grátandi börnin. Á endanum hættu börnin að gráta. Það eru til heimildir um að börn hafi hætt, ómeðvitað auðvitað, að nærast, því þau gáfust upp. Þau fengu aldrei örvun, sem er grund- vallaratriði fyrir þroska ungbarna. Það var beinlínis forboðið að sinna öðru en líkamlegum þörfum barnanna. Mörg urðu rang- eða tileygð vegna þess að þau sáu bara loftið úr rimlarúmunum og fengu enga skynörvun,“ segir Árni. Mörg börnin voru ótalandi þegar þau komu út af vöggustofum og bjuggu við málhelti fram eftir aldri. Árni tveggja ára gamall árið 1963. MYND/ÚR EINKASAFNI Í svefnherbergi elstu barnanna á Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins 1967. LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR/BRAGI GUÐMUNDS.  Þorvaldur S. Helgason thorvaldur @frettabladid.is 16 Helgin 17. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.