Fréttablaðið - 07.07.2021, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 07.07.2021, Blaðsíða 11
KYNN INGARBLAÐ ALLT MIÐVIKUDAGUR 7. júlí 2021 Verið að leggja síðustu hönd á undir- búning í gærmorgun fyrir opnunina í Cannes í Frakklandi. elin@frettabladid.is Það er tákn um bjartari tíma að alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Can- nes hófst í gær, en henni var aflýst í fyrra vegna Covid. Stjörnurnar hafa verið að flykkjast til Cannes og mikil tilhlökkun er í loftinu. Kvik- myndaiðnaðurinn fagnar enda er hátíðin mikilvæg til að koma nýjun bíómyndum á framfæri. Á sama tíma dregur rauði dregill- inn að sér ljósmyndara hvaðan- æva að úr heiminum til að ná sem bestum myndum af stórstjörnum Hollywood og þykir hann jafn mikilvægur og á Óskarsverðlauna- hátíðinni. Framleiðendur koma saman í Cannes til að selja kvikmyndir sínar til dreifingaraðila um allan heim. Þetta er því risavaxinn sölu- staður kvikmynda en gríðarlegt tap varð í þessum geira á síðasta ári, eða sem nemur 32 milljörðum Bandaríkjadala. Þá var frumsýn- ingum margra stórmynda frestað. Dýrið meðal kvikmynda Margar sterkar kvikmyndir verða sýndar á hátíðinni. Endurkoma Cannes hátíðarinnar þykir merki um breytingar í viðskiptaheim- inum þótt ekki sé hann alveg kominn í eðlilegt horf því enn þarf að gæta að varúðarráðstöfunum og sóttvörnum. Spike Lee verður for- seti dómnefndar og mun afhenda Gullpálmann. Jodie Foster hlaut heiðurspálmann að þessu sinni. Kvikmyndir eru víða að. Íslenska kvikmyndin Dýrið eftir Valdimar Jóhannsson var valin til þátttöku á hátíðinni. Kvikmyndahátíðin stendur til 17. júlí. ■ Kvikmyndahátíð í Cannes á ný Fjallakofinn var stofnaður fyrir sautján árum síðan og flytur nú úr Kringlunni 7 í nýtt og glæsilegt verslunarhúsnæði að Hallarmúla 2. Halldór Hreinsson, framkvæmdastjóri Fjallakofans og Arndís Frederiksen, kona hans, stilla sér hér upp fyrir framan nýja húsnæðið. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Lukkulegur Fjallakofi í sautján ár Fjallakofinn er með rótgrónari útivistarverslunum hér á landi og hefur starfsemin alla tíð byggt á vönduðum vörumerkjum og þekkingu starfsfólks á öllu sem viðkemur útivist. 2 KOMIN AFTUR! Smáranum, Kringlunni, Garðabæ, Akureyri T A R A M A R Arctic Flower Serum fylgir með TARAMAR vörum á Tax Free 1-7. júlí , einungis í Hagkaup F r í t t

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.