Fréttablaðið - 07.07.2021, Síða 12

Fréttablaðið - 07.07.2021, Síða 12
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@ frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Fimmtudaginn 8. júlí opnar glæ- nýr Fjallakofi dyr sínar fyrir við- skiptavinum. „Við erum að flytja úr Kringlunni og upp í Hallarmúla 2, í helmingi stærra húsnæði til þess að mæta síauknum fjölda viðskiptavina sem sækir hingað vörur og þjónustu. Verslunin var gjörsamlega búin að sprengja utan af sér fermetrana í Kringlunni og er því kominn tími á flutninga. Verslunin verður enn starfandi í Kringlunni 7 en með breyttu sniði sem verður auglýst síðar,“ segir Halldór Hreinsson, framkvæmda- stjóri Fjallakofans. Happatalan sautján „Fjallakofinn opnaði upprunalega í 17 fermetra húsnæði á annarri hæð í Bæjarhrauni í Hafnarfirði. Nú 17 árum síðar erum við að flytja í 1700 fermetra húsnæði í Hallarmúla. Það má segja að talan sautján sé nokkurs konar happa- tala hjá okkur. Hér í Hallarmúl- anum getum við boðið upp á enn betri aðstöðu fyrir viðskiptavini og þægilegri aðkomu. Þá eru 24 bílastæði bara rétt við innganginn. Við erum mjög stolt að hafa fengið hér inni og spennt að opna nýja verslun hér, en húsið á sér ríka sögu. Hér var Penninn staðsettur til fjölda ára og það er góður andi í húsnæðinu. Þá bíðum við full eftir- væntingar eftir að geta tekið á móti viðskiptavinum í þessu fallega og rúmgóða húsi,“ segir Halldór. Opnunartilboð alla helgina Í tilefni opnunarinnar í Hallar- múla verða sérstök opnunartilboð og ýmislegt húllumhæ um að vera í versluninni. „Þetta verður þriggja daga veisla sem hefst á fimmtudag og lýkur á sunnudag. Fólk getur græjað sig upp fyrir sumarið á góðum afslætti og það má því segja að Verslunarmannahelgin hefjist að ákveðnu leyti í Fjallakofanum.“ Klettar í lífi karlanna Fjallakofinn er í eigu þeirra Halldórs, framkvæmdastjóra og meirihlutaeiganda, Jóns Hreiðars Andrés sonar, rekstrarstjóra og Hilmars Más Aðalsteinssonar, inn- kaupastjóra. Allir hafa þeir mikla reynslu af verslunarrekstri og úti- vist. Til að mynda byrjaði Halldór að vinna í verslun foreldra sinna aðeins 11 ára, en þá var lagður grunnurinn að velgengninni sem Melabúðin nýtur enn þann daginn í dag. „Þar vann ég öll sumur og hjálpaði foreldrum mínum að byggja upp verslunina. Þá kom ég að rekstri Skátabúðarinnar og var verslunarstjóri í 15 ár.“ Einn- ig hefur hann komið að rekstri Fálkans og Útilífs. „Síðustu 17 ár hef ég svo unnið með Dísu konunni minni að upp- byggingu Fjallakofans. Ég held við getum allir þrír verið sammála að konurnar okkar, þær Arndís Frederiksen konan mín, Ásdís Ósk Ómarsdóttir kona Jóns og Sigrún Hallgrímsdóttir kona Hilmars, hafa verið klettar í lífi okkar og veitt okkur sterkt bakland til að geta staðið undir rekstri Fjalla- kofans í öll þessi ár.“ Allt fyrir útivistina Fjallakofinn er með bókstaflega allt fyrir útivistina, hvort sem um er að ræða fyrir göngur, útilegur, hjólaferðir, skíði eða annað. „Ég segi stundum að ef það fæst ekki hjá okkur, þá er það ekki nauðsynlegt,“ segir Halldór og brosir. Fjallakofinn hefur þar að auki ávallt lagt upp úr því að bjóða upp á fyrsta flokks vörumerki. Þar eru Scarpa, Patagonia, Mar- mot og Arc´teryx allra sterkust á markaðnum. „Scarpa er ítalskt fjöl- skyldufyrirtæki og skórnir frá þeim standa alltaf fyrir sínu. Ég hef unnið með þeim í 36 ár og get sagt að þeir eru sannir skósmíðameistarar af guðs náð. Hönnun skónna byggir á gríðarlegri þekkingu og þeir eru einungis framleiddir úr fyrsta flokks leðri og öðrum efnum. Þeir hafa alltaf verið langsterkasta vöru- merkið okkar og selja sig að miklu leyti til sjálfir. Enda þegar fólk hefur kynnst Scarpa þá koma fáir aðrir skór til greina. Þetta eru einfaldlega bestu gönguskórnir á markaðnum og það er ekkert annað merki sem hefur tærnar þar sem Scarpa hefur hælana. Patagonia er annað merki sem við erum stolt að bjóða upp á í Fjallakofanum. Patagonia lætur eitt prósent af öllum sínum hagnaði renna til umhverfisverndar og skilgreinir sig sem umhverfis- og náttúruverndarstofnun frekar en eiginlegt fyrirtæki. Þeir standa afar framarlega í heiminum þegar kemur að loftslags- og umhverfis- málum og láta sig allt varða á þessu sviði, allt frá verndun Atlantshafs- laxins við strendur Íslands til stíflu- gerðar í Slóvakíu.“ Marmot er svo bandarískt fyrir- tæki sem býður upp á afar vand- aðan útivistarfatnað og Arc´teryx er kanadískt hágæða fatamerki sem er eitt það þekktasta á alþjóða- markaði. „Við höfum ávallt kappkostað að ráða til starfa vandað, metn- aðarfullt fólk sem er tilbúið að gefa mikið af sér til þess að þjóna við- skiptavinum Fjallakofans. Það má segja að þetta sé stór fjölskylda sem hér ræður ríkjum og við reynum að hlúa að og hlusta vel á hvern einasta starfsmann til þess að geta haldið í góðan anda innan fyrirtækisins. Því helst okkur vel á starfsfólki og það eru ansi mörg grá hár hér á höfði sem er teikn um þroska, en aldursbilið er samt alveg frá 17 ára til 70 ára. Við sækjumst fyrst og fremst eftir fólki með reynslu en flestir hér koma úr björgunarsveit- unum, skátunum eða ferðafélögum og búa að ómetanlegri reynslu sem hefur reynst okkar viðskiptavinum afar vel.“ Aukinn áhugi kominn til að vera Fjallakofinn býður einnig upp á leigu á búnaði fyrir hverskyns útivist. „Erlendir ferðamenn hafa verið okkar helstu viðskiptavinir þegar kemur að leigu á gönguskóm, útivistarfatnaði og öðrum búnaði. Íslendingar eru þá meira í að leigja jökla- og fjallaskíðabúnað. Frá því að faraldurinn hófst hefur svo orðið sprenging í útivist hjá Íslendingum. Ástandið ýtti mörgum út í náttúruna að sækja sér andlega hressingu enda er úti- vera besta meðalið við nær hvaða kvilla sem er. Þá má segja að Fjalla- kofinn sé eins og vandað apótek sem býður upp á bestu lyfin, sem eru án efa Scarpa skórnir. Við erum nú nálægt því að tvöfalda söluna á þessum frábæru skóm sem og ýmsum öðrum búnaði sem er nauðsynlegur fyrir útivistina. Þá hefur einnig orðið mikil aukning í netverslun og er hún að skora sterkt hjá yngri sem og eldri við- skiptavinum sem geta auðveldlega stundað sín viðskipti þegar þeim hentar, hvenær sem er dagsins. Það er alveg klárt að þessi aukni áhugi Íslendinga á allri almennri útivist hvort sem er að sumri eða vetri er kominn til að vera.“ Ævintýraferðir Fjallakofans Fjallakofinn býður upp á spenn- andi ævintýraferðir á ári hverju og eru nokkrar komnar á skrá fyrir haustið. „Við bjóðum upp á fjölbreyttar göngu, hjóla- og skíðaferðir á Íslandi og erlendis, allt árið um kring. Í september förum við í Dónárdraum, en um er að ræða eina fjölförnustu og vin- sælustu hjólreiðaleið Evrópu sem liggur meðfram Dóná frá Passau í Þýskalandi austur til Vínarborgar í Austurríki. Ferðin er 9 dagar og með í för er hinn frábæri og fróði fararstjóri, Brandur Jón Guðjóns- son. Einnig verður farið í tíu daga hjólaferð um Kvarnerflóann í Króatíu. Þá verðum við með einka- bát sem ferjar okkur á milli stærstu eyjanna í f lóanum. Með í för verða þeir Brandur Jón Guðjónsson & Robert Cigar. Einnig verður í boði átta daga hlaupaferð í Austurríki með Óskari Jakobs þar sem gist er í fjallabænum St. Michael í Lungau, skammt frá Salzburg.“ n Nánari upplýsingar á fjallakofinn. is. Sími: 510-9505. Verslanir eru á Laugavegi 11 og Kringlunni 7 (sem er að loka). Ný verslun opnar í Hallarmúla 2 á morgun, fimmtudaginn 8. júlí. Verslunin í Hallarmúla er sérlega rúmgóð og húsnæðið er um tvöfalt stærra en húsnæðið í Kringlunni. Scarpa skórnir hafa verið langvin- sælasta söluvaran hjá Fjallakofanum í mörg ár enda bestu gönguskórnir. Það fæst allur nauðsynlegur bún- aður fyrir allar mögulegar tegundir útivistar í Fjallakofanum. Starfsfólk Fjallakofans kemur flest úr ferðageiarnum og býr að mikilli þekkingu á útivist. Hópurinn er eins og ein stór fjölskylda, enda ríkir þar góður andi. MYNDIR/ÁSMUNDUR Útivistin er meðalið við öllum helstu kvillum og Fjallakofinn er apótekið þar sem bestu lyfin fást. Þetta verður þriggja daga veisla sem hefst á fimmtudag og lýkur á sunnudag. Halldór Hreinsson. 2 kynningarblað A L LT 7. júlí 2021 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.